Þúsundir af kríum.

Góðan dag kæru vinir!

Ég er alveg heilluð af farfuglunum sem koma trúfastlega ár eftir ár hingað.Mér finnst Guð hafa gert vel að hafa þetta þannig,þá getum við notið þess að sjá þessa fugla.Ég nyt þess líka í botn að gefa fuglunum epli í garðinum mínum.Þeir háma eplin í sig og hyrða upp ef eitthvað fer út fyrir.Mér finnst það reglulega skemtilegt að fylgjast með þeim,svo koma heilu fjölskyldurnar er líður á og foreldrarnir mata ungana. Á dögunum sáum við haga mús koma sér fyrir í eplaberkinum sem þrestirnir voru búnir að hreinsa úr,henni nægði nú bara annar helmingurinn af eplinu,svo lítil var hún.Og hún kom kvöld eftir kvöld.Svo eplið gerði gagn,sem matur fyrir fuglana og skjól fyrir litla hagamús. Einu sinni fór ég inní kríu varp, og það var nú ekki vel séð af tveimur aðgangs hörðum kríum,hinar nenntu ekkert að vera að standa í því að steypa sér yfir mig.Enda stóð ég stutt við. Má til með að nefna það að ég geng oft meðfram Vífilsstaða læknum hér í Garðabæ, og þar er mikið fulalíf, og oft verður göngutúrinn minn að fuglskoðun.Þar er öll flóran allt frá gæsunum og öndum í lóur,spóa og alla hina fuglana.Í garðinn okkar komu litlir gulir og gráir fuglar og sátu góða stund í trjánum, og við höldum að sé gulltoppur.Gæti haldið áfram með fuglasögur,enda mikil áhuga kona um farfuglana,sem rata fram og til baka  ár eftir ár.Og blessuð krían ferðast allra fugla lengst.Ég er alveg heilluð að því hvernig Guð gerði þetta allt svo vel.Og þú lesandi góður ert líka hannaður á teikniborði himinsins!

Með kveðju og blessun!

                                      

                                Halldóra.


mbl.is Þúsundir af kríum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. júní 2010

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.8.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband