26.9.2008 | 10:16
Ljóðið sem ég fann.
Góðan dag,gott fólk!
Hef verið að lesa ljóðasafn Davíðs Stefánssonar í morgun,og rekist á margt fallegt.
Hér kemur ein vísa úr Vegamótum,margra erinda ljóði:
Sé ég veg og vörður
vísa upp í móti.
Styrk þarf til að standa,
stikla á eggjagrjóti.
Upp í bláu bergi
blikar óskalindin.
Blessun bíður þeirra,
sem brjótast upp á tindinn.
Mér finnst þessi vísa nokkuð góð og kvetjandi fyrir alla, að gefast ekki upp þó í vörðurnar reki.
Stundum er lífið eins og erfið fjallganga,þar sem við rennum niður tvö skref, þegar við höfum tekið eitt.Og okkur veitir ekki af hjálp og styrk til þess að standast. Og það er svo gott að eiga trúna á Drottinn Guð, sem er með okkur, og er alltaf hjá okkur þó að við tökum ekkert eftir því,þá er hann hjá okkur hljóður,og hjálpar á hverju sem gengur.
Hér er önnur vísa,sem var einmitt tilefni þess að ég fór að lesa ljóðasafnið.
Drottinn himnma og heima,
herra dags og nætur
á þig einan hrópar
allt,sem kvelst og grætur.
Láttu lyði alla
leiðir réttar finna
láttu ljós þitt vera
lampa fóta minna.
Við þekkjum öll mátt rafmagnsins, sem tendrar ljósið. Og ef við förum í koldimmu,þá vitum við best hvað við þörfnumst ljóssins mikið.Þannig er trúin á Guð, sem leiðir okkur og lysir á æfigöngunni.
Kæru vinir! Látum ljós Jesú vera lampa fóta okkar!
Þar til næst,Drottinn blessi ykkur öll!
Kveðja úr Garðabænum
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bloggfærslur 26. september 2008
Um bloggið
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Bloggvinir
-
aglow
-
stingi
-
markusth
-
gunnarasgeir
-
arabina
-
arncarol
-
meyfridur
-
baenamaer
-
brandarar
-
cakedecoideas
-
christiancoaching
-
einargisla
-
fanneyogfjolnir
-
fridrikschram
-
gudnim
-
alit
-
zeriaph
-
drengur
-
eyfeld
-
jonmagnusson
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
krist
-
kketils
-
vonin
-
margis
-
mofi
-
olijoe
-
ragnarbjarkarson
-
ragnargests
-
rl
-
rosaadalsteinsdottir
-
sirrycoach
-
snorribetel
-
sur
-
svala-svala
-
svavaralfred
-
hebron
-
tb
-
valdimarjohannesson
-
icekeiko
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.8.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 79761
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar