7.1.2009 | 19:48
Gott fyrir sálina.
Komið þið blessuð og sæl!
Drottinn Guð hefur verið undursamlega góður við okkur íslendinga,það er alveg klárt.
En svo hefur þjóðin ekki verið vís í allri þessari blessun,og nú eru beyttir tímar.En mig langar til að minna okkur á fyrirheiti Guðs.
Drottinn Guð leiði þig inn í gott land,inn í land sem nóg er af vatnslækjum, lindum og djúpum vötnum sem spretta uppí dölum og fjöllum.inn í land sem nóg er af hveiti og byggi, vínviði,fíkjutrjám og granateplatrjám inn í land sem nóg er aðf olíutrjám og hunangi,inní land þar sem þú munt ekki eiga við fátækt að búa og þar sem þig mun ekkert bresta.Og þegar þú ert orðinn mettur þá skalt þú vegsama Drottinn fyrir landið góða sem hann gaf þér.
Þetta er kanski sá textisem gott er að fara með um mánaðarmót,þegar endar ná jafnvel ekki saman!
Það er svo trúatstyrkjandi að lesa svona texta og taka hann til sín. Lifum í loforði Drottins að hann mun hjálpa okkur öllum í þrengingu þessara daga,og leysa okkar mál,ef við biðjum hann þess.
Kæru vinir! ég kveð ykkur með bæn í hjarta um blessun handa okkur öllum.
Verið Guði falin
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
4.1.2009 | 15:29
Símarnir í lífi mínu.
Komið þið sæl!
Hef verið að hugsa um hvað síminn hefur mikið vægi í lífi okkar.Meira að segja voru sérstakir símastólar, sem voru sannkallaðar mublur, eins og þeir voru nefndir.Þá sat maður á sama stað í þar tilgerðum þæginlegum jafnvel bólstruðum símastól! Í dag finnst mér þetta mjög findið. Á bernskuheimili mínu var stóri svarti síminn hafður litlu borði úti í horni og ef maður ætlaði að tala lengi sótti maður bara eldhús koll til að tilla sér á. En ég var nú ekki mikið í símanum á þessum árum.Mesta lagi svaraði maður fyrir foreldrana.Svo komu gráu símtækin mun léttari, en þau svörtu.Ég á engar sérstakar minningar um rómantísk símtöl í þessum símum En ég á minningar um að geta ekki hreyft sig neitt.Það var ekki fyrr en ég flutti að heiman þá til Reyðarfjarðar að síminn fór að skipta mig máli. Ég man meira að segja númerin hjá mér, heimasíminn var 98-4375 og á skrifstofunni 98-4376 og það er í raun merkilegt að þessi númer gat ég valið sjálf.Í dag er þessu öðruvísi farið. Víkjum aftur að heimasímanum. Hann var staðsettur uppá hillu og ég var bundin á þessum eina punkti ef ég þurtfti að vera í símanum.Mér fannst það vont enda tengdust símtölin vanalega vinnunni og ég þurfti alltaf að vera að segja " Bíddu aðeins" þá fékk ég mér langa snúru og gat farið um allt með símtækið í höndunum
. Það voru engir farsímar heldur til þá. Sumir voru með talstöðvar í bílunum sínum.Mér fannst það of strákalegt, og sleppti því.En éf ég hefði einhverntíma á lífsleiðinni þurft farsíma þá var það á þessum tíma vegna ferðalaga sem tilheyrðu embættinu. Og þó að ég ætti kærasta í bænum varð maður að notast við þessa gömu síma, engin sms eða neitt þannig.Nú erum við öll með þráðlausa síma og gemsana auðvitað, og gerum alveg helling á meðan við erum í símanum! Eldum mat, þurkum af,brjótum saman þvott ofl,ofl. Svo er maður ekkert voðalega gamall í árum talið,en hefur upplifað þvílíka breytingu á svo mörgum sviðum.
En eitt breytist aldrei kæru vinir! Drottinn Jesús Kristur! Hann er hinn sami í gær og í dag og um alla eilífð.Símtalið til hans kostar ekkert, að er bara bæna andvarp þitt sem það kostar.Hvernig sem allt er komdu til Jesú í bæn.Þú þarft ekki að druslast með snúru í eftir dragi til að geta talað. Línan til himins er þráðlaus og opin -fyirir þig!
Guð blessi þig!
Kveðja
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Um bloggið
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Bloggvinir
-
aglow
-
stingi
-
markusth
-
gunnarasgeir
-
arabina
-
arncarol
-
meyfridur
-
baenamaer
-
brandarar
-
cakedecoideas
-
christiancoaching
-
einargisla
-
fanneyogfjolnir
-
fridrikschram
-
gudnim
-
alit
-
zeriaph
-
drengur
-
eyfeld
-
jonmagnusson
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
krist
-
kketils
-
vonin
-
margis
-
mofi
-
olijoe
-
ragnarbjarkarson
-
ragnargests
-
rl
-
rosaadalsteinsdottir
-
sirrycoach
-
snorribetel
-
sur
-
svala-svala
-
svavaralfred
-
hebron
-
tb
-
valdimarjohannesson
-
icekeiko
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.8.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar