Sporin í sandinum.

Góðan dag gott fólk!

MIG DREYMDI MIKINN .Mig dreymdi mikinn draum:Ég stóð

með Drottni háum tindi á

og horfði yfir lífs míns leið

hann lét mig hvert mitt fótspor sjá.

 

Þau blöstu við þá brosti hann

" Mitt barn" hann mælti,sérðu þar

ég gekk með þér og gætti þín

í gleði og sorg ég hjá þér var"

 

Þá sá ég fótspor frelsarans

svo fast við mín á langri braut.

Nú gat ég séð hvað var mín vörn

í voða,freistni, raun og þraut.

 

En annað sá ég síðan brátt:

Á sumum stöðum blasti við,

að sporin voru aðeins ein,

-Gekk enginn þá við mína hlið?

 

Hann las minn hug . Hann leit til mín

og lét mig horfa í augu sér:

Þá varstu sjúkur,blessað barn,

þá bar ég þig á herðum mér"

 

         Sigurbjörn Einarsson biskup


Merkilegur hurðarhúnn,opnast að innan.

Góðan dag!

Í 5. Mósebók  31:6 stendur:

Drottinn mun sjálfur fara fyrir þér,hann mun vera með þér,hann mun eigi sleppa af þér hendinni né 

yfirgefa þig. Óttast þú eigi og lát eigi hugfallast.

Og í Jes.41:10 stendur: Óttast þú eigi, því ég er með þér. Lát eigi hugfallast, því að ég er þinn Guð.

Ég styrki þig ,ég hjálpa þér ,ég styð þig með hægri hendi réttlætis míns.

Við öll mætum allskonar raunum á lífsleiðinni, og það er bara lífið sjálft.Ef við reyndum aldrei neitt værum við ekki þeir karakterar sem við erum . Það eru einmitt erfiðleikarnir sem gera okkur  að  því fólki sem við erum.Og nú er ég komin að því mikilvæga,það er sama hvað við göngum í gegnum, Drottinn Guð hefur alltaf gætur á okkur.Hann mun ekki sleppa af okkur hendi sinni!

Þegar þú grætur, og enginn sér tárin þín,grætur Jesús með þér. Og ef þú finnur til einhversstaðar 

finnur Jesús til með þér.Ef þú ert einmana,þá ertu ekki einn eða ein Jesús er hjá þér!

Ef þér finnst þetta flókið,þá er hér útskyring á því. Þetta er nefnilega ekki flókið. Leggðu höndina þína í hönd Drottins. Segðu nafnið Jesús, aftur og aftur ef með þarf.Og friður Drottins mun koma yfir þig.Friður sem er æðri öllum skylningi.

Ef þér finnst þú ekki verður að fá að koma þannig fram fyrir Drottinn,þá er hann ekkert að erfa gamlar syndir eða mistök,hann dó fyrir  það allt, og nú áttu nytt upphaf. Hið gamla er farið.

Jesús er að banka á hjartadyr þínar,en það merkilega er að húnninn er þín megin!

Hvað ætlar þú að gera?

 Þar til næst.

                          Guð blessi ykkur öll!

                                          Halldóra.


Gott til að gleðja ástina sína!

Heil og sæl!

Ætla að gefa ykkur uppskrift af  veislu rétti sem ég geri til hátíðarbrygða af og til.

Makkarónukökur, raðað i botninn á  mótinu 25-30 stk, eftir stærð skálarinnar

ávaxtasafa helt yfir.

Þá er pela af rjóma (þeyttur)

2 eggjarauður

60gr flórsykur hrært saman

gott er að raspa rjómasúkkulaði í blönduna

Þetta er smurt yfir makkarónurnar

svo er ávöxtum eftir smekk raðað ofan á 

t.d. jarðarber, bláber,vínber,kíví.

Ef fólk villhafa þetta sætara þá er 

marens brotinn niður yfir rjómann

og ávöxtunum raðað þar ofan á.

Látið standa í kæli ca.3 tíma.

Til skreitingar hef ég notað bara íssósu

og sprautað yfit þetta eftir smekk.

Þetta er einfalt og gott.

Þeir sem vilja geta bleitt makkarónurnar með víni

en það geri ég ekki.

Það má líka nota aðra ávexti ,bara nota hugmyndarflugiðSmile

Þægilegt fljótlegt og gott.

Gott fyrir strákana að gleðja elskuna sína um helgina

með þessum rétt.Munið bara að hafa þetta í flottri skál,

bara til  að gleðja elskuna ykkar.

Biðjið hvert fyrir öðru, og felið hvert annað Guði.

Munið að biðja fyrir börnunum ykkar, og fela þau Guði til vermdar og varðveislu.

Náð og friður margfaldist ykkur til handa!

                                     Kveð ykkur með hinni fögru íslensku kveðju

                                                     Bless

                                                             Halldóra.


Draumurinn á Þingvöllum.

Sæl verið þið!

Ætla að setja hér inn draum sem mig dreymdi. Fannst ég standa við Almannagjá Þingvalla megin.

Hinum megin við gjána sá ég Geir Haarde og Ingibjörgu S. Gísladóttur,Geir kraup við gjána og dró upp úr gjánni furðulega hluti eins og Alþingishúsið,Stjórnarráðið og fleiri slíkar stofnanir, sem ég í draumnum gerði mér ekki grein fyrir hver eru.Svo sá ég Geir toga upp úr gjánni ymsa ráðamenn þjóðarinnar.Árna Mattiesen,Þorgerði Katrínu og Bjöörgvin G. Sigurðsson kannaðist ég vel við.Það var fleira fólk komið upp úr gjánni sem ég þekkti ekki.Svo voru einhverjir sem Geir dró upp með einhverskonar snörur um hálsinn,hann bysaði við að leysa af þessu fólki snörurnar áður en hann síðan dró þetta fólk upp.Mín megin sá ég seðlabankann í fjarska og þótti hann standa við sjóinn þar sem hann er.En mér stóð einhvernvegin stuggur af þessu ljóta húsi.Og mér þótti það vera í einhverri biðstöðu af því að einhver þar vildi fá Íslenska skjaldarmerkið á seðlabankann.Það sem ég dáðist mest að var hvað Geir var natinn við að draga allt þetta fólk og húsin upp úr gjánni,þó að honum bæri til þess engin skylda.Hann var í mjög fallegum jakkafötum með fallegt háls bindi og mér þótti hann vera með bindisnælu úr gull.Landslagið  á Þingvöllum þótti mér vera líkast því að þar væri engin mannvirki,hús eða vegir.Bara íslenska hraunið með mosa breiðum og vatnið á sínum stað.

Ég er ekkert sérstaklega pólitísk því finnst mér hálf furðulegt að mig dreymi slíkan draum, og bið ykkur um hjálp til að ráða í hann.

Ég hef þó lagt mig fram um, að biðja fyrir þessum ráðamönnum og konum í þeirra starfi.

Veit að bænin megnar mikið, og við þurfum öll að biðja fyrir hvert öðru og þjóðinni í heild.

Ætla ekki að hafa þetta lengra núna, sendi ykkur mínar bestu kveðjur og fel ykkur Drottni Guði !

Gaman væri ef einhver gæti túlkað þennan draum.

                          Halldóra.


Hænan

Sæl kæru vinir!

Við lestur Biblíunnar kemur margt skemtilegt í ljós,því það líkingamál sem Biblían er full af er oft svo einfalt og auðskylið.Her er t. d. eitt; Sá sem aflar auðs og eigi með réttu,er eins og akurhæna,sem liggurá eggjum,er hún eigi hefur orpið. Á miðri æfinni verður hann að yfirgefa  auðinn  og við æfilokin  

stendur hann sem heimskingi.

 

Eins og  þú veist ekki hvaða veg vindurinn fer og hvernig beinin myndast í móðurkviði þungaðrar konu,eins þekkir þú ekki heldur  verk Guðs ,sem allt gjörir.

Þegar við grand skoðum þessi vers sjáum við hvílíkri visku þau eru gædd.

Það er svo margt í lífi okkar sem skiptir miklu máli.En það skiptir líka miklu máli að leggja líf sitt í Guðs hendur.Svo mikilvægt að það getur skipt sköpum fyrir allt þitt. Einn maður sem Biblían segir frá bað mjög merkilega bæn,þetta var Jabes.  Bæn þessi er orðin mjög þekkt og um hana hefur verið skrifuð bók.Bænin er svona:

Blessa þú mig og auk þú landi við mig og verði hönd þín með mér,og bæg þú ógæfunni frá mér, svo að engin harmkvæli komi yfir mig.Og Guð veitti honum það sem hann bað um. 1. kron. 4:10

Við meigum biðja Drottinn Guð að bægja frá ógæfu, og biðja hann einnig að hafa hönd sína á öllu okkar lífi.Vernda okkur og varðveita.Ég trúi því að ef við leggjum okkur þannig í Guðs almáttugu hendur, verða áföll og erfiðleikar ekki eins slæm,því hönd Drottins er yfir okkar lífi.Hann varðveitir okkur. Mér finnst það gott veganesti í lífinu.

Ég hef lagt mitt líf í Drottins hendur, og ég finn fyrir þessari útréttu hönd Drottins Guðs.

Biblían segir að öllum þeim sem tóku við honum gaf hann rétt til að vera Guðs börn,þessi réttur  er líka fyrir þig! Misstu ekki af honum! Biddu bæn Jabesar: Blessa þú mig....

Þar til næst verið Guði falin

                                               Halldóra.

 


Hrein samviska

Góðan dag!

Ég rakst á grein í bók þar sem fjallað er um synd  gegn heilögum anda.Eitt af því sem talað var um  er hvernig við særumheilagann anda.Ég átti samtal við mann sem sagði ákveðna hluti um Jesú son Guðs,frelsarann minn og ég fann hvernig þessi orð særðu hjarta Jesú,því ég sjálf varð svo særð fyrir hönd Drottins  míns.Bók þessi sagði að þegar við verðum særð eða einhver særir okkur þá særum við Jesú. Þegar eitthvað nystit hjarta þitt,nystir það einnig hjarta Jesú.Þegar einhver lygur að þér  og særir þig þar með þá særir það Jesú,því þú tilheyrir hjarta Drottins.Hver sá sem játar Kristur er Drottinn,er hans!

Tökum við kanski sjálf þátt í að að særa hjarta Drottins?Þú og ég?Með því að gera öðrum illt?Með því að svíkja,ljúga og segja ósatt? Mitt í öllum þessum hugleiðingum kemur orð Drottins, sannleikurinn mun gera yður frjáls!Það er frelsi í sannleikanum. Sá sem lygur eða hagræðir sannleikanum   er eins og fangi með með keðju með kúlu um fót sinn.Ég talað eitt sinn við tvær konur þær voru mæður ungra hjóna.Ég spurði um ungu hjónin, hvernig þeim liði og eitthvað nánar út í þá sálma.Önnur sagðist hafa áhyggjur  af þeim því þauværu að færast of mikið í fang.En hin var ekki alveg á þeim buxunum ,sagði að allt gengi voða vel,og þau væru svo hamingjusöm.Samt vissi ég að þeim leið ekki vel.Allt átti að lyta svo vel út.Þá fór ég að hugsa um það hvernig má koma í veg fyrir að þurfa ekki að segja ósatt um hluti ef maður vill ekki láta hafa eftir sér.Það er kúnst.´Trúuð kona vann í búð og  yfirmaðurinn hennar vildi ekki láta ná í sig ,og og bað hana að segja að hann væri ekki við.Svo kom einhver  og hún sem trúuð kona, vildi ekki ljúga og sagði,hann bað mig að segja að hann væri ekki við! Hvernig eigum við að leysa svona mál? Yfirmaðurinn er ekki við,hefði verið betra að segja, eða

eitthvað álíka.Ég trúi að við getum sagt sannleikann án þess að þurfa að grípa til lyginnar.Lygin er líka svona vopn sem óvinurinn notar  og reynir að fella okkur.Við þurfum að vera vís og passa okkur á óvininum sem er svo lúmskur.

En munum að sannleikurinn gerir okkur frjáls!

Þetta eru hugsanir mínar í dag, og vonandi blessa þær þig sem lest þennan pistil minn,

Þar til næst.   Verið Guði falin.

                                        Halldóra.


Aglow fundur í Garðabæ

Sæt veri fólkið!

Í dag ætla ég að minna á Aglow fund í skátaheimilinu  Jötunheimar við Bæjarbraut á morgun kl. 20

Við byrjum með því að fá okkur kaffi sem kostar 800 krónur.Edda Swan  formaður landsstjórnar Aglow á Íslandi mun tala til okkar Guðs blessað orð.Aglow í Garðabæ er tveggja ára  um þessar mundir, og það verður myndasyning því tengt.Bænakarfan verður á sínum stað og við munum fá að brosa því 

Ásta Lóa ætlar að sjá til þess.Þetta er ljúfur og yndislegur þverkirkjulegur félagskapur,ætlaður konum.

Mig langar til að bjóða ykkur sérstaklega sem eruð bloggvinkonur mínar að koma og eiga dyrmæta stund saman í bæn og lofgjörð til Drottins .Allar konur eru velkomnar!

Að koma á þessa fundi er eins og að koma undir verndarvæng Drottins!

             Konur verið velkomnar á Aglow fund á morgun!

 

Svo er annað sem ég vil nefna í þessum pistli mínum og það er að náð Drottins er ekki þrotin, hún er ny á hverjum degi.Og náðar faðmur Drottins er opinn fyrir okkur öll. Og Drottinn þekkir okkur og elskar,hann er með okkur og réttir okkur  hönd sína til þess að leiða okkur gegnum lífsins ólgu sjó.

Og eitt að lokum: Allt megna ég fyrir hann sem mig styrka gjörir!

     Blessunar óskir og kveðja

                                              Halldóra.


Málverkið

Komið þið sæl!

Fyrir mörgum árum sá ég risastórt olíu málverk,þetta málverk var öllum öðrum verkum 

ólíkt,því boðskapur þess er mér en í  fersku minni.Málverkið var af dynjandi fossi, sem streymdi af ógnar krafti.En undir þessum fossi átti lítill fugl hreiður, sem hann hafði gert í klettinum.Þar var hann öruggur,þar leið honum vel.Mér einhvernvegin datt þetta málverk í hug,þegar ég var að hugsa um hvað það er gott að eiga Jesú í þessum heimi.Heimi skarkala og óróa.Og mér kom einhvernvegin orðin úr 91 sálminum: Sá er situr í skjóli hins hæsta og dvelst í skugga hins almáttka, segir við Drottinn:Hæli mitt og háborg Guð minn er ég trúui á.Hann frelsar þig úr snöru fuglarans frá drepsótt eyðingarinnar,hann skylir þér með fjöðrum sínum,undir vængjum hans máttu hælis leita,trúfesti hans er skjöldur og vígi.Eigi þarftu að óttast ógnir næturinnar eða örina sem flygur um daga,drepsóttina sem læðist um í dimmunni eða sykina sem geisar um hádegið.Þótt þúsund falli þér við hlið og tíuþúsund þér til hægri handar þá nær það ekki til þín.

Kæru vinir! það gengur oft mikið á hjá okkur en þá er svo gott að geta flúið í þetta skjól sem Jesús er.Hann elskar okkur með óendanlegum kærleika! Sama hvað þér finnst um sjálfan þig,þá er Jesús til staðar fyrir þig.Hver svo sem fortíðin er ,það skiptir engu,hann elskar þig , og vill að þú þyggir fyrirgefningu syndanna.Hann vill fá að veita þér sjól í stormviðrum lífsins, og vera vinur þinn!

15 versið í þessum sálmi er svona og það eru loka orðin í dag: Ákalli hann mig mun ég bænheyra hann, ég er hjá honum í neyðinni!   Treystum þessum orðum í Jesú nafni.

         Guð varðveiti ykkur öll!

                   Bestu kærleiks kveðjur

                        Halldóra.

 


Opið bréf.

Komið þið sæl!

Biblían segir á einum stað að við sem erum hans séum eins og opið bréf þekkt og lesið af öllum mönnum.Ábyrgð okkar er því mikil.Við erum erindrekar Krists,það er ekkert smá! Eiginlega erum við sendiherrar Drottins! Þessvegna þurfum við að vera samkvæm sjálfum okkur og orði Guðs.Orð Guðs segir að við séum salt í þessum heimi.Og hvernig má það vera? Jú saltið  er bragð bætandi.Og þannig eigum við að vera meðal fólks.Við eigum að koma með nærveru Jesú Krists,sem er friðarhöfðinginn,

allsstaðar þar sem við  förum.Og verkin okkar eiga aðvera eins og við séum að vinna fyrir Drottinn okkar og frelsara.Við skulum biðja saman þessa bæn

Verkin mín Drottinn þóknist þér

þau láttu allvel takast mér.

Ávaxtasöm sé iðja mín

yfir mér hvíli blessun þín.

Og við höfum engu að kvíða því Jesús sagði:Takið eftir!

Ég er með yður alla daga, allt til heimsins enda.

Þessvegna hvert sem þú ferð í dag,þá er Jesús með þér!

Drottinn blessi okkur hvert og eitt.

 

Guð veri með ykkur öllum í dag og alla daga

 

                                     Halldóra.


Ljúflyndi

Góðan dag,gott fólk!

Á samkomu í Íslensku Krists kirkjunni,sl. sunnudags kvöld,kom fram orð úr heilagri ritningu.

Orðið er í Filippíbréfinu 4:4-5 Verið ávalt glaðir í Drottni.Ég segi aftur verið glaðir.Ljúflindi yðar verði kunnugt öllum mönnum.

Það eru kanski ekki allir sem eru glaðir þessa dagana, sumir eru jafnvel daprir, eða hræddir og finna til óöryggis.Þetta eru allt tilfinningar sem Guð gaf okkur.En sumu fólki gengur ekki vel að vinna úr þessum tilfinningum.Þá kemur orð Drottins og kvetur okkur til að syna ljúflyndi.Sá sem á þetta ljúflyndi Drottins

er vel haldinn andlega talað af anda Guðs,og er styrkur í sinni trú.

Kæru vinir! Byggjum okkur upp í Drottni.Lesum Guðs orð okkur til uppbyggingar, og verum bæna menn og konur,þá munum við geta blessað aðra með ljúfmennsku og gleði frá himni Guðs.

Við erum öll sem þjóð erum að ganga í gegnum krísu, og það reynir á hjá okkur vel flestum.

Mér verður svo mikið hugsað til allra þeirra sem líður illa um þessi mánaðarmót.Leitum Guðs föður!

Biðjum Guð um hjálp og styrk, biðjum Guð að opna nægtabúr sitt yfir okkur öll sem þjóð.Það er ekkert barnalegt að biðja Guð! Það er bara merki um styrk!

Bæn þarf ekkert að vera löng eða fullkomlega orðuð, hún getur bara vel verið  einföld og mótuð í huganum ,jafnvel án orða,svo kallað andvarp.

Vinir!  Synum ljúflyndi  og kærleika Drottins  í öllum  aðstæðum!

         Drottinn blessi ykkur og leiði !

                                          Halldóra.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband