Aðventu hugleiðing.

Komið þið blessuð og sæl!

 

En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara  að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina .Þetta var fyrsta skrásetningin er gjörð var þá er  Kýreníus var landsstjóri á Syrlandi.Fóru þá allir til að láta skrásetja sig,hver til sinnar borgar. Þá fór og Jósef úr Galileu  frá borginni Nasaret til borgar Davíðs en hann var af ætt og kyni Davíðs , að láta skrásetja sig  ásamt Maríu heitkonu sinni sem þá var þunguð.En meðan þau voru þar  kom sá tími er hún skyldi verða léttari.Fæddi hún þá son sinn frumgetinn,vafði hann reyfum og  lagði hann í jötu  af því að eigi var rúm handa þeim í gistihúsinu.

Þetta er jólaguðspjallið eins og það er í Lúkasarguðspjalli öðrum kaflanum.

Þessi  frásaga hefur mannkynssögulegt gildi ,ekki bara vegna þess að þarna er sagt frá fæðingu frelsarans,heldur vegna þess að þessi skrásetning var sú fyrsta

 Í heiminum.Hinn mikli stjórnandi Ágústínus  var ekki að hugsa um  það.Hann var að hugsa um  að treysta undirstöður hásætis síns ,skattamálin áttu sem sé að komast í  betra horf.Þetta var skattskráning.Og öll heimsbyggðin fór af stað . Boðum frá hásætinum varð að hlyða.Allir urðu að fara , hvernig sem á stóð,óléttu konurnar líka.Allir urðu að taka sig upp og fara til sinnar ættborgar til skráningar. Og við getum ímyndað okkur  að það hafi verið mikil ös og mikil þröng.Meira að segja í Betlehem,borginni sem í huga okkar flestra er tákn mynd friðarins.Og þau tvö María og  Jósef  voru nú komin til  Betlehem ,þegar verst á stóð.En það urðu allir að hlýða  skipun Ágústínusar. Ég er viss um að þessi ferð var mjög erfið í hitanum og þurkinum, og allri þrönginni .Og svo fóru þau að leita sér að gistingu ,og María komin að því að fæða. Og allstaðar var fullt ,ekki einu sinni pláss í neyð.Kanski var það einhver góðviljaður maður sem  átti líka barnshafandi konu inni  hjá sér  sem vísaði þeim á fjárhúsið, af því hann skyldi neyðina.Og þar fæddist frelsarinn okkar.En hann var barnið hennar Maríu ómálga lítill drengur  og hún lagði hann við brjóstið sitt. Nóttin var dimm og köld en líklega hefur fæðing barnsins  og gleði þeirra vegna þess hjálpað  þeim í þessum aðstæðum.Barnið var lagt í jötu innan um öll dyrin . Við horfum  svo oft á þessa jötu í hyllingum,finnst hún jafnvel jólaleg.Við höfum svo oft upphafið þessar kringumstæður,en það má aldrei gerast. Samt er þessi atburður í mannkynssögunni afar stór.

Jesús frelsarinn er meira en jólabarn í jötu. Hann er upprisinn frelsari .Og hann lifir í dag! Jesús þráir að koma inn í þitt hjarta, og inn á þitt heimili. Hann vill vera vinur þinn. Í sálmi 91 stendur: Sæll er sá ,er situr í skjóli hins hæsta, sá er gistir í  skugga hins almáttka,sá er segir  við Drottinn : Hæli mitt og háborg

Guð minn er ég trúi á!

Jesús er að bjóða þér að veita þér skjól í stormvirðum lífsins, og vera þér við hlið og ganga með þér lífsveginn! Og áfram heldur sálmurinn og þar segir : Hann frelsar þig úr snöru fuglarans, frá drepsótt glötunarinnar,hann skylir þér með fjöðrum sínum undir vængjum  hans mátt þú hælis leita, trúfesti hans er skjöldur og verja. Stundum finnum við ekkert fyrir því að Jesús sé nálægur,en hann er það samt.Er til staðar og vill leiða okkur sér við hlið.Hann þráir að við eigum við sig bæna og trúar samfélag.Bíður eftir því að við tökum okkur stund með sér. Hann er fús að hlusta er við biðjum ,en hann vill líka fá að tala við okkur gegnum sitt orð .Efla og styrkja okkur í sér.Hann bíður eftir  því að við drögum okkur afsíðis litla stund til þess að þyggja alla þá blessun sem hann á handa okkur.Það þarf ekkert að vera merkilegur staður þar sem við getum verið ein með Jesú, fjárhúsið dugði  til þess að fæða þennan son Guðs.Ég kvet þig til að finna þér stað til þess að vera ein með Jesú og settu þér mark að vera t.d.  fimtán mínútur.Reynsla mín er að þetta verða svo dyrmætar stundir að  þessi  tími verður miklu lengur. Setjum okkur markmið að taka okkur á  nú þegar nytt ár gengur í garð.Leggjum líf okkar í hans hendur, og hvílum í honum.Hann mun alls ekki sleppa af okkur hendi sinni né yfirgefa okkur .Hann hefur líka fyrirætlun með okkur hvert og eitt ,fyrirætlanir til heilla ,en ekki til óhamingju, að veita okkur vonarríka framtíð.

 Að lokum bið ég Drottinn Guð að gefa þér og þínum gleðileg jól og  blessunarríkt nýtt ár í Jesú nafni.  Amen.

Kæru vinir ! Þetta var jólahugleiðing sem ég var með á  Aglow fundi  nú í  desember,og mig langar til þess að  gefa ykkur þennan sama boðskap jólanna að Jesús lifir í dag!

                                      Halldóra.


Tillaga að rómantískri stund.

Góðan dag!

Biblían talar oft og mörgum sinnumum ljós og myrkur.Og hún kallar Jesú ljós heimsins.Öll vitum við hvað ljósið er gott,sérstaklega núna í svartasta skammdeginu. Ég fór í göngutúr núna á dögunum til þess að horfa á jólaljósin í myrkrinu.Svo gekk ég undir húsvegg og þar var sterkur ljós kastari,sem lysti allt upp, og þá kom í huga minn versið góða : Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegi mínum.Svo gekk ég örlítið lengra og þá hafði slokknað á ljósastaurunum, og ég gekk í myrkri.Ég fann muninn á  ljósi og myrkri.Svona er líf okkar stundum.En það er til hjálp.Bænin og trúin á Jesú, getur komið með hjálp.Drottinn mun leiða okkur rétta vegu segir í sálmi 23.Jafnvel þó við förum gegnum dimman dal,þurtfum við ekkert að óttast,því hann er hjá okkur.Það er þetta sem skiptir máli-að Jesús er hjá okkur-Hvernig sem allt er,mínir kæru lesendur, skulum við fara veg ljóssins.Vera með Jesú okkur við hlið.Leggjum allt í Drottins hendur og hvílum í honum.Jafnvel þó að við finnum ekki fyrir nærveru Drottins,meigum við samt treysta því að hann sleppir ekki hendi sinni af okkur.Ég mun alls ekki sleppa þér og eigi heldur yfirgefa þig,segir Drottinn. Tökum líka áskorun Biblíunnar þar sem segir:Stattu upp ,skín þú, því ljós þitt kemur og dyrð Drottins rennur upp yfir þér.

Kæru vinir! Verum litlir ljósgeislar fyrir Drottinn okkar og blessum aðra með þeirri gleði sem heyrir Jesú til,jafnvel þó þér finnist þú ekkert hafa að gefa er svo dyrmætt að geta miðlað gleði og friði  frá himni Guðs,það er eiginlega besta gjöfin.Svo er bænin okkur gefin,og við getum beðið fyrir hvert öðru og lagt málin fram fyrir Drottinn Guð,og hann mun vel fyrir sjá.

Njótið aðventunnar, kveikið á kertum  og borðið smáköur,og nammi,um leið og þið fáið ykkur kaffi saman, og gerið stundina notalega-Tillaga frá mér til þín-

 Þar til næst  Guð veri með ykkur

                                           Halldóra.


Jólagjöfin í ár.

Sæl verið þið!

Ég er með uppástungu að góðri jólagjöf !

Jólagjöf þessi heitir Alfa-námskeið.

Þetta er námskeið fyrir alla, sem vilja kynna sér trúna nánar 

og efla hana.Námskeiðið stendur yfir í 10 þriðjudagskvöld frá kl. 19-22

og hefst  20 janúar 2009.Kvöldið byrjar með súpu og brauði, síðan er 

kennsla og umræðuhópar og stutt helgistund í lokin.Það er engin skyldugur 

að taka þátt í umræðunum ef fólk vill bara hlusta.Námskeiðið kostar 6000 kr.

en atvinnulausum er boðið að koma frítt. Um mitt námskeiðið  er farið út úr bænum  yfir helgi

og er það há punktur námskeiðsins.Það er greitt sér fyrir þá helgi.

KYNNINGARKVÖLD verður 13 janúar kl.20.00 að Fossaleyni 14, Grafarvogi

sem er Íslenska Kristskirkjan.

Á námskeiðinum velta menn fyrir sér spurningunni um tilgang lífsins, og hugleiða hvort

trúin hafi svör sem skipta máli.

Námskeið þessi hafa breytt lífi fólks,það er staðfest.

Ég mæli með að við gefum  einhverjum slíka jólagjöf.

    

Bestu kveðjur  og Guð veri með ykkur!

                                               Halldóra.


Bænagangan mikilvæg.

Sæl og blessuð öll!

Bænagangan var í dag kl.12-13 ég hlustaði á Lindina,átti ekki heiman gengt.Ég var líka með í anda,

bað hér heima.Geir H. Haarde og föruneyti hans hafa veriðofarlega í bænum mínum í þessum ólgusjó.

Og þessvegna verðum við að standa saman og biðja kristið fólk.Mér fannst mikill bænaandi yfir bæn

Sólveigar Traustadóttur,greinilega vön bænakona! Nefni þetta atriði sérstaklega vegna þess að 

bænin hennar hreyf mig mjög. Við sem erum að biðja markvisst fyrir þjóðmálunum,þráum svo mikið að sjá lausnina fyrir Jesú nafn. Að vera í forystu fyrir þjóðina á þessum dögum er ekki öfundsvert,það mæðir mikið á þessu fólki, og allir heimta svör og lausnir.Við verðum þessvegna að bera þau uppi í bæn sem að lausninni vinna.Biðja um góða heilsu og kraft frá augliti föðurins himneska þeim til handa.Og einnig að það sé góður andi meðal þeirra,að ekkert komi uppá sem hyndrar vinnufrið. Mér finnst líka mikilvægt að biðja þess að þetta ástand vari stutt,allra hluta vegna.

Biðjum og okkur mun gefast,segir í Biblíunni.Treystum og trúum því.

             Friður sé með ykkur í Jesú nafni

 

                        Halldóra.


mbl.is Báðu fyrir landi og þjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

jolastjarnan.net

Komið þið blessuð og sæl!

Þar sem mikið er að gera þessa dagana er ég ekkert við blessaða tölvuna

en mig langar til að benda ykkur á jolastjarnan.net sem er jólanet útvarpsstöð.

Það kemur okkur í gírinn,allavega mér við jólabaksturinn að hlusta á jólalögin.

Á þessum tíma árs er þörf fyrir góða tónlist sem tengist jólunum.Ekki spillir fyrir

að sonur minn er einn þáttargerðarmanna þar á bæSmile

Ætla að færa inn af og til kristnar hugvekjur fyrir vini mína sem lesa  þessar færslur mínar sér

til blessunar,til þess að svíkja  þau ekki! Það kemur bara í ljós.

En kæru vinir! Haldið ykkur við Krist,lesið orðið hans og lifið bænasamfélagi við Drottinn Guð.

 

             Kveðja úr Garðabæ      Halldóra.

 

 


Blessun Guðs fyrir okkur öll.

Komið þið sæl!

Við þig sem lest þessar línur vil ég segja og það eru orð Biblíunnar:

Fel þú Drottni verk þín

þá mun áformum þínum framgengt verða.

Og í Jesaja 41:10

Óttast þú eigi,því  að ég er með .

Lát eigi hugfallast,því að ég er þinn Guð.

Ég  styrki þig,ég hjálpa þér, ég styð þig

með hægri hendi réttlætis míns.

Og í sálmi 37:5

Fel Drottni vegu þína treystu honum 

og hann mun vel fyrir sjá.

Og í Kólossusbréfinu  stendur:

Látið orð Krists búa ríkulega hjá yður.

Og í Jerimía 29:11 stendur;

Því að ég þekki þær fyrirætlanir sem 

ég hefi í hyggju með yður-segir Drottinn-

fyrirætlanir til heilla ,en ekki til óhamingju

að veita yður vonarríka framtíð.

Með kveðju og bæn um blessun Guðs fyrir okkur öll!

                 Halldóra.

 


Gott veganesti í dagsins önn.

Sæl og blessað veri fólkið!

Ég vil begsama Drottinn alla tíma

ætíð sé lof hans mér í munni.

Sal mín hrósar sér af Drottni

hinir hógværu skulu heyra það og fagna.

Miklið Drottinn ásamt mér 

tígnum í sameiningu nafn hans .

Ég leitaði Drottins og hann svaraði mér

frelsaði mig frá öllu því er ég hræddist.

Lítið til hans og gleðjist

og andlit yðar skulu eigi blygðast.

Hér er volaður maður og Drottinn heyrði hann

og hjálpaði honum úr öllum nauðum hans.

Engill Drottins setur vörð kringum  þá er óttast hann 

og frelsar þá .

Finnið og sjáið að Drottin er góður ,

sæll er sá maður sem leitar hælis hjá honum.

Óttist Drottinn þér hans heilögu

því að þeir er óttast hann líða engann skort.

Ung ljón eiga svið skort að búa og svelta

en þeir er leita Drottins fara enskis góðs á mis.

vers 16 Augu Drottins hvíla á réttlátum

og eyri hans gefa gaum að hrópi þeirra,

ef réttlátir hrópa þá heyrir Drottinn

úr öllum nauðum þeirra frelsar hann þá 

Drottinn er nálægur þeim er hafa sundurkramið hjarta

þeim er hafa sundurkraminn anda hjálpar hann.

 

Kæru vinir!

Þegar við lesum þennan sálm,þá sjáum við glöggt að það er lausn í þessum sálmi.Það stendur þarna : Ég leitaði Drottins  og hann svaraði mér,og frelsaði mig frá öllu því sem ég hræddist.Og svo heldur sálmurinn áfram og það stendur í 7 versi" Hér er volaður maður " sem hrópaði og Drottinn heyrði hann.Orðið "volaður" þyðir niðurbrotinn. Og það segir að Drottinn hjálpaði honum,úr öllum nauðum hans. Svo kemur 8 vers  og þar stendur : Engill Drottins setur vörð kringum þá er óttast hann og  frelsar þá.Síðan kemur ; Finnið og sjáið að Drottinn er góður.Orðið " sjáið" í þessu samhengi þyðir  takið eftir.Þá verður versið Finnið og takið eftir  að Drottinn er góður.Sæll er sá sem leitar hælis hjá honum.Óttist Drottinn þér hans heilögu,því að þeir sem óttast Drottinn lyða engann skort.Þessi orð Biblíunnar eru fyrirheiti. Ef þú ert hræddur um að lyða skort á einhverju sviði þá eru hér fyrirheit, sem þú ættir að halda í . Ég trúi því að Guð geri vel við þá sem  treysta honum.Því  þeir sem treysta honum fara einskis góðs á mis.Við skulum skoða vers 16 Augu Drottins hvíla á réttlátum og eyru hans gefa gaum að hrópi þeirra.Ef réttlátir hrópa þá heyrir Drottinn.

Niðurlag sálmsins er að Drottinn er nálægur þeim er hafa sundurmarið hjarta,þeim er hafa sundurmarinn anda hjálpar hann. Þetta er svo dyrmætt  veganesti inn í daginn, og við sérhverjar aðstæður lífsins.

   Drottinn blessi ykkur!

                              Kveðja Halldóra.


Vaknaði við þetta.

Sæl kæru vinir!

Í dag hefst aðventan.Biðin eftir jólahátíðinni.

Mig langar til þess að blogga um annað í þetta skiptið.

Þar sem Pasíusálmarnir eru í miklu uppáhaldi hjá mér,leita

ég oft  í þá.Æfinlega blessa þeir mig. Ég er svo heppin að

á unglingárunum gekk mér vel að læra utan að og ég lærði

mjög marga Passíusálma. Í morgun þegar ég fór á fætur 

hljómaði í huga mínum þetta vers úr fyrsta sálminum

Innra mig loksins angrið sker,

æ, hvað er lítil  rækt í mér.

Jesús er kvalinn í minn stað.

Of sjaldan hef ég minnst á það.

Mig dreymdi í  nótt  að ég væri að kenna Tímóteusarbréfið.

Og draumur þessi var svo frábær því í draumnum kunni ég það utan að.

Í öllum þessum morgun hugleiðingum mínum datt mér í hug annað vers

úr þessum sálmi.

Horfi ég í huga mér,

herra minn Jesús eftir þér.

Dásamleg eru dæmin þín.

Dreg ég þau gjarnan heim til mín.

 

Við ykkur biðjandi fólk vil ég segja: Höldum áfram að biðja fyrir  Íslensku þjóðinni !

Biðjum Drottinn að þessar hörmungar sem yfir  okkur ganga taki skjótan endi , og blessanir frá himni Guðs flæði yfir okkur.Biðjum fyrir þeim sem eru að reyna að leysa máli,en finna enga lausn,

að Guð gefi þeim visku og vísdóm. Og að Drottinn Guð verði okkur náðugur. Að koma  með málin fram fyrir Guð, veitir blessun og frið.

 Náð sé með ykkur  frá himni Drottins Guðs!

                                        Kveðja   Halldóra.


Fjársjóðurinn

Komið þið sæl!

Drottinn þurfti að spyrja Kain , hversvegna hann væri svona niðurlútur?

Og svo hélt Drottinn áfram: Ef þú gjörir rétt geturðu verið upplitsdjarfur en ef þú gerir ekki rétt þá liggur syndin við dyrnar og hefur hug á þér,en þú átt að drottna yfir henni.

Kæru vinir! Þetta er bara nákvæmlega eins í dag, syndin hefur hug á okkur,eða réttara sagt  hinn illi.

Svo kemur þetta sem er svo dyrmætt  og Drottinn mælti við Kain: Ef þú gerir það sem er rétt geturðu verið upplitsdjarfur.

Innra með okkur öllum er  staður þar sem samviska okkar er.Og merkilegt er það að hún lætur okkur vita ef við gerum rétt eða rangt. Þessvegna ef við gerum það sem er rétt getum við verið upplitsdjörf.

Við skulum fara eftir þessu "líffæri" samviskunni, og gera það sem er fallegt og gott. Biblían segir:

Gerið öllum mönnum gott, einkum trúbræðrum  ykkar og systrum. Svo sendir Drottinn okkur sem erum hans út í heiminn og segir  við okkur um leið: Vertu góð fyrirmynd, stunda hið góða fagra og fullkomna.Hann hrindir okkur ekkert út  og lætur okkur spjara okkur,nei okkur fylgja hlyju orðin hans : Ég er með ykkur alla daga! Svo er annað sem er líka svo gott að muna, og það eru líka orð Biblíunnar að sannleikurinn mun gera okkur frjáls!

Biblían er fjársjóður sem  gott er að fara eftir og gerir okkur öllum gott. Ég kvet því alla til þess að lesa þessa bók  bókanna.En það er líka gott að sækja kirkjur og kristin samfélög til þess að fá fræðslu um þetta lífsins orð. Mæli með því.

Jæja kæru vinir!  Þetta nægir í dag, Guð veri með ykkur!

                           Halldóra.


Laugardagurinn 6. des.

Komið þið sæl!

Í dag mætti ég á bænastund í séra Friðriks kapellu kl.12 þar var kominn hópur fólks að biðja fyrir Íslensku þjóðinni. Þar fékk ég að heyra af bænagöngu sem verður 6 des kl. 14 frá Hallgrímskirkju og  hún mun fara á Austurvöll og biðja áður en hin gangan kemur kl.15. Herbert Guðmundsson mun  syngja bænagöngulag í tilefni dagsins,síðan verður ávarp og loks beðið fyrir þjóðinni.

Við erum friðflytjendur og fólk er beðið að koma með vasaljós og íslenska fánann.

Endilega þið sem getið farið takið daginn frá!

Gangan ber yfirskriftina Ljós í myrkri!

 Drottinn gefi ykkur góðann og yndislegan dag.

   Góðar stundir.

                                           Halldóra.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband