Trúin á Guð.

Komið þið sæl!

Þessi frétt er sláandi,en ég hef alltaf heyrt að norðmenn væru vel kristnir.Þeirra saga er líka sú að þeir áttu mikinn guðs mann Hans Kristjan Hauge  sem var mikill predikari og fór um landið.Örugglega hafa fleiri verið sem fóru þannig erinda Krists.Man bara ekki í augnablikinu eftir fleirum.En það er vitað að  önnur trúarbrögð eru  að hasla sér völl  um allann heim. Ætla ekki að fara út í að tyna upp hver þau eru,en þau eru mörg hver mjög öflug.En það eru til fyrirheit um það að orð Guðs muni aldrei lýða undir lok.En það er baraátta um sálirnar,enda bara tvennt í boði  hinn breiði vegur sem endar í glötun og þröngi vegurinn til Krists. Guð er ekki guð einhverra landamæra,hann er Konungur Konunganna og  það getur alveg orðið breyting á þessu ástandi hjá vinum okkar norðmönnum.Og ég skora á þá að taka saman höndum og biðja markvisst fyrir þessu,þó ég viti að eflaust biðja margir þar ytra, og standa trúfasta bænavakt. Ríki Guðs þarf á biðjandi fólki að halda sem stendur bænavaktina af trúmennsku.Nú er pákadagur á morgun,þar sem við minnumst þess sem Kristur gekk í gegnum.Hann dó á krossi fyrir þig! Það er ekki bara fyrir gamalt fólk að trúa,það er fyrir okkur öll.Að hafa Drottinn með sér á göngu lífsins er það besta. Ég bið Drottinn að blessa norsku þjóðina, og óska þess að  þessar prósentutölur breytist von bráðar hjá þeim.


mbl.is Sífellt færri trúa á guð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Segðu mér ekki að þú sjáir það ekki að það að önnur manneskja þurfi að láta negla sig á kross fyrir ÞIG... sé ekki siðlaust með öllu

DoctorE (IP-tala skráð) 3.4.2010 kl. 14:28

2 identicon

Þetta sannar bara að fólk er að verða skynsamara.Þetta trúarrugl veldur engu nema tómu veseni

Sigurbjörn (IP-tala skráð) 3.4.2010 kl. 14:48

3 Smámynd: Rebekka

Páskagjöf til þín frá mér, þó við þekkjumst ekki neitt.  

http://www.youtube.com/user/Evid3nc3#p/c/A0C3C1D163BE880A

Þessi ungi maður útskýrir afskaplega vel hvernig jafnvel harðkristnasta fólk, jafnvel þeir sem hafa alist upp í mjög trúuðum fjölskyldum, haft mjög gott samband við guð, talað tungum, verið skírðir, endurfæðst, beðið bænir mörgum sinnum á dag o.s.frv. o.s.frv. getur endað upp sem trúlaust.  Þannig endar þetta að lokum.

Rebekka, 3.4.2010 kl. 16:14

4 identicon

Gott mal (;

Siggi (IP-tala skráð) 4.4.2010 kl. 17:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband