17.11.2010 | 20:47
Rannsökuðu Eyjafjallajökul
Sælt veri fólkið!
Mér finnst alltaf jafn merkilegt þegar það verður eldgos.Og finnst það alltaf jafn mikð undur.En eldgos eru ekki bara auglysing fyrir landið ,þau eru líka rannsóknarefni eins og fréttin greinir frá og eru í eðli sinu stórhættuleg.Eins og gosið í Heimaey 1973 En það var samt mikil blessun yfir öllum, og fólk komst í burtu og mannskaðar urðu ekki.Ætla ekki að fara út í smá atriði sem skipta máli eins og það að bátar voru í höfn þessa nótt.Eyjafjallajökull gerði mikinn usla fyrir bændur og svo ekki sé minnst á flug yfir Evrópu,en svo snéri Drottinn þessu upp til góðs og búskapur er ennþá á svæðinu.Merkilegt er þó að gras spretta jókst og askan gerði sprettunni gott.Svo koma einhverjir spekingar fram í fréttum og segja okkur að gosin hafi verið tvö,annað í Fimmvörðuhálsi og hitt í Eyjafjallajökli.Þurfti nokkuð einhverja spekinga í útlöndum til að segja okku það?
Friður sé með þér og Guð blessi þig!
Halldóra.
![]() |
Rannsökuðu Eyjafjallajökul |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.11.2010 | 14:29
Vendu þig á að gera hið góða svo allt sé gott sem frá þér kemur.
Komið þið sæl!
Það er merkilegur dagur í dag,það er kristniboðsdagurinn,og feðradagurinn.
En að öðru. Það er svo merkilegt hvað við mennirnir erum vanaföst,sitjum gjarnan alltaf í sama sætinu í kirkjunni eða allavega sömu megin.Leggjum bílnum okkar helst á sömu slóðum þegar við förum í vinnu .Sumir klæðast alltaf sama litnum og breyta vart útaf því.Sjálf stend ég mig að því að vera helst í brúnum fötum hér heima,en klæðist öðrum litum þegar ég fer eitthvað.Þetta er bara vani. Hvers vegna er ég að taka þetta fyrir? Jú vegna þess að ég er að koma með tillögu að góðum vana, og það er að lesa Guðs orð,eiga bænasamfélag við Guð og sækja kirkju okkur til hressingar og styrktar fyrir trúna okkar.Margar kirkjur eru með svo góða fræðslu í Guðs orði sem við skulum nýta okkur.Gerum það að reglu eða vana í lífi okkar! Samfélag mitt við Guð er í nokkuð föstum skorðum , og er mér meira en vani, það eru unaðs stundir frammi fyrir almáttugum Guði,sem ég vil ekki vera án.Og ég hvíli frammi fyrir Guði og leyfi honum að koma með sin frið og fylla á mína andlegu tanka.Og ég finn þann styrk sem ég fæ frá himni Guðs. Kvet ykkur líka til að gera svona stundir að vana í lífi ykkar.
Og af því að það er feðra dagurinn kvet ég feður til að kenna sínum börnum bænir og stuðla að kristilegri fræðslu á heimilinu.Það verður bara til blessunar.Gerið það að venju eða vana daglega!
Á einum stað í Guðs orði stendur: Vendu þig á að gera hið góða svo allt sé gott sem frá þér kemur.
Höfum þessa góðu kvatningu með okkur út í daginn.
Verið Guði falin!
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2010 | 12:57
Ein af gömlu perlunum.
Guð gefi þér góðan dag!
Ég er ein þeirra sem hafa gaman að "gömlu sálmunum" eins og þeir voru sungnir hér áður fyrr. Ég kann ógrynni af þessum perlum sem sjaldan heyrast nú,og set hér einn góðann á síðuna,sem er eftir Lewí Pethrus í þyð. Magnúsar Guðmundssonar.Hann er líka í Hörpustrengjum þessi sálmur, og er því aðeins öðruvísi þýddur.
Fyrirheit Guðs eigi fyrnast
Fölskvast ei orð hans snjöll.
Jesú með helstríði hörðu
hefur þau staðfest öll.
Kór:Himinn og jörð þó hrynji
hálsar og fjöllin stynji.
Trú sú gegn böli brynji
bregðast ei fyrirheit.
Farðu'að sem Abraham forðum
Festu á himni syn.
Stjörnurnar tindrandi teldu
trúin svo aukist þín.
Trúðu er svartast að syrtir
sólin ei horfin er .
Liðinni'að lítilli stundu
Ljómandi skín hún þér.
Trúðu eer heimur þig hatar
Hylli'hans og sæmd er tál.
Jesús í stormum þig styður
styrk veitir þreyttri sál.
Trúðu, er vinirnir víkja
Veikist þitt afl og þor
Jesús hann fer eigi frá þér
Fylgir þér sérhvert spor.
Trúðu í einu og öllu.
Innan skamms heim þú fer .
Skiptist það trúin í skoðun,.
Skínandi dyrðin er.
Innihalds ríkur texti sem segir svo mikið.
Guð blessi ykkur daginn!
Bestu kveðjur
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2010 | 14:22
Ímynd Íslands
Komið þið sæl!
Hvað sem hver segir þá vil ég blessa landið okkar og þakka Guði föður himins og jarðar fyrir þetta fallega land.Við höfum lent í hremmingum og við erum öll að takast á við það. En ég vil þakka fyrir allt það góða sem ég hef hlotið.
Ísland ögrum skorið
eg vil nefna þig.
Sem á brjóstum borið
og blessað hefur mig.
Fyrir skikkan skaparans
sértu blessað,blessi þig
blessað nafnið hans.
Góðar kveðjur til ykkar allra og Guð blessi ykkur!
Kveðja Halldóra.
![]() |
Ímynd Íslands í molum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.11.2010 | 13:34
Áhugamálin mín.
Komið þið blessuð og sæl!
Hef verið að hugsa um áhuga málin mín,hvað mér finnst gaman að gera.Og ég komst að því að ég hef áhuga á svo mörgu.Og mér finnst skemtilegt að lifa! Ég hef áhuga á heilsurækt og stunda hana á minn hátt,og ég hef áhuga á að elda góðann mat.Svo hef ég líka mikla unun af að elda og borða það sem við köllum hollari mat. Og mér finnst gaman að baka,mér finnst ofboðslega gaman að þrífa og taka til.
Og mér finnst líka mjög gaman að vera með fjölskyldunni minni.Þau eru örugglega efst í þessum lista. Svo hef ég mjög miklar mætur á að þjóna á Guðs ríkinu, og tala við fólk og leiðbeina og biðja með því. Og ég elska að syngja falleg lög,hef reglulega gaman af gömlu sálmunum sem voru sungnir hér áður fyrr.Mér finnst líka mjög gaman að fara í ferðalög og skoða landið mitt. Og fuglaskoðun er líka áhuga mál, einnig safna ég sérkennilegum mannanöfnum.Og ég prjóna og sauma út. Og mér finnst líka gaman að lesa Biblíuna og kafa ofan í textann. Já þetta er dá góður skamtur fyrir konu eins og mig!
Nú ætla ég að segja þér frá áhugamáli Drottins Guðs: Hann þráir það eitt að þú glatist ekki og gefir honum líf þitt. Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son sinn eingetinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf.
Drottinn blessi þér daginn!
Kærleiks kveðja
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.10.2010 | 14:27
Köllunin.
Blessuð og sæl kæru vinir!
Í dag langar mig til að gefa ykkur orð úr heilagri ritningu okkur til uppörfunar.Það er tekið úr 2. Tímóteusarbréfi 1: 9 Hann hefur frelsað okkur og kallað heilagri köllun,ekki eftir verkum vorum heldur eftir sinni eigin ákvörðun og náð sem oss var gefin fyrir Krist Jesú frá eilífum tímum.
Er þetta ekki frábær uppörfun fyrir okkur sem viljum vera lærisveinar Drottinns? Að vera kölluð af Drottni Jesú til fylgdar við hann ekki af því hve frábær við erum heldur eftir hans eigin ákvörðun.Og sú ákvörðun er frá því í upphafi .Það er engin skyndi ákvörðun hans ,þetta er ákvörðun sem hann hefur búið okkur frá eilífum tímum,sem þyðir um leið og himinn og jörð urðu til ! Þú hefur allann þennan tíma verið til í hjarta og huga Drottins af því að hann elskaði þig og þráir að vera vinur þinn! Þú skiptir hann máli,Drottinn vill ekki að þú missir af eilífðinni á himnum með honum.Og daglega bíður hann eftir að heyra í þér! Hann vill eiga samfélag við þig, og vera með þér í þínu lífi,uns vegferðinni líkur.Komdu til hans í dag og byrjaðu, eða endurnýjaðu kynnin við vin þinn Jesú Krist.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.10.2010 | 13:57
Sérkennileg mannanöfn
Sælt veri fólkið!
Ég hef um ára bil verið haldin þeirri furðulegu dellu að safna sérkennilegum manna nöfnum.Og var reyndar búin að koma mér upp spjaldskrá yfir þessi nöfn.Ástæðan fyrir þessu er að ég vann eitt sinn þar sem ég heyrði mörg sérstök nöfn og þurfti að hringja í fólk sem bar /ber þessi nöfn. Í mínu tilviki þá fylgir hverju nafni saga um það hvernig ég heyrði það.Sennilega er nafnið Munnveig það sem mér finnst eiginlega vera það nafn úr safninu,sem enginn ætti að bera.Og vonandi er það ekki til í dag.En þessi nöfn sem fréttin greinir frá eru að mínu mati ekki falleg.Er einhvernvegin á því að við eigum að gefa börnunum okkar íslensk nöfn,ef börnin eiga foreldra úr sitthvoru landinu,get ég fallist á að barninu sé gefið íslenskt nafn og annað nafn tengt hinu landinu. Svo hef ég hiitt fólk á fullorðins aldri sem hefur liðið fyrir nafnið sitt alla æfi,af því að þaðvar svo auðvelt að gera grín að því og fara illa með.
Nafnið okkar er sú eign sem mun fylgja okkur alla æfi, og því er betra að við vöndum til þeirra. Forn karlarnir báru vissulega furðuleg nöfn,eins og Kálfur Álfur og fleiri.Hvað um það,okkur ber að gefa barninu okkar fallegt nafn. Langa langa afi minn bar nafnið Ikkaboð og ég veit ekkert um hvernig honum leið með það.En ef þið eruð með einhver sérkennileg nöfn vinsamlega leyfið mér að fá þau í safnið með því að kvitta,því her er mannanafna safnari á ferð!
Guð blessi ykkur daginn!
Kveðja úr Garðabæ
Halldóra.
![]() |
Lér samþykktur en Cæsar hafnað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2010 | 19:54
Ekki missa af þessu !
Blessuð og sæl gott fólk!
Mig langar til að nefna það hér,hversu gott það er að eiga innri ró.Og núna á þeim tímum sem við lifum eru margir reiðir og líður illa.Við finnum öll fyrir því að það hefur harnað á dalnum.En ég vil benda á góða leið til þess að öðlast innri frið! Og það sem meira er það kostar ekki krónu! Það sem ég er að tala um er trúin á Jesú Krist. Það hefur kanski ekki verið "inn" að tala mikð um Guð og trúna,og þessvegna hafa svo margir misst af miklu og góðu lífi,lífi í fullri gnægð.Ég sjálf hef mikla og góða reynslu af því að trúa á Guð og þegið kraft og styrk frá honum.Og það er sá þáttur í lífi mínu sem ég vil ekki missa! Besta leiðin til þess að prófa þessa leið er að setjast niður í ró og næði og biðja Guð um að gefa sér himneskann frið.Þetta hljómar kanski furðulega, en er heilagur sannleikur.Bendi hér með á þessa góðu leið,sem hjálpar.Biddu Guð líka að vera með þér í öllum kringumstæðum og þú munt finna fyrir því að hann er með þér,enda er hann hjálparinn andinn heilagi,sem heyrir bænir.Ef þú gerir þetta daglega muntu eins og ég alls ekki vilja sleppa þessu. Fel Drottni vegu þína of treystu honum og hann mun vel fyrir sjá.
Kærleiks kveðjur úr Garðabæ
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.10.2010 | 16:30
Pistillinn minn í dag.
Komið þið sæl!
Hef verið að lesa í Jakobsbréfinu, ohér eru mögnuð orð í 5 kaflanum:
Hlustið á þér auðmenn,grátið og kveinið yfir þeim bágindum sem yfir yður mun koma.
Auður yðar er orðinn fúinn og klæði yðar eru möletin,gull yðar og silfur er orðið ryðbrunnið
og ryðið á því mun verða yður til vitnis og eta hold yðar eins og eldur.Þér hafið fjársjóðum safnað á síðustu dögum.Launin hrópa, þau sem þér hafið haft af verkamönnum,sem slógu lönd yðar, og
köll kornskurðarmannanna eru komin til eyrna Drottins hersveitanna.Þér hafið lifað í sællífi á jörðinni og í óhófi .Þér hafið alið hjörtu yðar á slátrunardegi.Þér hafið sakfellt og drepið hinn réttláta.Hann veitir yður ekki viðnám.
Það þarf nú ekkert sérstaklega að útskyra þessi alvarlegu orð heilagrar ritningar,en það hefði verið betra að þeir sem fyrir öllum vandræðum þjóðarinnar stóðu hefðu farið eftir Guðs orði.
Látum þessi alvarlegu orð tala til okkar og verum vís í okkar eigin ákvörðunum,því að áhyggjur fara illa með okkur.Læt þetta nægja að sinni.
Guð veri með okkur öllum!
Kveðjur úr Garðabæ
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.9.2010 | 00:37
Það er eitt sem ekki hefur komið fram
Komið þið sæl!
Það er einn flötur á þessu máli sem ekki hefur komið fram,en er samt svo mikil blessun fyrir Íslensku þjóðina og það eru kveðju orð Geirs Haarde í ræðunni frægu:Guð blessi Ísland! Ég held að þessi orð fyrrum forsætisráðherrans hafi skipt sköpum í því að ekki fór verr.Hann fól Guði Föður landið okkar með þessum orðum! Og ég sendi honum mínar bestu þakkir fyrir.Það hafa margir gert grín að þessu,en hann er vitur maður og veit hver besta leiðin til hjálpar er í erfiðum málum,sú leið er að leggja allt í Guðs hendur og biðja hann að blessa!
Mér fannst hann standa sig vel í sjónvarps viðtölunum í kvöld,og kom fram af æðruleysi þrátt fyrir þessa ömurlegu niðurstöðu. Og að lokum þetta ég bið Guð að gefa honum góða heilsu og kraft til að standa í því sem framundan er. Og vitna hér í Davíðs sálminn góða Fel Drottni vegu þína treystu honum og hann mun vel fyrir sjá!
Með blessunar óskum fyrir land og þjóð
Halldóra.
![]() |
Þungbær og erfið niðurstaða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Bloggvinir
-
aglow
-
stingi
-
markusth
-
gunnarasgeir
-
arabina
-
arncarol
-
meyfridur
-
baenamaer
-
brandarar
-
cakedecoideas
-
christiancoaching
-
einargisla
-
fanneyogfjolnir
-
fridrikschram
-
gudnim
-
alit
-
zeriaph
-
drengur
-
eyfeld
-
jonmagnusson
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
krist
-
kketils
-
vonin
-
margis
-
mofi
-
olijoe
-
ragnarbjarkarson
-
ragnargests
-
rl
-
rosaadalsteinsdottir
-
sirrycoach
-
snorribetel
-
sur
-
svala-svala
-
svavaralfred
-
hebron
-
tb
-
valdimarjohannesson
-
icekeiko
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar