14.5.2012 | 21:14
Hugsanir mínar í dagsins önn.
Komið þið sæl og blessuð!
Fel Drottni vegu þína og treystu honum og hann mun vel fyrir sjá. Sálm.37,5
Treystu því að Guð sé almáttugur og faðir þinn sem elskar þig einlæglega og er tilbúinn að hjálpa þér.Treystu honum og fyrsta skrefið í áttina að ausn vandamála þinna er þegar stigið,næsta skref fylgir svo í kjölfarið.
Þegar hans tími er kominn færðu að sjá hvernig hann hjálpar þér og gerði alla hluti vel,hvernig hann hefur breytt því sem gat valdið þér sorg í gleði.
Bæn dagsins: Kæri Guð!
Ég fel þér öll málefni lífs míns.
Þú þekkir allar mínar þarfir.Ég
bið þig að vera með mér, og fylla
hug minn og hjarta af friði þínum.
Varðveittu mig og gæt mín hvert sem
ég fer.
Í Jesú nafni.
Amen.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2012 | 12:30
Arnarhreiðri spillt
Góðan dag!
Það er bara eitt orð yfir þetta,sorglegt!
Og hvað er fólk að meina? eru gerendur bændur
sem eru pirraðir út í ernina, útlendingar í eggjaleit?
Við eigum að láta þessi dýr í friði, og leyfa þeim að
eiga sitt líf.Ég er enginn sérstakur fuglafræðingur en veit
þó það að það er pláss fyrir fugla í villtri náttúru landsins.
Það gleður mann alltaf þegar farfuglarnir koma, og hví skildi
ekki gleðjast þegar ernir sem eru alfriðaðir reyna varp?
Þetta eru nú bara stuttir þankar með hádegis kaffinu.
Guð veri með okkur öllum!
Halldóra.
|
Arnarhreiðri spillt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2012 | 14:51
Mannanafnanefnd samþykkir ný nöfn
Komið þið sæl!
Það er örugglega ekki eftirsóknarvert að sitja í mannanafnanefnd.En það virðist samt vera þörf fyrir slíka nefnd.Ugglaust er það vegna þess að þjóðin okkar er að verða meira og meira saman sett af fleirum en íslendingum sem geta rakið ættir sínar aftur í fornöld.Og það er gott og blessað í sjálfu sér og þá koma ny nöfn eins og gengur.Mér finnst alltaf jafn gaman að hitta útlendinga sem bera íslensk nöf.Og það er virðingarvert þegar erlendir foreldrar sem búa hér gefa börnum sínum íslensk hefðbundin nöfn.En ég skil það vel að þetta sama fólk gefi börnum sínum nöfn sem tilheyra uppruna landinu.Sumir gefa þeim bæði íslenskt nafn og nafn sem tilheyrir þeirra landi.Mér finnst samt alveg hræðilegt að barn fái nafnið Atlanta!Því það mun örugglega minna heilu kynslóðirnar á flugfélag.
Þetta eru nú bara nokkrar hugsanir í dagsins önn.
Hinsvegar er það mjög áríðandi að muna það að Drottinn Guð hefur rist nöfn okkar í lófa sína!
Gleðilegt sumar !
Halldóra.
|
Nafnið Atlanta samþykkt en Alpine hafnað |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2012 | 11:12
Páska hugleiðing.
Gleðilega páska!
Það er páskadagur,mesta hátíð kristinna manna,því Jesús sonur Guðs er upprisinn, og situr nú við hægri hönd Guðs föður á himnum.Meira að segja páskaeggið á skírskotun til upprisu Jesú.Að lesa þessa frásögu í guðspjöllunum er magnað,og ég kvet fólk til að kynna sér þessa frásögu af upprisu Jesú.Ætla ekki að fara út í það núna að útskyra þetta undur,bara aðeins að minna á nokkur atriði.Jesús er upprisinn,sem þyðir að hann lifir, og er eilífur.Sá sem lifir hefur alla þessa venjulegu persónuleika.Hann elskar,hann huggar,hann grætur,hann finnur til,hann fylgist með,hann þráir að allir menn gefist honum og eignist eilíft líf.Og það sem er svo stórkostlegt er að þessi atriði eru fyrir þig!Hann elskar þig,hann huggar þig,hann grætur þegar þú grætur,hann finnur til þegar þú finnur til,hann fylgist með þér, og þráir að þú eignist eilíft líf! Hann er kærleikurinn! Og hefur dáið fyrir þínar syndir, og vill fyrirgefa þér.Biblían segir að fyrirgefning hans sé eins og þegar steinvölu er varpað í sjóinn,hún sekkur og gleymist.Hann minnst þá ekki framar synda þinna.Jesús er persónulegur góður Guð og bíður eftir þér! Þú ert mikilvægur í hans augum!
Guð gefi þér yndislega páskahelgi,og mundu að Jesús elsksr þig, og þráir að eiga vináttusamfélag við þig!
Guð blessi þig!
Halldóra Ásgeirsdóttir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2012 | 12:36
Á 140 á Reykjanesbraut
Komið þið sæl!
Mín eina hugsun að lesa svona er: Ég vildi ekki mæta bíl á þessum hraða!
Og ég er vissum að bæði ökumenn sem aka á þessum hraða og aðrir ökumenn vildu það ekki heldur.Mín ósk er að allir fari eftir reglum og aki á réttum hraða.
Það er best að mynna fólk á bílabænina:
Drottinn veit mér vernd þína
og lát mig mynnast ábyrgð minnar
er ég ek þessari bifreið.
Í Jesú nafni
Amen.
Kærleiks kveðjur
Halldóra.
|
Á 140 á Reykjanesbraut |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.3.2012 | 17:00
Vill ekki auka framlög til Hjálpræðishersins.
komið þið sæl!
Ég er svo gáttuð á þessu orðskrípi "gildishlaðin lífsskoðunar samtök"
að mér fallast hendur.Og svo stendur í þessari frétt að:"Fulltrúi VG í velferðarráði Rvk. lýsi andstöðu að borgin væri að beina utangarðsfólki í auknu mæli í dagsetur vegna "gildishlaðinna lífsskoðunarsamtaka" Þvílíkt og annað eins.það vita nú fleiri en ég að hjálpræðisherinn byrjar ekki fyrst á að koma með trúna til þessa hóps,þau taka hins vegar á móti fólki sem til þeirra leitar og sýnir þeim sem minna mega sín kærleika og virðingu,með því að gefa þessu fólki að borða.Og þetta get ég sagt því ég hef séð það með mínum eigin augum! Og sé þetta fólk illa klætt þá er því gefið eitthvað hlýtt til að klæðast.Og ég hef horft upp á Hjálpræðishers fólk þerra tárin af augum þessa fólks þegar enginn annar gerði það.Ef þetta er ekki kærleikur í verki þá veit ég ekki hvað það er.
Og að borgin beini þessu fólki til Hjalpræðishersins og Dagseturs,er engin furða því að þar er kærleikur og hlýja númer eitt.
Sjálf hef ég stutt við þetta starf með því að gefa góðan fatnað sem getur nýst þar.Og það gera örugglega margir aðrir.Svo mér finnst bara hreint út sagt að borgin ætti að meta þetta fórnfúsa starf og styðjafjárhagslega við það.
Og að fulltrúi í Velferðarráð skuli láta sér svona nokkuð um munn fara er til háborinnar skammar (afsakið orðbragðið)
Gott fólk er ekki bara kominn tími til að láta kærleikann tala?
Hjálpræðisherinn fær allavega blessunaróskir frá mér!!
Kær kveðja
Halldóra.
|
Vill ekki auka framlög til Hjálpræðishersins |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
12.3.2012 | 15:27
Falleg saga af Gústa Guðsmanni.
Komið þið sæl!
Á dögunum heyrði ég fallega sögu af Gústa Guðsmanni.Hann gerði út trillu á Siglufirði ásamt með eigandanum sjálfum Guði! Og andvirði aflans rann til kristniboðs.Þessi sögu frægi maður var trúaður.Einu sinni var hann sem oftar úti á bátnum sínum ásamt öllum hinum sem stunduðu sjóinn í ágætis veðri.En allt í einu gerði vont veður og allir bátarnir komu í land.Allir nema Gústi.Það var gerður leiðangur til að leita að Gústa.Eftir nokkra stund fannst Gústi á bátnum sínum.Það var svo einkennilegt að á þeim bletti sem hann var,var lygndur sjór og óveðrið allt í kring.Og á þessum ltla bletti var Gústi og söng hástöfum "Hærra minn Guð til þín" Mitt í stormi lífsins söng þessi gamli Guðsmaður!
Þessi frásaga minnti mig óneitanlega á Pál og Sílas Biblíunnar,sem voru fangelsaðir og stokkur settur yfir fætur þeirra svo þeir slippu ekki.Lýsingarnar á meðferð þessara manna sem höfðu ekkert gert af sér eru ekki fagrar,en í þessum erfiðu kringumstæðum sungu þeir lofsöng til Drottins Guðs.En það sem gerðist var mikið undur því hlekkirnir losnuðu af þeim og dyr fangelsisin opnuðust.
Ef við erum í erfiðum kringumstæðum ættum við að prófa þessa leið,sem bæði Gúst Guðsmaður og hetjur Biblíunnar þekktu.Og var þeim til hjálpar.
Guð blessi þig!
Halldóra Ásgeirsdóttir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
6.3.2012 | 00:01
Lóan er komin að kveða burt snjóinn.
Góðan dag!
Það er fátt í fréttum þessa dagana sem er fallegt og gott,svo kemur þessi frétt á þeim tíma sem maður býst ekkert endilega við vor boðanum ljúfa!
Það þýkir jafnan frétt þegar lóan sést fyrst á vorin hér upp á landinu bláa.
Svo ég get ekki annað en sagt: Vertu velkomin heim,yfir hafið og heim!
Guð blessi land og þjóð!
Kv. Halldóra
|
Lóan er komin til Eyrarbakka |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.2.2012 | 14:18
Mótmælir lestri passíusálmanna
Góðan dag!
Íslenskur menningar arfur,það er ágætt orð yfir þetta snilldar verk sem Passíusálmarnir eru.Og það er alveg öruggt að höfundurinn hafði gyðinga hatur ekki í huga á þeim tíma sem hann orti sálmana.Hann er fyrst og fremst að lýsa í ljóði því sem gerðist í lífi Jesú, og guðspjöllin segja frá.Að mínu viti hefur engum tekist betur en Hallgrími Péturssyni að koma betur orðum að Píslarsögu Krists. Hér er dæmi um hvernig Jesú leið: 2 sálmur vers 11
Hjartanlega varð harmþrunginn
herrann Jesú í þetta sinn.
Holdið skalf við það feikna fár,
flutu í vatni augun klár.
Sagði grátandi:Sál mín er
svo allt til dauða hrygg í mér.
Læt duga þetta eina vers,en það sem á eftir kemur er líka hreinasta snilld.Og ég trúi því að allir þeir sem elska ljóðalestur, séu mér sammála í því að Passíusálmarnir eru þjóðar verðmæti.Og ég get ekki séð það, að hlusta á lestur þessa verks einu sinni á ári í útvarpinu skaði nokkra manneskju.Og það má alls ekki taka slík verðmæti út úr dagskrá útvarpsins!
Vonandi láta útvarpsstjóri og útvarps ráð þessa stofnun í Bandaríkjunumn ekki ráða hvað er á dagskrá útvarpsins hér.
Með kveðju og blessunaróskum!
Halldóra.
|
Mótmælir lestri Passíusálmanna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
21.2.2012 | 17:08
Biblían á tunglinu.
Komið þið sæl !
"Í upphafi skapaði Guð himinn og jörð"
1. Mós.1.1
Bók Bókanna,Biblían,er sennilega útbreiddasta bók veraldarinnar.Ljóst er að hún hefur víða fariðog hana er jafnvel hægt að finna á ólíklegust stöðum.
Á jólunum 1968,er geimfarið Appollo8 var að nálgast tunglið og geimfararstjórinn var að lýsa hinni miklu víðáttu tunglyfirborðsins,þá skýrði hann sjónvarpsáhorfendum um allan heim frá því að áhöfnin í Appollo 8 hefði jólaboðskap og kveðju að flytja öllum jarðarbúum.Síðan hóf geimfararstjórinn að lesa úr Biblíunni.Hann las úr 1. Mósebók um sköpunina.Síðan rétti hann Biblíuna áfram til félaga síns,sem hélt lestrinum áfram.Því næst var þriðja geimfaranum rétt Biblían og lauk hann lestrinum.
Fréttamenn urðu furðu lostnir og einn þulur sjónvarpsstöðvar sagði:"Mennirnir hafa rétt í þessu lokið við að lesa úr Biblíunni á tunglinu og ef barnsminnið svíkur ekki,þá lásu þeir úr 1. Mósebók."
Sennilega hafa hafa aldrei áður jafn margir heyrt lesið úr Biblíunni í einu.Á þessu augnabliki var fólk í milljóna tali djúpt snortið af orðum Guðs.
Hvet ég menn nú til að taka sér Biblíu í hönd og lesa fyrsta kafla fyrstu Mósebókar sem fjallar um sköpunheimsins.
Fyrsta Mósebók er fyrsta rit Biblíunnar.
Þessi frásaga er úr bókinni, Þá munu steinarnir hrópa,eftir Sigurbjörn Þorkelsson.Bókin kom út 1996. Höf. gaf leyfi til að setja söguna inn hér.
Guð blessi ykkur !
Halldóra Ásgeirsdóttir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Bloggvinir
-
aglow
-
stingi
-
markusth
-
gunnarasgeir
-
arabina
-
arncarol
-
meyfridur
-
job
-
baenamaer
-
brandarar
-
cakedecoideas
-
christiancoaching
-
einargisla
-
fanneyogfjolnir
-
fridrikschram
-
gudnim
-
alit
-
zeriaph
-
drengur
-
eyfeld
-
jonmagnusson
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
krist
-
kketils
-
vonin
-
margis
-
mofi
-
olijoe
-
ragnarbjarkarson
-
ragnargests
-
rl
-
rosaadalsteinsdottir
-
sirrycoach
-
forvitin
-
snorribetel
-
sur
-
svala-svala
-
svavaralfred
-
hebron
-
tb
-
valdimarjohannesson
-
icekeiko
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.5.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 58242
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar



