Í kirkjunni

Sæl verið þið!

Í gærkvöldi fór ég á samkomu í Íslensku Kristskirkjunni,sem var alveg yndislegt.

Í upphafi samkomunnar fann ég svo sterkt fyrir nærveru heilags anda, og mér fannst ég skynja

að himininn opnaðist og dyrð Drottins sté niður.þessi skynjun var svo mikið sterk að mér fannst eins og Drottinn leggði hönd sína á höfuð mitt.Og í hug minn komu orðin í Esekíel43 Og dyrð Drottins fór nú inn í musterið og um hliðin, sem til austurs vissi.Kraftur andans hóf mig upp og færði mig inn í innri forgarðinn, og sjá musterið  var fullt af dyrð af  Drottins. Og vers 7 Og hann sagði við mig Mannson þetta er staður hásætis míns  og þetta er skör fóta minna, hér vil ég búa meðal Ísraels manna að eilífu. Þegar maður upplifir svona sterkt nærveru heilags anda, verður maður svo blessaður! Og nú langar mig svo mikið til að blessa þig áfram með þessu versi,um dyrð Drottins.

Kirkjan mín er líka mikil blessun og yndislegt að koma þangað.sá sem kemur verður ekki fyrir vonbrygðum, svo ég get alveg mælt með samkomunum þar.

En það er sama hvað okkur finnst um kirkjurnar, ef Jesús er ekki til staðar,eru þær ekki neitt.

Ég blessa kirkjurnar, og skora á okkur öll að kalla eftir meira flæði heilags anda. Ég var í Grensáskirkju fyrir skömmu og þar fann ég líka þessa góðu nærveru Guðs góða heilaga anda.

Verum í Kristi alla daga, heilshugar og brennandi fyrir hann! Þá mun dyrð hans fylla hjörtu okkar allra.

 

                            Kærleiks kveðja

                                  Halldóra.


Meðfram Þingvallavatni

Komið þið sæl öll og gleðilegt sumar!

Þegar við horfum til sumarsins finnum við í hjartanu einhverja alveg einstaka og hlyja tilfinningu.

Tilfinningu um að eitthvað gott sé að koma.Og eftir harðann vetur eru þessar tilfinningar sælli en ella.

Allavega hjá mér.En,það fer ekki alltaf eins og við vonuðum,veðrið verður kanskio ekki eins og við þráðum,já, eða við fenugum ekki frí á einhverjum óskatíma. Ég man eftir svoleiðis hjá okkur,það var þegar hann var skikkaður í frí í júní, og strákarnir ekki einu sinni búnir í skóla.En viti menn,þetta var besti sumar mánuðurinn það árið.Þegar hinir komu í sína sumarbústaði í sínu fríi á óskatímanum kom rok og rigning.Svo sumir hlutir sem viðast slæmir geta bara orðið þeir bestu!

Svo var það nú á dögunum að við hjónakorn gengum meðfram Þingvallavatni,spottakorn í afar fallegu veðri, að mér varð litið niður fyrir mig, en þar var fiður hrúga  í einum haug,eins og raðað hafi verið af

listamanni.Þegar betur var að gáð lá í miðjum haugnum dauður spói.Og það var greynilegt að  það hafði ránfugl ráðist á hann, og etið úr honum hjartað, og skilið allt hitt óhreyft.Mér fannst þetta vera miskunnarlaust.Blessaður spóinn var örugglega rétt nybuinn að tilla sér á Íslenska grund, dauðþreyttur eftir langa ferð.En þetta talað rosalega sterkt til mín, á þann hátt að þegar sumarið kemur slakar fólk á.En við meigum ekki slaka á í samfélagi okkar við Guð, því þá er hætta á að

það gerist eins og með spóann að hinn illi svæfi trú okkar og dragi okkur frá Guði.Látum það ekki gerast!

 Í sumar byrjun kvet ég okkur öll að halda okkur fast við Drottinn,lesa Biblíuna  okkur til blessunar

og vera staðföst í honum!

            Kær kveðja í sumarbyrjun, og ég kveð með með hinn fallegu íslensu kveðju

                                             Bless

 

                                               Halldóra.
 


Ljóð

Góðan dag!

Innra með mér hefur þessi texti hljómað í dag.

 

         Gleymdu ei Jesú,hann gleymir ei þér

          gengur við hlið þér og hirðir þinn er.

           Svo að þú verðir ei syndinni að bráð

           sjá þú hvað Jesús er ríkur af náð.

 

            Lestu þennan texta hægt,og drekktu sannleika hans í þig, og þú munt blessun hljóta.

 

                Kær kveðja     Halldóra.
 


Vináttu kakan

Góðan dag!

Fyrir mörgum árum var mér gefin köku uppskrift og með uppskriftinni fylgdi í bolla bútur af deigi.

Þessi kaka hét vináttu kaka,mjög góð.En hún var þannig hugsuð að maður bjó til deig,blandaði deig bútnum saman við,og tók svo aftur smá bút af sínu deigi til að gefa vini.Þetta gekk allt upp hjá mér,nema hvað það vildi enginn þetta deig hjá mér.Fólk var hætt að baka og þannig. Ég var með fulla frystikistu af vináttu köku,og geymdi svo deig,ef einhver vildi kanski.Nema hvað þetta deig stækkaði mjög fljótt,líkt og Kákasus gerillinn forðum, svo ég var í mestu vandræðum.Kvöld eitt setti ég bútinn í stóra könnu með loki inn í ísskáp.Þegar ég kom fram morguninn eftir blasri við mér ófögur sjón,lokið

farið af könnunni og deigið hafði flætt út um allan ísskápinn,meðfram hurðinni og þetta var mesta ógeð. Eitthvað sem átti að vera mikil  vinátta, saklaust og gera gott, varð að hryllingi.

Mér dettur þetta stundum í hug,þegar ég hugsa um syndina sem er lævís og lipur,lítur jafnvel út eins og vinur,en er í eðli sínu eins og argasti óvinur.Margir leika sér að eldinum í þessum efnun,og vara sig ekki á að þeir hafa smitast eins og deigið sem smitaði ísskápinn minn forðum. Æ, þetta er allt í lagi, hugsar fólk, eða það er allt í lagi með mig.En við verðum að vera á varðbergi ef við ætlum að varðveitast, því óvinurinn æðir um eins og öskrandi ljón, leitandi að þeim sem hann getur gleypt.

Verum í ljósi Guðs með alla hluti þá erum við á réttri leið. Fyrirgefning syndanna er að fá við krossinn hjá Jesú.Pössum okku,látum ekkert koma og smita okkur af synd og saurgun.

Fel Drottni vegu þína treystu honum og hann mun vel fyrir sjá.

                                Bestu kveðjur

                                          Halldóra.
 


Augasteinar Drottins

Góðan dag gott fólk!

Undanfarna daga hef ég verið eð flensu,og ekki haft kraft til þess að lesa orð Guðs eins og vant er.

Þá gerði ég það sem er svo yndislegt og gott ég sagði við Drottinn,ég er svo lasin og líður svo illa

nú ætla ég að leggjast í þitt fang Drottinn minn,og halla mér að þínu hjarta, bara hvíla mig og vera hjá þér.Svo sofnaði ég, og mér leið svo vel. Flensa er ekki hræðileg veiki,en maður er undirlagður af hita,

kvefi og öllu sem tilheyrir svona pestum.Í Ljóðaljóðunum setendur:Vinstri hönd hans sé undir höfði mér,hin hægri umfaðmi mig .Það var einmitt þannig sem mér leið.Á sama hátt og hann sem mig elskar

leggur vinstri höndina sína undir höfuð mitt, og faðmar mig með hinni,gerir Jesús. Við þig sem ert kanski lasin núna og finnur til á einhvern hátt, vil ég segja,hallaðu þér upp að brjósti Jesú,og bara vertu þar.Þú þarft ekkert að segja, bara njóta þess að vera hjá Jesú!

Svo þegar við erum orðin frísk og finnum að krafturinn kemur,þá skulum við teiga í okkur af því nægtaborði sem orð Guðs er.Styrkist nú í Drottni og í krafti máttar hans!

Og svar Drottins hljómar í eyrum mínum og hjarta:Hvernig ætti ég að sleppa hendi af þér?

´Daníelsbók  10:19 stendur . Óttast þú ekki ástmögur,friður sé með þér!Vertu hughraustur,vertu hughraustur! Og er hann talaði við mig,fann ég að ég styrktist og sagði: Tala þú herra minn,því að þú hefur gjört mig styrkan.

Svo stendur líka í Gu'ðs orði um englana: Þeir standa mér  mér við hlið  til þess að veita mér lið og vernd. Við erum eins og augasteinar Drottins elskuð og þráð af honum . Hvar sem við förum ,hvernig sem okkur líður,þá elskar hann okkur og er með okkur í lífsins stríðinu.

Svo kallar hann á okkur  og segir: Komið til mín allir þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir og ég mun veita yður hvíld.

Að lokum þetta vinir,Það er heimilt að halla sér upp að föður hjarta Guðs og hvíla þar.

 Drottinn blessi ykkur í dag,efli og styrki !

           Kær kveðja

                  Halldóra.
 


Besta leiðin.

Góðan dag!

Í nútíma samfélagi er mikið talað um að við verðum að styrkja og efla líkamann, og það er vissulega

gott að gera það,því við erum musteri heilags anda, og eigum að fara vel með þessa gjöf sem líkami okkar er.En ekki er eins mikið talað um að efla og styrkja sinn innri mann,þó vissulega komi sú umræða upp öðru hvoru.Biblían segir, og það eru engin ný fræði,því boðskapur hennar er frá dögum Krists:

Styrkist nú í Drottni og í krafti máttar hans! Gerið það með bæn og beiðni og biðjið á hverrri tíð í anda.

Ef við lesum allt Guðs orð lærum það, tökum það til okkar og lifum það út,þá verður það okkur að svalandi lind hvern dag.En það er eins og með annað í þessu að reyndur veit.Við verðum að gefa okkur að orði Guðs lesa það  og taka það til okkar.Annars fáum við aldrei neitt út úr þessu.Ég sjálf var mjög ung þegar ég fór að lesa Biblíuna, og ég fann þennan styrk, sem boðskapur hennar geymir.Ég byrjaði alla daga á lestri úr Guðs orði og átti  samtal við Drottinn áður en ég hélt út í daginn.Og á ákveðnu  tímabili í lífi mínu byrjaði vinnudagurinn mjög snemma,þá vaknaði ég bara ennþá fyrr til þess að geta nærst af þessum góða boðskap.Öllum þessum árum síðar hef ég haldið þessu og lesið þetta blessaða orð  og fengið hressingu fyrir sálina fyrir daginn. Þannig hefur þessi setning: Styrkist nú í Drottni og í krafti máttar hans! verið mér eðlileg kvatning og leiðbeining.

Mig langar bara til að segja ykkur frá þessari einföldu leið að blessun og styrk á daglegri göngu okkar, sem, hefur gefið mér svo mikið, og gert mig að þeirri manneskju sem ég er,því hún er góð og einföld og ætluð öllum.

Það er enginn að ætlast til þess að þú verðir agaður á einum degi og rosa klár í Biblíunni.Það stendur á góðum stað í hinni helgu bók,æf sjálfan þig í guððhræðsu.Það er eins með þetta og líkamsrækt,að ná árangri tekur tíma.Svo stendur að góður þjónn Krists eigi að vera nærður af orði trúarinnar.

Til að byrja með er gott að byrja á að lesa Davíðs sálmana, einn á dag og guðspjöllin og Postulasöguna, einn eða tvo kafla á dag,til að koma sér af stað.Og ef þú gerir þetta verður það unun þín að eiga slíka stund daglega.Og bænastundirnar verða haldreypi lífsins.

 Og áður en þú tekur til starfa er gott að biðja þessa bæn.

                   Verkin mín Drottinn þóknist þér

                   þau láttu allvel takast mér.

                   Ávaxtasöm sé iðja mín,

                   yfir mér hvíli blessun þín.

 

                Drottinn varðveiti þig í dag!

 

                           Halldóra Ásgeirsdóttir.
 


Að vera djarfur

Góðan dag vinir!

Þegar ég flétti hinni góðu bók í gærkvöld fyrir svefninn  staldraði ég við vers í Sefanía 3:15

Konungur Ísraels, Drottinn er hjá þér hetjan er sigur veitir.

Konungur ísraels, Drottinn er hjá þér.Þá fór ég líka að hugsa, að konungar ráða yfir ríkjum,þeir eru æðstumenn ríkis síns.í þessu tilfelli er Drottinn æðsti maður Guðsríkisins,og þá liggur beint við að spyrja hvort þú sért viss um að  þú tilheyrir þessu ríki? Ef svo er þá er konungurinn hjá þér.Konungurinn!

Ég segi nú bara eins og unga fólkið" Pældu íðí" konungurinn! Sjálf er ég svo glöð yfir að vera þá konungs-dóttir.Það er því fullvíst að þú átt þennan rétt vísan ef þú gefur Drottni líf þitt. Hann mun annast þig ,vera þér styrkur og hjálp jafnvel þó þú takir ekkert eftir því.

Biblían segir okkur að við höfum leyfi til að koma fram fyrir Guð með djörfung,þangað sem hann vígði oss veginn.Hebreabréfið 10:19. Þetta er eitt af uppá halds orðunum mínum í hinni helgu bók.

Við meigum koma fram fyrir konun lífs okkar með djörfung í bæn og gera óskir okkar kunnar honum.

Ef pabbi minn hefði verið konungur,hefði ég haft einkarétt á að fá að sitja í fangi hans eða halda í höndina hans.En af því að það er Drottinn sem er  konungurinn, máttu leggja þig upp að hans hjarta, leggja líf þitt í hans hönd hvenær sem er.

 

         Bestu kveðjur til ykkar allra.

 

         Brostu það skaðar ekki!

 

                               Halldóra.
 


Áhrifaríkt.

Sæl verið þið !

Frásagan um Jesús ,þegar hann kemur til Jerúsalem hefur verið ofarlega í huga mínum undanfarið,af því að hann  fer að gráta.Jesús grét yfir Jerúsalem.Einu sinni var talað um að þetta væri stista setning

Biblíunnar.Jesús grét.Í þessu tilfelli grætur hann yfir heilli borg.Og fyrst að heil borg skiptir hann svo miklu máli, þá segir það sig sjálft að hann elskar hvern og einn borgarbúa með óumræðilegum kærleika.Hafir þú villst burtu frá honum,eða sofnað á  verðinum,þá er Jesús ekki búinn að gleyma þér!

 Hugur hans og hjarta er bundið við þig.Og þegar þú ert á villigötum,þá grætur Jesús vegna þín!

 Ef þú heldur að þú getir átt þitt eigið skumaskot,þar sem Jesús sér ekki,þá er það ekki þannig.Hann þekkir og veit um alla hluti.Líka þá sem við höldum að séu prívat fyrir okkur. Og svo þetta sem hefur verið svo ofarlega í mínum huga, hann grætur yfir sínu fólki, yfir þér.Hefurðu hugleitt það hvað mikill kærleikur er fólginn í þessu?

Málið er einfallt,Jesús elskar þig, og þráir að eiga samfélag við þig! 

 

                      Kveðja frá mér til þín,

 

                            Halldóra.


Hugleiðing.

Sæl og bless öllsömul!

Mig langar til að koma með kvatningu til þín frá Orði Guðs, í dag.

Það stendur í Títusarbréfinu 2:7 Vertu grandvar í fræðslu þinni,og heilhuga,svo hún verði heilnæm og

óaðfinnanleg.Það er mjög víða í Biblíunni kvatt til þess að lesa Guðs orð, því það er eins og ljós á æfi vegi okkar, og leiðbeining, í hinum ymsu uppákomum lífsins. Það segir í guðspjöllunum að Jesús og

lærisveinarnir fóru stundum  afsíðis, á óbyggðan stað til að uppbyggjast saman. En það var sjaldnast næði.En á þessu getum við séð að Jesús þráir að eiga samfélag við lærisveina sína í einrúmi.Og við þig

vil ég segja: Gefðu Drottni tíma til að ná  til þín.Lestu orðið hans, notaðu bænina og vertu í ró og næði frammi fyrir  honum.Já, dveldu í nærveru Jesú! Og ef þú hefur kanski fallið frá honum eða eins og dofnað í trúnni, þá eigum við góðann Guð,sem skapaði okkur hreint og beint til samfélags við sig, og því er honum ljúft að fyrirgefa okkur, og gera okkur styrk í sér. Það stendur svo fallega. Því að af mikill elsku sinni hafi hann  endurlífgað oss í Kristi, þegar við drógumst frá honum.En af náð erum við hólpin  og Guð hefur í himinhæðum búið okkur stað með  Jesú.Þannig vildi hann syna okkur yfirgnæfandi ríkdóm náðar sinnar.Þú ert elskuð eða elskaður , af meiri og dypri ást en þig getur nokkurntíma grunað.Þú og allt þitt skipta Drottinn máli, sama hvað það nú er.Áhyggjur, heilsa,eða hvað sem er máttu koma með til Jesú. Hann vill bera það  með þér.Kvatning mín til þín er að þú haldir fast við Guðs heilaga orð, farir eftir því og eigir bænasamfélag við Guð hvern dag.

Og vertu trúr allt til dauða,og Guð mun gefa þér lífsins kórónu! 

      Þar sem þú ert þar er Jesús, að hugsa um þig!

                    

                   Blessun fylgi ykkur inn í helgina

                      Farið í kirkju á sunnudaginn.

 

                             Halldóra.
 


Samtalið á kaffistofunni.

Heil og sæl !

Fyrir mörgum árum kom ég inn á vinnustað, og var stödd á kaffistofunni þar, þegar einn starfsmaðurinn fór að gefa sig á tal við mig.Hann var yfirmaður á þessum stað.Svo barst tal

okkar að trúmálum, og hann sagði mér að Jesús Kristur og kristin trú væri ekkert fyrir sig, því hann væri svo  mikill byltingarmaður.Þá sagði ég honum að þá væri Jesús einmitt fyrir hann,því Jesús væri

mesti byltingarmaður veraldarinnar.Hann varð hissa. Svo fékk ég að útskyra fyrir honum hvernig fólk Biblíunnar hefði breyst við að kynnast Jesú.Svo útskyrði ég fyrir honum hvað margir á okkar tímum

hefðu breyst við að taka á móti Jesú inn í sitt líf.Það væri í raun, eins og að setja nyjann mann í gömul föt. Þetta skyldi hann mæta vel. Og á þessum tímapunkti í samræðunum  vorum við stödd á opnu en 

viðkvæmu svæði, og ég fann hungrið eftir friði Guðs. Þá kom einhver og ónáðaði okkur, og hann varð að fara.Ég fór líka.Það var ekki langur tími sem leið þegar ég sá andáts tilkynningu hans í Mogganum.

Þessvegna verðum við að gera köllun okkar og útvalningu vissa,svo við missum ekki af þeim friði 

sem Guð gefur, og eilífa lífinu.

Komdu og láttu það lengur ei bíða! 

                Jesús elskar þig!

 

Ps. Konur! Aglow Garðabæ, er með fund í kvöld kl.20 í Skátaheimilinu Jötunheimar við Bæjarbraut.

Ruth Guðmundsdóttir talar. Tískusyning frá tískuversluninni Belladonna.Kaffið kostar 700 krónur,

 Allar konur velkomnar!

                                    Takk fyrir innlitið!

                                            Halldóra.
 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband