13.4.2011 | 15:51
Hugleiðing.
Set hér inn hugleiðingu út frá Jóh. 5.1-8
Þessi frásaga Bibliunnar af Jesú er mjög sérstök. Í fyrsta lagi er okkur sagt frá þessari sérstöku laug,sem engill Drottinns sté niður í og hrærði vatnið.Og svo segir guðspjallamaðurinn okkur frá því að sá sem fyrstur fór ofan í vatnið læknaðist.Það var einhverskonar lækningar máttur sem bjó í þessu vatni.Og þarna hafa eflaust legið margir við bakkann.Og fólk reyndi að komast fyrst ofan í. Á meðal þessa fólks var þessi ungi maður sem var búinn að vera lamaður í þrjátíu og átta ár.Og hugsið ykkur hvað hann var búinn að vera oft fyrir vonbrigðum,það fór alltaf einhver annar á meðan hann var að mjaka sér áfram.Kannski hafði hann bara hendurnar til að mjaka sér áfram, og kannski ekki einu sinni það.Við vtum það ekki.En allavega þá kom Jesús þarna og þarna lá fjöldi fólks,blindir, haltir, lamaðir sem biðu hræringar vatnsins.Jesús sá þennan mann þar sem hann lá og vissi að hann hafði verið lengi sjúkur..Og Jesús kemur til hans og segir: Villtu verða heill? Hinn sjúki svaraði : Herra ég hef engann til að láta mig í laugina,því meðan ég er að reyna að komast ofan í fer einhver annar á undan mér.Jesú segir við hann:Stattu upp,tak rekkju þína og gakk.Þessi rekkja hefur sennilega verið einhverskonar dína.Jafnskjótt varð maðurinn heill,tók rekkju sína og gekk.
Þessi frásaga af Jesú finnst mér alltaf svo stórkostleg.Hún segir frá manni sem æ ofan í æ fyrir vonbrigðum og enginn rétti honum hjálpar hönd.Hann var einn með sín vonbrigði og kannski þurfti hann að betla sér fyrir mat.Kannski vildu foreldrar hans og fjölskylda ekkert með hann hafa.
Svo kemur Jesús þarna að því er virðist óvænt.Gengur að honum og spyr ,villtu verða heill?Þá svarar hann : Ég hef engann....Þá grípur Jesús inn í þessar kringumstæður og segir,stattu upp,tak rekkju þína og gakk.Jafn skjótt varð maðurinn heill.Við hefðum haldið að maður sem hafi verið lamaður svo lengi þyrfti að átta sig á breytingunum,en þarna kom Jesús og gerði hið ómögulega.Jesús kom mannlega talað inní ómögulegar kringumstæður og gerði hið ómögulega.
Við erum kannski í vonlausum kringumstæðum og okkur líður kannski ekki vel með það.Og þér finnst eins og allir aðri fái bænheyrslur og hjálp frá Drottni,eins og var hjá þessum unga manni.
En gefstu ekki upp,Jesús getur líka gert hið ómögulega fyrir þig.þú átt kannski ástvini sem hafa villst frá Guði, og þú ert að biðja.Biðja,biðja,biðja og ekkert gerist.En verum úthals góð í bæninni.Því jesús getur gert hið ómögulega fyrir þig líka ef þú missir ekki sjónar af honum.
Lífið er stundum stormur í fangi,og við verðum jafnvel þreytt að hafa alltaf mótvind.Og við verðum þreyttar og lúnar,þá er svo gott að muna orðin í Jes. Hvort fær kona gleymt brjóstbarni sínu að hún miskunni eigi lífs afkvæmi sínu.Og þó að þær gætu gleymt, þá gleymi ég þér sant ekki.
Alltaf alla daga ,allar stundir,eru það börnin okkar sem við konurnar erum með efst í huga,velferð þeirra og hamingja.Og okkur finnst það ekki geta verið að móðir geti gleymt brjóstbarni sínu.Hvað þá Jesús, við erum í huga hans eins og börnin eru í okkar huga,Hann hefur augun á okkur , og ég hef þá trú að ef við værum ekki svona trúföst í bæninni,væru hlutirnir jafnvel verri.
Það stendur í orðinu að Jesús sitji við hlið föðurins á himnum hinum sanna tilbeiðslu stað og biðji fyrir okkur!Og á öðrum stað: Hann er upprisinn og er við hægri hönd föðurins og biður fyrir oss.
Segja má að bænin sé að anda að sér anda Guðs.Heilagur andi fyllir okkar andlegu lungu og gerir okkur hress og heilbrigð og gefur okkur eilíft líf.Þeir sem stöðva andardrátt bænarinnar deyja.Þessvegna verðum við að lifa samfélagi við Guð.
Lamaði maðurinn var í þannig ástandi að hann gat hvorki hrópað né andvarpað til jesú.Hann var í svo vonlausum aðstæðum,en þá kom Jesú og gerði hið ómögulega fyrir hann!
Kannski ertu þreytt og jafnvel lasburða og átt erfitt með að setjast niður og finna næðisstund.
Veistu, þá kemur Jesús bara til þín,eins og til þessa unga manns sem lá ósjálfbjarga og gat sig ekki hreyft.Drottinn vill hressa þig og blessa! Og vera með þér í dagsins önn.
Og ég vil blessa þig með blessunarorðunum:
Drottinn blessi þig og varðveiti þig!Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þig!
Og sé þér náðugur! Drottinn upplyfti sínu augliti yfir þig, og gefi þér frið!
Í Jesú nafni Amen.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2011 | 22:58
Lóan komin á Álftanesið.
Komið þið sæl!
Lóan er komin að kveða burt snjóinn,
kveða burt leiðindin ,það getur hún.
Hún hefur sagt mér að senn komi spóinn
sólskin í dali og blómstur í tún.
Hver kannast ekki við þennan fallega sumar söng um blessaða lóuna?
Við fögnum komu far fuglanna,enda vor boðar.
Svo er eitt,gott fólk sem er svo frábært, að Guð hefur sköpunarverkið þannig að fuglarnir ratar
hingað ár eftir ár,verpa og koma ungum sínum upp,svo fara þeir aftur er hausta tekur.Það er stórkostegt verk Skaparans.Og við gleðjumst yfir þessum vinum okkar.
Drottinn Jesús Kristur , vill vera vinur þinn ! Opnaðu hjarta þitt fyrir honum og gerðu hann að þínum vini!
Guð blessi þig!
Lóan komin á Álftanes | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.3.2011 | 11:29
Gullkorn út í daginn!
Sælt veri fólkið!
Sálmur 138....................................................
Ég vil þakka þér af öllu hjarta,
lofsyngja þér frammi fyrir guðunum.
Ég fell fram,sný að þínu heilaga musteri
og lofa nafn þitt sakir miskunnar þinnar og trúfesti
því að þú gerðir nafn þitt og orð meira öllu öðru.
Þegar ég hrópaði bænheyrðir þú mig,
þú veittir mér hugrekki og jókst mér kraft.
Allir konungar jarðar skulu lofa þig ,Drottinn,
er þeir heyra orð af munni þínum.
Þeir skulu syngja um vegu Drottins
því að mikil er dyrð Drottins.
Drottinn er hár en lítur þó til hins lága,
þekkir hinn drambláta í fjarska.
Gangi ég gegnum þrengingar
lætur þú mig lífi halda,
þá réttir þú fram hönd þína gegn reiði óvina minna
og hægri hönd þín bjargar mér.
Drottinn mun fullna verk sitt fyrir mig.
Drottinn,miskunn þín varir að eilífu.
Yfirgef eigi verk handa þinna.
Annað gott veganesti úr orði Guðs sem ég var að lesa í morgun og gott er að hafa í huga
Dæmið ekki svo sð þér verðið ekki dæmd.Því að með þeim dómi,sem þér dæmið,munuð þér dæmd verða og með þeim mæli sem þér mælið,mun yður mælt verða. Matt. 7:1-2
Guð blessi ykkur, og megi þessi gullkorn úr Biblíunni fylgja ykkur út í daginn!
kveðja
Halldóra Lára.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2011 | 11:00
Góð bæn.
Sælt veri fólkið!
Þessi dagur er gjöf frá Guði,raunar er hvert andartak gjöf frá Guði !
Skoðum aðeins það sem stendur í sálmi 118:24
Þetta er dagurinn sem Drottinn gerði,
fögnum og verumglaðir á honum.
Drottinn ,hjálpa þú,
Drottinn, gef þú gengi.
Og sálmur 119:1
Sælir eru grandvarir,
þeir er framganga í lögmáli Drottins.
Sælir eru þeir er halda boð hans
og leita hans af öllu hjarta,
eigi fremja ranglæti
en ganga á vegum hans.
Þ'u hefur gefið skipanir þínar
til þess að þeim skuli hlytt í hvívetna.
Ó, að breytni mín mætti vera staðföst
svo að ég varðveiti lög þín.
Þá verð ég ekki til skammar
er ég gef gaum að öllum boðum þínum.
Ég skal þakka þér af einlægu hjarta
er ég hef numið þín réttlátu ákvæði.
Ég vil gæta laga þinna,
yfirgef mig aldrei.
Kæru vinir!
Þetta er gott veganest út í daginn.
Guð blessi þig!
Kv. halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.2.2011 | 14:10
Til umhugsunar
Sæl og blessuð kæru vinir!
Ætla að deila með ykkur nokkrum hugsunum sem hafa verið að koma upp í hugan í dag.
Þegar Jesús var að kveðja lærisveinana áður en hann fór til himins gaf hann þeim kristniboðsskipun
um að fara út um allann heim og kunngjöra gleðiboðskapinn.Og hann endaði þessa skipun á orðunum
Ég mun vera með ykkur alla daga allt til enda veraldar!Hann hét því að vera með í heilögum anda.
Þá vil ég segja við þig kæri vinur: Kannski er líf þitt erfitt og þú jafnvel veikur og getu lítill.Já og einmana,það geta verið svo margar orsaki fyrir vanlíðan.En þá vil ég hughreysta þig með þessum orðum Jesú ,ég mun vera með ykkur alla daga allt til enda! Ef þú getur skaltu lesa í Biblíunni,allar fallegu sögurnar um hvað hann gerði þær munu blessa þig! Það er líka til ymislegt kristilegt efni sem gott er að lesa.Stuttur göngutúr bætir sálarlífið.Svo er líka svo gott að anda að sér hreinu loft,þannig að stutt útuvera hressir mann ótrúlega mikið.Svo ég nefni eitt í viðbót,þá er það mjög gott fyrir okkur að drekka vatn,og við ættum að gera það meira því það er gott fyrir okkur.Vatnið er mikil blessun Guðs.Bænin til Guðs er sá besti styrkur sem hægt að að hugsa sér,þessvegna skaltu tala við Jesú.
Talaðu um allt í trú við Jesú
trega þinn og kvöl og sorg.
Talaðu um allt sem þráfallt þreytir
þig,og myrkvar hyggju borg.
Guð blessi þig og veri með þér!
Kærleiks kveðja
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.2.2011 | 15:43
Hugsað upphátt.
Sæl og blessuð kæru bloggvinir!
Í dag ætla ég að hugsa upphátt.Þannig er að ég hef oft hugsað um það hvílik snilld það var að skaparinn Sjálfur Guð faðir, skyldi gefa mannkyninu boðorðin 10.Las það einhversstaðar að það hefði hann gert til þess að við sköðuðum okkur ekki,en það er eins og með svo margt,við erum endalaust að brjóta þessar örfáu reglur.Og við gerum okkur að ösnum í staðinn.Ég hef verið að taka sjálfa mig í gegn um tíma og reynt að vanda mig og brjóta ekki þessar reglur.Mér finnst eins og boðorðið,þú skalt ekki ljúgvitni bera, vera eitt það boðorð sem oftast er fallið fyrir.Á dögunum var ég að tala við konu um verð á flíkum á útsölunum.Hún sagðist hafa farið í eina ákveðna búð og verslað dáldið,sem ég bara samgladdist henni yfir að hafa gert,svo fórum við að tala um verðið ,sem ég vissi mjög vel um því ég hafði nýlega farið þar inn, og hún nefdi verð á flík og sagði ákveðna tölu sem ég vissi að gat ekki verið rétt.Hún verslaði fyrir háa upphæð en sagði mér verð sem stóðst engan vegin.En það sem mér fannst svo furðulegt af hverju hún laug að mér.Hún hefði bara getað sagt að þetta hefði kostað sitt eða eitthvað álíka.En hún vissi að nýlega hafði ég farið í aðra búð og keypt ákveðna flíka á mjög lágu verði og kunni kannski ekki við að segja mér sannleikann.En mér var alveg sama hvað þetta kostaði,útaf fyrir sig.Og hún mátti alveg kaupa sér það sem hún vildi. En, útfrá þessu hef ég verið að hugsa um það af hverju þurfum við að ljúga hvert að öðru? Því að um leið og hún laug þarna blessuð konan var eins og það kæmu asna eyru upp með eyrunum hennar.Ég varð einhvernvegin rosalega hissa, og hugsaði um Jesú sem þarf endalaust að horfa upp á börnin sín syndga.
Þetta hljómar kannski eins og ég hafi aldrei fallið í synd,en það er öðru nær,ég er mikill syndari,en ég á líka fyrirgefningu í blóði Jesú, og um tíma hef ég verið að taka sjálfa mig í gegn og reyna að vanda mitt líf til orðs og æðis.
Það eru líka níu boðorð auk þessa sem um er rætt í þetta sinn,en ég læt þetta duga núna, og bryni okkur kristið fólk til þess að vera góðar fyrir myndir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
5.2.2011 | 16:11
Lysa stðningi við Bjarna.
Sæl öll sömul!
Er nokkur ástæða til annars en styðja Bjarna? Ef ég væri skráð í flokkinn þá myndi ég styjahann. Ég hef þá trú að hann sé í þessu embætti af því að Drottinn Guð skapari himins og jarðar vildi það.Og það er nú ekkert smá!Ég trúi því að hann setji fólk til valda og taki fólk frá völdum.Svo finnst mér bara ekkert slæmt að búa mjög nærri félagsheimili þeirri í Garðabænum.Ég nefni þetta fólk og flokkinn yfirleitt er ég rölti þar fram hjá.Ég ætla að fylgjast vel með í þessu Icesave-máli og biðja fyrir þeim sem standa í þessu öllu.Hvort við eigum að borga eða borga ekki,ætla ég ekki að tjá mig um hér,en er örugglega sammála fjöldanum.
Ó Íslands fagra ættarbyggð,
um eilífð sé þín gæfa tryggð,
öll grimmd frá þinni ströndu styggð
og stöðugt allt þitt ráð.
Hver dagur lítil dáðá ný.
Hver draumur rætist verkum í ,
svo verði Íslands ástkær byggð
ei öðrum þjóðum háð.Svo aldrei framar Íslands byggð
sé öðrum þjóðum háð.
Hulda- Emil Thoroddsen.
Með kærleiks kveðju
Halldóra.
Lýsa stuðningi við Bjarna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2011 | 23:15
Breyttir tímar í Kópavogi
Sælt veri fólkið!
Það gleymist í allri þessari orra hríð að Gunnar Birgisson kom hinum nýja Kópavogi á kortið
með þeim fleygu orðum:" Gott að búa í Kópavogi "!
Breyttir tímar í Kópavogi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2011 | 23:01
Uppörfun handa þér.
Friður sé með þér!
Hér á eftir eru nokkrir textar úr Biblíunni sem gott er að lesa sér til uppörgunar og blessunar.
Sálm 34
Ég vil vegsama Drottinn alla tíma,ætíð sé lof hans mér í munni.
Sálm. 33: 18
Augu Drottins vaka yfir þeim sem óttast hann,þeim er vona á miskunn hans.
Sálm. 32:8
Ég vil fræða þig og vísa þér veginn sem þú átt að ganga ,ég vil gefa þér ráð ,vaka yfir þér.
Sálm. 32
Sæll er sá sem afbrotin eru fyrirgefin synd hans hulin .Sæll er sá maður sem Drottinn tilreiknar ekki misgjörð og ekki geymir svik í anda.
Munið að bænin til Guðs getur breytt öllu til góðs!
Guð veri með þér!
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.1.2011 | 23:21
Uppáhalda grænmetisrétturinn minn.
Sæl og blessuð!
Hef stundum sett hér inn uppskriftir ymiskonar. Í þetta sinn er það uppáhalds grænmetisrétturinn minn.
Skerið hvítkál í strimla (magn eftir smekk)
gulrætur (magn eftir smekk)
Fetaostur,og vel af olíunni,kryddið gefur gott bragð.
Setjið grænmetið á pönnu við góðan hita og síðan feta ostinn og olíuna
veltið þessu á heiti pönnunni þar til þetta verður meirt (það fer líka eftir smekk)
Þegar þetta er tilbúið má krydda eftie smekk.
Notið grænmetissósu E-Finnson.
Þetta er í miklu uppáhaldi hjá mér og borða þetta daglega og oft bara hvítkálið eitt og sér í bland við feta ostinn og kryddolíuna.
Verði ykkur að góðu!
Kveðja Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Bloggvinir
- aglow
- stingi
- markusth
- gunnarasgeir
- arabina
- arncarol
- meyfridur
- baenamaer
- brandarar
- cakedecoideas
- christiancoaching
- einargisla
- fanneyogfjolnir
- fridrikschram
- gudnim
- alit
- zeriaph
- drengur
- eyfeld
- jonmagnusson
- bassinn
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kketils
- vonin
- margis
- mofi
- olijoe
- ragnarbjarkarson
- ragnargests
- rl
- rosaadalsteinsdottir
- sirrycoach
- snorribetel
- sur
- svala-svala
- svavaralfred
- hebron
- tb
- valdimarjohannesson
- icekeiko
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 79592
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar