7.6.2008 | 11:50
Prófaðu þetta!
Heil og sæl mínir kæru lesendur!
Eitt af því sem Jesús sagði á sínum jarðvistar dögum var: "Frið læt ég yður eftir minn frið gef ég yður.
Ekki gef ég yður eins og heimurinn gefur. Mér varð einhvernvegin hugsað til þessara orða í morgun.
Af því að ég held að margir finni til friðleysis innra með sér,jafnvel þó þeir tali aldrei um það, og allt lítur út fyrir að vera í stakasta lagi .En það er til bót á þessu ástandi.Hún er að meðtaka þann frið sem Drottinn Jesús einn getur gefið.Af því að friður Dottins er æðri öllum skilningi! Og ég kem með þennan pistil um þennan frið núna, af því að þú mátt ekki missa af honum! Friður þessi er fyrir alla. Þig líka!
Við getum verið í því ástandi að það sé mikill ófriður allt í kringum okkur, en sá sem á trúna á Jesú á
þennan frið sem er æðri öllum skilningi innra með sér,og það gerir allt miklu léttara.Í þessu er þessi æðri öllum skilningi" friður fólgin. Allir geta öðlast þennan frið, og hann fæst á einfaldan og ódyran hátt , með bæn! Segði bara í bæn til Jesú, ég vil meðtaka þennan frið frá þér, inn í hjarta mitt.Og ef þú meinar þessa bæn og biður hana reglulega, mun friður hans streyma til þín,örlátlega.
Og það er svo merkilegt að þessi sérstaki friður frá himni Guðs hefur áhrif á allt líf okkar.
Og ef þér finnst betra að tala við Guð, á hressilegan hátt,þá tekur hann því vel þó þú segir:" Jæja Guð, nú þarf ég þennan frábæra frið frá þér inn í líf mitt,gefðu mér hann" Og vittu til þú færð það sem þú biður um , ef bænin er sönn og einlæg.Prófaðu bara!
Um bloggið
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Bloggvinir
- aglow
- stingi
- markusth
- gunnarasgeir
- arabina
- arncarol
- meyfridur
- baenamaer
- brandarar
- cakedecoideas
- christiancoaching
- einargisla
- fanneyogfjolnir
- fridrikschram
- gudnim
- alit
- zeriaph
- drengur
- eyfeld
- jonmagnusson
- bassinn
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kketils
- vonin
- margis
- mofi
- olijoe
- ragnarbjarkarson
- ragnargests
- rl
- rosaadalsteinsdottir
- sirrycoach
- snorribetel
- sur
- svala-svala
- svavaralfred
- hebron
- tb
- valdimarjohannesson
- icekeiko
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Kæra Halldóra, mikið var þetta yndisleg lesning, ég get ekki sagt þér hversu mikils ég met hana.
Knús og þakkir
ps. sjáumst um næstu helgi, er það ekki rétt munað hjá mér.
Linda, 8.6.2008 kl. 08:11
innlitskvitt
Svala Erlendsdóttir, 8.6.2008 kl. 11:20
Sæl Linda!
Það er rétt munað hjá þér, að ég kemst bara aðra hverja viku ,því bóndinn er að vinna og ég bíllaus.
En elsku besta, ekki fara bara þegar ég kemst í kirkju,það er fleira gott fólk þarna!
Fór reyndar í Grensáskirkju í morgun. Friður sé með þér!
Svala! Kærar þakkir! Drottinn blessi þig! Kveðja Halldóra.
Halldóra Ásgeirsdótti (IP-tala skráð) 8.6.2008 kl. 14:37
Sæl Halldóra.
Þakka ég þér þessi orð um friðinn,svo sannarlega er hann velkominn í mitt hjarta. Amen
Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 04:16
Sæll vertu Þórarinn!
Takk fyrir innlitið og friður Guðs sé með þér!
Bestu kveðjur
Halldóra.
Halldóra Ásgeirsdótti (IP-tala skráð) 10.6.2008 kl. 09:09
Góður pistill hjá þér Halldóra, "Ekki gef ég einsog heimurinn gefur" Það er dásamlegt að fela Guði öll sín viðfangsefni og finna hvernig hann mætir inní þau með sinn frið og lausn sem er iðjulega öðruvísi en maður hafði í eigin mætti úthugsað Blessun til þín í sumar og sól
Guðrún Sæmundsdóttir, 13.6.2008 kl. 08:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.