Komist verði hjá greiðslufalli

Sæl og blessuð!

Hvert stefnir í heimsmálunum? Það er uppi allskonar vandi og menn upplifa óöryggi. Ég held að fólk ætti að taka sig saman og spenna greipar og biðja fyrir Ameríku.Biðja Guð um miskunn!
Það sem hefur hjálpað okkur í efnahagsvanda þjóðarinnar er bænin og Guð hefur sannarlega verið með okkur.Við þurfum líka að standa saman og biðja Guð að vernda okkur frá því að missa frelsi þjóðarinnar!
Biðjið og yður mun gefast!

Í kærleika Krists

Halldóra.


mbl.is Komist verði hjá greiðslufalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Falleg saga

Góðan dag gott fólk!

Nú á þessum tíma árs þegar allt er í blóma,þá sjáum við fegurðina í sköpunarverkinu.Blómin, og trén í sínum fögru litum,og allt verður svo fallegt.
Eitt af því sem gleður mig alltaf jafn mikið eru fuglarnir,sem koma hingað til okkar til þess að verpa og koma ungunum upp.Ég hef mikla unun af að setja epli út í garðinn minn, og sjá þrestina gæða sér á þeim.
Í byrjun sumars gerðu þrastarhjón sér hreiður fyrir ofan útidyrnar hjá okkur.Þegar þau svo yfirgáfu hreiðrið komu Maríuerlu hjón og gerðu hreiðrið að sínu.Þau búa þar núna og koma væntanlega upp sínum ungum á næstu vikum.

Á dögunum komu þrastarungarnir og foreldrarnir í eplin og þá var veisla.Auðvitað var flogist á smávegis,en allir fengu epli.Og ég ánægju af að horfa á.

Tökum eftir svona skemtilegum atvikum í náttúrunni, og njótum þess!

Sumarkveðja
Halldóra.


Gamall fallegur sálmur.

Góðan dag!

Jesús hvað get ég þér gefið,
getur þú notað mig hér.
Reykelsi,gimsteinar gulldjásn
gilda ei neitt fyrir þér.

Sjálfan mig gef ég þér glaður
Gussonur taktu við mér.
Svo þú mig eigir um eilífð
einum ég tilheyri þér.

Tak þú við tungu sem þakklát
tígni og vegsami þig.
Tak þú við fótum sem feti
fúslega hlyðninnar stig.

Jesús hvað get ég þér gefið?
Glaður ég fylgja vil þér.
Þjóna þér ,elska þig, una
Öllu sem velur þú mér.

Lizzie de Armond- Bjarni Eyjólfsson.

Guð blessi ykkur

Halldóra.


Uppskrift

Komið þið sæl!
Þá er kominn tími fyrir uppskrift.Og núna er það kjúklingaréttur.

Hráefni:

3 eða 4 kjúklingabringur,steiktar á pönnu,í smá matarolíu.
síðan eru þær skornar í litla bita.

2. epli skorin smátt
2. laukar skornir gróft niður. Allt steikt á pönnu þar til
laukurinn er orðinn mjúkur.
karry eftir smekk út í þetta.
salt og pipar eftir smekk
Kjúklingabitunum raðað ofan á og látið malla í ca 12-15 mín.
Rétturinn er þa tilbúinn,en það er mjög gott að hella rjóma
eða matreiðslu rjóma útá.
Með þessu er salat eða grjón borið fram.

Verði ykkur að góðu.


Ber fullt traust til biskups.

Kæru vinir!
Tek undir með forseta Kirkjuþings, ég ber traust til Karls Sigurbjörnssonar Biskups.En um leið hef ég fundið til með honum í öllu þessu máli.Ástæðan fyrir því er að svona mál hafði aldrei komið upp opinberlega í kirkjunni.Og ég skyl að mistök hafa orðið þess vegna.Nú hafa verið sett á laggirnar fagráð sem vinnur úr slíkum málum.Og það er vel.Kirkjan hefur lært sína lexíu.Og ég vona að svona mál komi aldrei upp aftur í kirkjunni.En hitt er að við lifum í syndugum heimi og við verðum að vera á varðbergi.Því Drottinn vill ekki meingaða kirkju. Ég vona bara að þessu máli ljúki, og kirkjan rísi upp sterkari en fyrr.
En við þurfum öll að biðja fyrir kirkjunni, og þjónum hennar,svo að heilagur andi geti komið og blásið lífi sínu í hana að nýju.Sjálf reyni ég í veikum mætti að standa bænavaktina.Af því ég vil sjá framgang kristninnar og Guðsríkisins okkar á meðal.Í Matteusarguðspjalli stendur: Leitið fyrst Guðs ríkis og réttlætis,þá mun allt annað veitast yður að auki.

Læt þetta nægja að sinni.
Verið Guði falin!

Halldóra.


mbl.is Ber fullt traust til biskups
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kröfu Geirs hafnað

Komið þið blessuð og sæl!

Landsdómur hafnaði í gær kröfu Geirs Haarde fyrrverandi forsætisráðherra um að átta dómarar, sem Alþingi kaus í landsdóm vikju sæti.

Fyrir mína parta er þessi svokallaði landsdómur yfir Geir Haarde til háborinnar skammar.Þetta er bara aðför eins stjórnmálaflokks gegn manni í öðrum flokki.
Vonsndi verður þetta allt fellt niður!

Í Guðs friði

Halldóra.


mbl.is Kröfu Geirs hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spáir minni snjó og meira steypiregni

Sælt veri fólkið!

Bara frá því ég var barn hefur veðráttan mikið breyst.Í minni mínu er að það hafi verið snjór og kalt á vetrum,og sól og gott yfir sumarið.Til marks um það minnist ég afmælis míns í endaðan maí,þá var farið út að leika í sparikjólnum og sportsokkunum.Nú þessi seinni ár hefur maí verið allavega.Man eftir góðu veðri 1987,þá var verulega hlýtt.En hvað víkur þessari frétt þá vil ég heldur rigningu en endalausan þurrk.Við þurfum jú vatnið.En hvað um það okkur er farið að langa í aðeins hlýrra veður.Vonandi þurfum við ekki að bíða lengi,þó spáð sé næturfrosti sumsstaðar.

Guð veri með ykkur!


mbl.is Spáir minni snjó og meira steypiregni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlaupandi konur um allt land.

Komið þið sæl!

Hér kemur frétt um okkur konur.Frétt sem vekur athygli!
Það var stór hópur kvenna sem hljóp í dag í Garðabænum,
langflestar í bláum bol.Þar var ég einnig. Mér finnst alltaf jafn gaman
að fara í kvennahlaupið.Hins vegar er það bara lífsstíll minn að fara út að
ganga daglega.Var svolítið löt við það þegar mikil hálka var í vetur.En nú
er komið að því,dagleg ganga!
Svona dagleg ganga eða hlaup gerir ótrúlega mikið fyrir mann,lundin verður léttari,manni líður vel á eftir.Og það sem er aðal málið hjá mörgun er að við reglulega hreyfingu fara auka kílóin.Og að draga þannig að sér hreint loft, gerir líkama og sál gott.Yfir sumartímann er gaman að ganga þar sem maður getur notið farfuganna og gróðurins.
Ég kvet alla til að gera það að venju að hreyfa sig!

Guð blessi ykkur!

Halldóra.


mbl.is Hlaupandi konur um allt land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til umhugsunar.

Kæru vinir!

Til umhugsunar:

Gefðu Guði tækifæri og hann
mun gera eitthvað stórkostlegt
úr lífi þínu.

Vertu glaður og brostu!
Þú gætir verið engillinn sem
Guð þarf á að halda fyrir aðra
í dag!

Í Guðs friði

Halldóra.


Saga mín-Kraftaverkið!

Góðan dag!
Í dag er uppstigningadagur,þar sem minnst er uppstigningar Jesú Krists.Og nú dvelur hann í himninum við hlið föðurins.
Í Postulasögunni er skrifað um þennan atburð,þar er sagt frá því að Jesús varð uppnuminn að lærisveinunum ásjáandi.Hann var að segja þeim frá því að ,þeir myndu öðlast kraft er heilagur andi kæmi yfir þá og að þeir yrðu vottar hans í Jerúsalem og og allri Júdeu,Samaríu og allt til endimarka jarðarinnar.Þegar hann hafði þetta mælt varð hann uppnuminn að þeim ásjáandi og ský huldi hann sjónum þeirra.Og það segir í textanum að þeir störðu til himins á eftir honum þegar hann hvarf,þá stóðu hjá þeim allt í einu tveir menn í hvítum klæðum og sögðu: Galileumenn hví standið þér og horfið til himins? Þessi Jesús sem varð uppnuminn frá yður til himins,mun koma á sama hátt og þér sáuð hann fara til himins.

Merkileg frásögn.Svo er Jesús mitt á meðal okkar í sínum góða heilaga anda!
Og hann starfar í dag meðal þeirra sem vænta hans.Ein mesta breyting sem hægt er að finna fyrir í lífi sínu þegar Jesús er orðinn frelsari okkar,er þessi einstaki friður,sem er æðri öllum skilningi!
Sjálf hef ég gengið lífsveginn með þá óbilandi trú að Jesús sé með mér, og hjá mér og heyri bænir.Stundum fæ ég bænasvar strsx,en í sumum tilfellum hef ég þurft að bíða lengi,lengi.

Ég á mér sögu eins og við öll.Og ég hef ekki sagt mörgum þessa sögu,enda hef ég ekki áhuga á að tala mikið um mig.Hef því meiri ánægju af að tala um Jesú.

Saga mín er sú að fyrir 48 árum, þá fimm ára glímdi ég við ákveðin veikindi,sem sett hafa mark á mitt líf á ýmsann hátt.Það versta var höfuðverkur sem ég hef haft nótt og dag öll þessi ár.Verkur sem skerti verulega lífsgæði mín.En ég tók þá ákvörðun að láta þetta ekki stjórna mínu lífi,að svo miklu leyti sem það er hægt.

ég hef alla tíð þekkt leið bænarinnar, og það hefur verið mikið beðið fyrir mér.Foreldrar mínir báðu trúarbænir, og móðir mín biður en.Og vinir og trúbræður hafa beðið, og svo auðvitað ég sjálf, maðurinn minn og fjölskylda.

Svo var það í vetur að mér var bannað að taka inn þau verjalyf sem hafa hjálpað mér hvað mest.Og þegar læknirinn sagði þetta þá spurði ég á móti, hvað á ég þá að gera? Hann sagði,þú verður bara að læra að lifa með þetta.
Um leið og ég fór frá honum sagði ég við Guð,nú er komið að þér þú verður að hjálpa mér.Enda þesssi höfuðverkur ekkert venjulegur,í einu orði sagt,bara vondur og af verstu gerð.Síðan hefur tíminn liðið og engin verjalyf tekin.

Um páskana síðustu, var ég undir miklu álagi,þá fórum við að taka eftir mikilli breytingu.Og þau sem þekkja mig best nefndu að augun væru breytt.
Öll sú sára kvöl sem ég hafði búið við hafði byrst í augunum.Frá því ég hætti að taka verkjalyf eru liðnir nærri fimm mánuðir, svo það er komin góð reynsla á þetta kraftaverk.

Langar til að segja frá þessu kraftaverki,sem kvatningu fyrir þau sem eru að biðja Guð um sitt kraftaverk.

Loka orðin verða því,sýnum úthald! Og Biðjum án afláts!

Kærleiks og blessunaróskir!

Halldóra Ásgeirsdóttir.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (31.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband