Harpa,tónlistarhúsið.

Góðan dag!

Er það ekki merkilegt að í hvert sinn sem ég fer þarna niðureftir,niður á höfn,eins og það hét,þá hugsa ég til gamla tímans og ber hann saman við allt þetta nyja.Þetta risa hús,Hörpuna.Þegar ég var barn vann hann afi minn hjá Kol og Salt. Og í augum barnsins var þetta risa fyrirtæki.Þetta var líka erfiðis vinna fyrir blessaða mennina.Þeir settu kolapokana á vörubíls pallana með berum höndum.Afi minn var mjög líkamlega sterkur maður, og vílaði þetta ekki fyrir sér.Enda eftir sóttur í vinnu meðan hann var og hét.Stundum fórum við fjölskyldan í bíltúr þarna niður eftir og þá átti ég frænda í gamla pakkhúsinu, og við litum stundum inn til hans. Já höfnin hefur tekið miklum stakka skiptum.Mér finnst ég ekki sjá vinnu lúna eldri menn á hafnarbakkanum. Frekar að maður sjái jakkafata klædda unga menn í hvítri skyrtu,ganga að eða frá stórum jeppum. Ég er nú bara kona á miðjum aldri eða rétt rúmlega það ,en hef upplifað þvílikar breytingar að það liggur við að ég verði feimin.Þetta hús á ábyggilega eftir að verða mikið notað og margur maðurinn eftir að hlusta á konserta,og allt þar fram eftir götunum.Hvort mér finnist of mikill íburður  húsinu skal ég ekkert um segja.En það er samt gaman að velta horfnum tímum fyrir sér.

                     Guð veri með þér.

                        Og takk fyrir lesturinn.

                                            Halldóra.


mbl.is Harpan mun skapa mikinn gjaldeyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Man er ég var um átta ára aldur,en það eru tæp fimmtíu ár síðan,þá lék maður sér við kolakranan og fékk oft átölur fyrir það,ekki var til þvottavél á mínu heimili þá einungis bali og þvottabretti.Einnig eftir brottför Kolakranans að þá hékk maður oft við afgreiðslu Togaraafgreiðslunnar og var í smá snúningum,maður á endalausar minningar um þetta hafnarsvæði,og mig minnir að Kol og Salt hafi haft skrifstofur í Garðastrætinu.Það er stórskemmtilegt að fara á Ljósmyndasafn Reykjavíkur,því að þar eru til aragrúi að myndum af þessu svæði og hægt að kaupa myndir þar,takk fyrir þessa færslu.

Númi (IP-tala skráð) 13.3.2010 kl. 23:01

2 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Takk fyrir kommentið Númi!

Hvað eru  rúmlega fimtíu ár,þegar maður rifjar upp "gömlu" dagana?

Það væri gaman ef fleiri létu frá sér heyra um þennan tíma,því minningar

sem þessar eru dyrmætar perlur  liðins tíma.

Kærar þakkir.

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 13.3.2010 kl. 23:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband