Smá hugleiðing.

Góðan dag!

Ég er svo göð yfir því að fá að njóta sköpunaverks Drottins Guðs.Eitt af því er allur gróðurinn sem herra himins og jarðar hefur útbúið svo fagurlega.Svo eru það blessaðir farfuglarnir, sem koma óra vegu til þess að verpa og búa unga sína undir að fara aftur að hausti ! Þetta finnst mér magnað. Nú það sem af er sumri hef  ég notið þess að horfa á þrastar móður fæða unga sín. Ég set epli út í garðinn minn og svo mætir hún með alla familíuna. Það voru tveir fullorðnir þrestir og fjórir ungar sem hringuðu sig um hálft epli. Þau mötuðu börnin sín af þvílíkri natni og pössuðu að enginn fengi meira eða minna en annar.Og svo voru ungarnir bara eins og hver önnur börn flugust á og stríddu hvert öðru,bara svona eins og hjá okkur mannfólkinu. Ég get eitt löngum tíma við eldhúsgluggan og notið þess að fylgjast með þessari fjölskyldu.Mig grunar þó að það séu fleiri þrastar fjölskyldur sem koma ,þó ég þekki þau ekki í sundur.Það hefur hvarflað að mér að þannig horfi Guð á okkur börnin sín. Gleðjist  með okkur þegar það á við og gráti með okkur þegar það á við.En hann er þarna samt, hjá okkur og með okkur. Og yfirgefur okkur aldrei.Stundum er hugur okkar fullur af allskonar hlutum sem íþyngja en þá er svo gott að hafa Jesú með. Jafnvel þó við förum um dimma dali þá er hann þar.

                Kveð í bili og bið Guð að blessa ykkur.

                                  Halldóra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð

Falleg hugleiðing um Þrastarfjölskylduna. Nóg af fuglum hér í garðinum hjá okkur. dásamlegt að heyra fuglasönginn.

"Enginn getur þjónað tveimur herrum. Annaðhvort hatar hann annan og elskar hinn eða þýðist annan og afrækir hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammón.

Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufullir um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka, né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. Er lífið ekki meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin?

Lítið til fugla himinsins. Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér ekki miklu fremri þeim?

Og hver yðar getur með áhyggjum aukið einni spönn við aldur sinn?

Og hví eruð þér áhyggjufullir um klæði? Hyggið að liljum vallarins, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna.

En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra.

Fyrst Guð skrýðir svo gras vallarins, sem í dag stendur, en á morgun verður í ofn kastað, skyldi hann þá ekki miklu fremur klæða yður, þér trúlitlir!

Segið því ekki áhyggjufullir: ,Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? Hverju eigum vér að klæðast?`

Allt þetta stunda heiðingjarnir, og yðar himneski faðir veit, að þér þarfnist alls þessa.

En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki.

Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning." Matt. 6. 24.-34.

Ég er búin að blogga aldrei þessu vant. Velkomin í heimsókn á bloggsíðuna :-)

Guð veri með þér og þínum

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 2.6.2009 kl. 16:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband