18.1.2011 | 21:29
Bað fyrir einingu.
Goðan dag! Reyndar er þessi dagur að kvöldi kominn,en ég heilsa ykkur öllum í Drottins nafni.
Þetta framtak Rússnesku rétttrúnaðar kirkjunnar,er mjög gott.Og opnaði fyrir mér nyja syn á verk Guðs.Og að það ber að þakka fyrir hafið,sem fært hefur heiminum öllum björg í bú frá upphafi vega.Auðvitað hefur hafið líka aðra hlið,en bara þetta að þakka Skaparanum er frábært og ég man frekar eftir að þakka fyrir vatnið/hafið! Svo heldur dagskráin áfram og við erum öll velkomin á þessar stundir. Ég verð á einhverjum þeirra.
Svo langar mig til að minna okkur öll á að biðja til höfundar lífsins Drottins Guðs.Bæn réttláts manns megnar mikið!
Verið Guði falin
Halldóra.
![]() |
Bað fyrir einingu á fjöllum og í sjó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2011 | 00:25
Forn islenska.
Sæl veri fólkið!
Hef verið að glugga í Nýjatestamenti Odds, og ég hef yndi af að lesa þetta gamla íslenska mál. Í Opinberunarbókinni stendur:" Sjá, ég lét fyrir þér opnar dyr, og enginn fær þær aftur látið" En á tungumáli vorra daga er þetta svona " Sjá, ég stend við dyrnar og kný á" Mér finnst frábært hvað það hefur verið mikið lagt upp úr að þyða orð Guðs.Svo að allar kynslóðir gætu átt sitt Guðs orð á sínu tungumáli.En þetta vers sem fjallar um það að Jesús er að banka á hjarta dyr okkar er sannleikur.Hann er að banka á þínar hjartadyr! Ég skora á þig að gefa Guði tækifæri.Hver sem þú ert og hvar sem þú ert þá hefur Guð áhuga á að verða vinur þinn!
Með kveðju og Guðs blessun
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2011 | 16:13
Níu ára barn með skólatösku vísað úr strætó.
Góðan dag!
Ég er alveg vissum hvernig ég hefði leyst þetta ef ég hefði verið vagnstjórinn. Sagt, allt í lagi vinur fáðu þér bara sæti og brosað. Ég er líka viss um að vagnstjórinn vildi gera rétt,en þegar barn með skólatösku bíður eftir strætó á þessum tíma gerir maður bara ekki svona.Svo finnst mér þessi strákur vera duglegur að koma sér sjálfur á tveimur jafnfljótum í skólann.Hann á örugglega eftir að vera úrræða góður og ganga vel í sínu.Strætó hefur beðist afsökunnar og það er vel. Þá er hægt að syngja eins og hér í den,allir með strætó,allir með strætó !
Mig langar til að kvetja alla foreldra að biðja fyrir börnunum sínum og kenna þeim bænir.Því það koma örugglega upp einhverjar stundir í lífi barnanna okkar að þeim finnst gott að þekkja þann sem er æðri og sterkari en allar kringumstæður.
Góðar stundir og friður sé með ykkur!
Halldóra.
![]() |
Níu ára barni með skólatösku vísað úr strætó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.1.2011 | 16:18
Sá náunga henda út logandi sígarettu.
Komið þið sæl!
Í dag þegar ég var að keyra ,opnaði bílstjóri bílsins á undan mér rúðuna og hélt á sigarettu góða stund áður en hann sleppti henni.Þá hugsaði ég með mér að þannig verða sinueldarnir! Ég væri fylgjandi því að það yrði bannað að reykja við akstur, og þá væri þetta úr sögunni.
Góðar stundir!
Halldóra.
![]() |
Kveikti sígarettustubbur bálið? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.1.2011 | 22:20
Við áramót.
Góðan dag kæru vinir!
Nú eru nýliðin áramót og þá lítum við gjarnan um farinn veg og hugsum jafnvel, hvernig get ég gert betur.Sumir strengja áramótaheit og geta jafnvel náð settu marki.Oft er það tengt líkamsrækt,kanski af því fólk borðaði yfir sig um hátíðirnar.Aðrir eru með önnur markmið. Ég gerði áramótaheit hér á árunum áður um að lesa Biblíuna á einu ári, og það tókst, og af því það tókst svo vel gerði ég slík heit aftur og aftur.Þessi áramótaheit okkar fjalla oftast um að sigra sjálfan sig. En stundum gefumst við upp og heitið verður að engu.Það er bara allt í lagi því við erum ekki að tapa fyrir neinum öðrum.
Mig langar til að segja þér frá elsku Drottins Guðs.Hann mun aldrei gefast upp á þér! Þó að þú klárir ekki áramótaheitið eða finnist þú ekki verður elsku Guðs,þá er það alveg klárt að Guð elskar þig! Hann gaf Jesú son sinn í dauðan fyrir þig. Og Jesús vill vera vinur þinn og frelsari! Hann vill gefa þér frið sem enginn annar getur gefið og ekkert getur gefið þér.Ef þér finnst þú vera of syndugur fyrir kærleika Guðs þá segir hann: Barnið mitt syndir þínar eru þér fyrirgefnar!
Kæri vinur! Gefðu Guði sjens! Láttu það tækifæri ekki framhjá þér fara, því lífið með Jesú er líf í fullri gnægð.Og það er styrkur að hafa Guð með í för!
Í kærleika Krists,
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.12.2010 | 14:03
Jólakveðja
Jólakveðja!
Hér skal haldin hátíð ein,
hana ber að blessa.
Allir vilja jólasvein
og snjó um hátíð þessa.
Sumir skunda í kirkjurnar
sálma vilja syngja.
Það mun blessa sálirnar
þá kirkjuklukkur hringja.
h.á.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2010 | 16:26
Eitthvað gott á eftir að gerast.
Heil og sæl!
Hér er gömul vísa eftir Friðrik Jónsson land póst
Hugur berst um hyggjusvið
hjartað skerst af ergi.
Þegar mest ég þurfti við
þá voru flestir hvergi.
Þannig er það nú stundum manna á meðal,en þá er það besta sem hægt er að hugsa sér, að eiga trúna á Drottinn Jesú.Sá sem á trúna á hann er aldrei einn!Hann sagði nefnilega, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar ! Og þessi frábæru vers úr sálmi 23
Jafnvel þó ég fari um dimman dal,óttast ég ekki því þú ert hjá mér! Og munum það alltaf að hver dagur ber með sér von,von um að það góða og eitthvað betra eigi eftir að koma.Því að eitthvað gott á eftir að gerast í dag!
Munum bara að Jesús er til staðar!
Kærar kveðjur
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.12.2010 | 16:43
Verður rekstri Sólheima hætt?
Heil og sæl!
Er það ekki skrytið hvað við erum mikið háð peningum? Stundum hef ég leitt að því hugann hvað það væri gott ef engir peningar væru til.Og þeir þarflausir.En þannig eru nú hlutirnir aldeilis ekki. Hvað Sólheima varðar held ég að það sé bara ekki hægt að sniðganga þessa stofnum, og þau sem minnst meiga sín okkar á meðal.Trúi ekki öðru en að það komi lausn.Fólkinu sem þar byr óska ég alls hins besta og bið þess heitast að þau þurfi ekki að lifa við þann ótta sem óneitanlega fylgirslíku óöryggi. Þau sem þar búa hafa mörg verið á þessum stað frá barns aldri,og eiga aðeins gott skilið. Ég hef komið á þennan stað og keypt eitt og annað af þeim,þetta fólk er snillingar á sínu sviði.Vonandi kemur lausnin fljótt!
Með kveðju og Guðs blessun!
Halldóra.
![]() |
Verður rekstri Sólheima hætt? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2010 | 16:22
Tómas sestur á tjarnarbakkann.
Sæl og blessuð!
Einhvernvegin datt mér í hug er ég sá myndirnar sem fylgja þessari frétt,textinn í laginu Vorkvöld í Reykjavík. "Hjúfra sig á bekkjunum halir og fljóð"
Svo er bara allt gott sem gerir borgina fallegri!
Ég á mjög margar skemtilegar minningar frá því er ég var barn og fékk að fara niður á tjörn með bræður mína,enda stóra systir þeirra Þá var mér treyst til að fara í strætó nr. 2 sem hét Grandi - Vogar og stoppaði við Langholtskirkju og var steinsnar frá bernsku heimili okkar.Og venjulega fylgdi poki af brauði handa öndunum sem mamma hafði safnað. Já þetta eru dásamlegar minningar! Og ég man hvað það var gaman að gefa öndunum brauðið,enda man ég ekki eftir neinum máfum,bara einni og einni dúfu sem nældi sér í milsnu.Stokkendur voru í meiri hluta.Það var ekki fyrr en löngu seinna að aðrar tegundir fóru að sjást.Man þó vel eftir stóru hvítu svönunum sem teigðu sinn langa háls til að vera fyrr til að ná brauðbitanum.Og ég held að gráu álftirnar hafi ekki heldur verið mjög margar.Lýsingarnar eru eins og maður hafi verið ungur í fornöld en þetta var sennilega á árunum 1967 eða 1968 þá var borgarstjóri vor sennilega nýfæddur. Ég vona bara að margir eigi eftir að eiga jafn skemtilegar minningar frá tjörninni í Reykjavík.
Guð blessi ykkur daginn !
Kveðja úr Garðabæ
Halldóra.
![]() |
Tómas sestur á Tjarnarbakkann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2010 | 23:33
Smá köku uppskrift.
Komið þið heil og sæl!
Nú fer að koma að jólabakstri hjá þeim sm nenna að halda í gömlu hefðirnar.Ég er nú þegar búin að baka tvær sortir.Og hér er sú þriðja sem eg ætla að gera á næstunni.Og vil leyfa ykkur að njóta með mér.
Engiferkökur.
500 gr hveiti
500 gr. dökkur púðursykur
250 gr smjörlíki
2 egg
1 tesk lyftiduft
1 tesk matarsódi
1 tesk engifer
1 tesk negull
1 teskkanill.
Búa til litlar kúlur.Þrysta aðeins á.
Bakaðar neðarlega í ofninum á 180-200
í ca 10 mín.
Verði ykkur að góðu.
Kær kveðja í bili
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Bloggvinir
-
aglow
-
stingi
-
markusth
-
gunnarasgeir
-
arabina
-
arncarol
-
meyfridur
-
baenamaer
-
brandarar
-
cakedecoideas
-
christiancoaching
-
einargisla
-
fanneyogfjolnir
-
fridrikschram
-
gudnim
-
alit
-
zeriaph
-
drengur
-
eyfeld
-
jonmagnusson
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
krist
-
kketils
-
vonin
-
margis
-
mofi
-
olijoe
-
ragnarbjarkarson
-
ragnargests
-
rl
-
rosaadalsteinsdottir
-
sirrycoach
-
snorribetel
-
sur
-
svala-svala
-
svavaralfred
-
hebron
-
tb
-
valdimarjohannesson
-
icekeiko
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar