9.4.2008 | 10:21
Nafnið þitt.
Heil og sæl!
Var að lesa í Hóseabók i gærkvöldi, kafla sem ber yfirskriftina" Ást Guðs á þrjóskum lýð"
Og í 8 versinu stendur : Hvernig ætti ég að sleppa hendi af þér"Mér fannst þetta svo yndislegt,að Guð
segir þessi orð,og þau eru ætluð þér! Samt stendur í versi 7: Lýður minn hefur stöðuga tilhneigingu
til þess að snúa við mér bakinu. Amma mín sagði stundum þegar yfir hana gekk"já, margt hefur Guð yfir að líta".Og það sem er í stöðunni varðandi Guð og okkur, er að Guð mun alls ekki sleppa af okkur hendi sinni.Þetta er mjög svo sterk fullyrðing" Hvernig ætti ég að sleppa af þér hendinni"
Það er Guð sem segir við þig núna" Hvernig ætti ég að sleppa af þér hendinni! Settu nafnið þitt fyrir framan þessa setningu, og leyfðu Guðs heilaga anda að snerta við þér.
Blessunar óskir frá mér til þín
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.4.2008 | 15:29
Bítillinn og þrjár konur.
Góðan dag!
Sir Paul McCartney er kominn í fréttirnar,eina ferðina en,og tilefnið,karlinn er með þremur konum samtímis.Ég segi nú bara , Jæja, og hvað er hann svo aftur gamall? Hann heldur kanski að hann sé 27! Er hrædd um að svona menn endi bara sem einsetukarlar.Óska honum samt sem áður alls góðs.
Svo vorkenni ég fína og fræga fólkinu að komast í heimspressuna, útá hvaða vitleysu sem er!
Mikið er gott að vera bara ég.(:-)
H.
![]() |
Með þrjár í takinu? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.4.2008 | 15:05
Háu fjöllin á Reyðarfirði.
Sæl öll!
Í sálmi 125 stendur svo fallega og myndrænn texti:
Þeir sem treysta Drottni
eru sem Síon fjall, er eigi bifast, sem stendur að eilífu.
Fjöll eru kringum Jerúsalem og Drottinn kringum lýð sinn
héðan í frá og að eilífu.
Hér á árunum áður bjó ég austur á Reyðarfirði, því ég var að vinna hjá kirkjunni
á þeim tíma.Og á hverjum degi horfði ég út um gluggann og hugsaði til þessa orðs.
Háu fjöllin,nálægð þeirra og fegurð, snertu einhvern streng í mér.Það var einhvernvegin svo auðvelt að skilja það sem þetta vers segir um nærveru Drottins.Samt er það nú svo að stundum líður okkur þannig að við finnum ekki fyrir þessari nálægð Drottins.Og það er þá helst á þeim stundum sem
okkur finnst við hvað mest þurfa á Guði að halda.En hann er samt hjá okkur.Hann er hjá okkur í hljóðri nærveru sinni.Mér finnst alltaf gott að nefna nafnið Jesús,þá er eins og ég finni fyrir hans nálægð.Og ég kvet þig líka til að gera þetta.Nefndu nafnið Jesús.Það er líka gott að syngja um nafnið Jesús.
Kærleiks kveðja til þín
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2008 | 08:50
Þetta dreymdi mig í nótt.
Blessuð og sæl öll!
Ég er helst á því að mig hafi dreymt dæmisögu Jesú þegar hann mettaði fimm þúsund mans,
því mér leið eins og ég hafi verið mitt á meðal fólksins, og hafði nylega þegið brauð úr lófa Jesú.
Þessvegna ætla ég aðeins að fara í nokkur atriði úr þeirri frásögu,því hún er afar fögur og í senn
gefandi.Þetta hefst allt á því að Jesús sendir lærisveinana út tvo og tvo saman, og gefur þeim vald
til að vinna verk sem hann gerði sjálfur venjulega,og þarna eru þeir að koma aftur til baka, og eru að segja Jesú frá öllu því sem þeir höfðu gjört og kenn Ég er vissum að á þessari stundu voru þeir spenntir og glaðir að segja frá.Og Jesús hlustar,en segir svo:" Komið nú á óbyggðan stað,svo að við séum einir saman,og getum hvílst um stund.En fólk var stöðugt að koma og fara, svo að þeir höfðu ekki næði til að matast.Og þeir fara saman á bát,en fólk sá til þeirra og kom gangandi úr öllum borgum,og var jafnvel komið á undan þeim.Jesús kenndi í brjóst um þetta fólk og kenndi þeim margt,því þau voru eins og sauðir er engann hirði hefur. Og tíminn leið,og langt var liðið á daginn.Þá sögð lærisveinarnir við Jesú : Láttu fólkið fara því hér er langt til byggða , svo fólkið geti keypt sér eitthvað að borða.Þá segir Jesú þessa undarlegu setning:" Gefið þeim sjálfir að borða" eigum við að fara og kaupa brauð fyrir þann litla pening sem við erum með? Ég get vel ímyndað mér að þeir hafi verið hissa.Jesús sagðiFarið og gætið að hvað mörg brauð eru hér.Svo hafa þeir farið gengið milli fólksins, og koma með fimm brauð og tvo fiska. Kanski var þessi fiskur einhverskonar sardínur til að hafa með brauðinu.Svo segir Jesús lærisveinunum að láta fólkið setjast í grasið og skipta sér í hópa.
Á meðan þeir gerðu það tók Jesús brauðin og fiskana,leit upp til himins og þakkaði Guði,síðan skipti hann þessu milli lærisveinanna og bauð þeim að bera þetta fram fyrir mannfjöldan.og allir urðu mettir.Og svo tóku þeir saman afganginn,tólf körfur, svo og fisk leifarnar.Og það er tekið fram að þarna hafi verið um fimm þúsund karlmenn, og þá auðvitað fjöldi kvenna og barna.Þarna var Jesús
að syna okkur hvern mann hann hafði að geyma.Hann gerði þetta svo fólkið örmagnaðist ekki á leiðinni heim.Hér byrtist kærleikur Jesú á undraverðan hátt.Svo heldur sagan áfram.Jesús sendir
lærisveinana frá sér til yfir til Betsaída, síðan kveður hann fólkið og sendir það brott, en fer sjálfur til fjallsins til að biðjast fyrir.
Það sem blessar mig mjög er hvað Jesús getur gert mikið úr litlu.Ef þú ert með áhyggjur af afkomu þinni um þessi mánaðarmót, eins og svo margir eru, skaltu lyfta þessum áhyggjum þínum til Jesú,
biðja hann um lausn og hjálp,og gera þitt besta til þess að svo geti orðið.Hann getur breytt kringumstæðum.Hann er lausnarinn! Hann elskar þig! og vill vera með þér á hverju sem gengur.
Jesús átti næðisstund með lærisveinunum,hann þráir slíka stund með þér.
Kveðja frá mér til þín
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2008 | 07:56
Drottinn er með.
Góðan dag!
Það er athyglis vert og jafnframt dásamlegt að þeir sem eru að vinna að eflingu Guðs ríkisins,
það eru þeir sem starfa á akri Drottins, fara út með boðskapinn,leggja á sig ómælda vinnu, eru ekki að þessu einir á bát.Það stendur í lok Markúsar guðspjalls. Drottinn var í verki með þeim og staðfesti boðun þeirra.Drottinn var í verki með þeim!
Það finnst mér alveg meiri háttar! Sért þú að starfa á akri Drottins,og finnir stundum eins og þú sért einn,þá eru þetta skilaboð til þín.Líttu svo yfir farinn veg og athugaðu hvort þetta sé ekki raunin.
Og besta leiðin til að fá uppörfun, er að draga sig aðeins í hlé,og setjast í skjól hins Hæsta.Hann mun skyla þér eins og fugl með fjöðrum sínum,undir vængjum hans máttu hælis leita.
Við öll erum send með fagnaðar boðskapinn,en þá er líka gott að vita að Drottinn er með í verki.
Gangi þér vel!
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.4.2008 | 07:22
Gott fyrir daginn.
Góðan dag!
Í morgun var ég að lesa í Lifandi orði,góð orð og kvetjandi, og ég held að þau muni blessa þig líka.
Róm 2:Nú skuluð þið sem tókuð á móti Jesú Kristi, einnig treysta honum til að ráða fram úr málum líðandi stundar og lifa stöðugu samfélagi við hann.Verið staðföst í honum eins og jurt sem skytur rótum og sygur til sín næringu. Gætið þess að halda áfram að vaxa í Drottni, svo að þið getið styrkst í sannleikanum.Látið líf yðar geisla af gleði og þakklæti fyrir allt, sem hann hefur gert.
Þarna stendur, gætið þess að vaxa í Drottni.Hvað þyðir það? Jú það þyðir að við sjálf verðum að
passa uppá líf okkar í Guði .Við verðum að vinna að sáluhjálp okkar með ugg og ótta, eins og stendur í Kóossusbréfinu .Í guðspjöllunum stendur: Leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt annað veitast yður að auki.
Svo er hér vers 10 í þessum sama kafla Kólossusbréfsins: Þegar þið lifið með Kristi, þá hafið þið allt sem þið þarfnist, því þið eruð í samfélagi við sjálfan Guð.Kristur er æðstur allra valdhafa og öll máttarverk eru honum undirgefin!
Best er að lesa þennan texta hægt yfir og skoða með athygli hverja setningu, svo að það verði okkur til blessunar í allan dag.
Hér eins og oft áðr væri hægt að vera með langann pistil, en það er ekki tilgangurinn.
Mig langar að lokum að segja við þig: Drottinn blessi þig og varðveiti í sér!
Kær kveðja til þín
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.3.2008 | 20:04
Bænin.
Blessuð öll!
Mig lamgar til að fjalla um bænina hér í dag. Bænin er lykil atriði samfélags okkar við Drottinn.
Bæn okkar getur verið hróp til Guðs, eða bara hljótt andvarp.Fögur orð eru ekki það sem hrífur Guð,það er afstaða hjartans, sem breytir öllu. Biblían segir Knyjið á, og fyrir yður mun upp lokið verða.
Stundum fáum við bænasvar strax, og á öðrum stundum verðum við að biðja með þrautsegju, jafnvel
í langann tíma.Bænin er því leyndardómur, á meðan að allir menn hafa aðgang að henni.Sjálf er ég í nánum tengslum við bænina.Í mínu persónulega trúarlífi og svo þjóna ég á bænalínunni á Lindinni, og þar fæ ég að heyra um stórkostleg bænasvör, sem jafnvel engir aðrir fá að heyra um.Ég ætla ekki að fara neitt dypra í það mál hér.En eitt er víst að það hafa gerst hin ótrúlegustu kraftaverk.
Í 1. Pétursbréfi 5:7 setendur: Varpið allri áhyggju yðar á hann, því hann ber umhyggju fyrir yður.
Það er bæn að koma með áhyggjur sínar fram fyrir Drottinn, og biðja hann um hjálp. Eyru Drottins eru ekki svo þykk að hann heyri ekki! Hann hlustar, og kemur til bjargar á réttum tíma, allavega ekki of seint,ef við erum trúföst.Þú skiptir Drottinn máli. Hann elskar þig og vill vera þér samstíga,
hjálpa þér og vera með þér í ólgu sjó lífsins.Bænin er sú leið. Tilvera okkar verður öll léttari og ánægjulegri ef við leggjum allt í Drottins hendur.Þessvegna notaðu bænina, treystu Drottni og hann mun vel fyrir sjá!
Megi Drottinn blessa þig ríkulega, og allt þitt hús!
Kveðja
Halldóra Ásgeirsdóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
30.3.2008 | 23:27
Landspróf.
Gott fólk!
Heilsa ykkur í Jesú nafni!
Mig langar til að gefa ykkur hlutdeild ó orði Guðs úr Efesusbréfinu kafla4, þar sem verða greinaskil og heitir "Nytt líf".Þar sem hinum kristnu er beinlínis bannað að hegða sér eins og heiðingjum.Það stendur svo skemtilega: skilningur þeirra er blindaður og þeir eru fjærlægir lífi Guðs, vegna vanþekkingar, sem þeir lifa í, og sínu harða hjarta.Þeir eru tilfinningalausir og hafa ofurselt sig lostalífi, svo að þeir fremja allskonar siðleysi af græðgi.En þannig hafið þið ekki lært að þekkja Krist.Því að ég veit að þér hafið heyrt um hann og hafið verið um hann fræddir eins og sannleikurinn er í Jesú.
Þetta er alveg magnað! Og höldum áfram: Þið eigið að hætta hinni fyrri breytni og afklæðast hinum gamla manni, sem er spilltur af tælandi girnd, en endurnyjast í hugsun, og íklæðat hinum nyja manni,sem er skapaður eftir Guði í réttlæti og heilagleika sannleikans.
Svo kemur upptalning: Leggið nú af lygina og talið sannleika hver við náunga sinn.,því vér erum hvers annars limir.Ef þér reiðist, þá syndgið ekki. Sólin má ekki setjast yfir reiði yðar,Gefið djöflinum ekkert færi.Hinn stelvísi hætti að stela ( ég er á því að hér sé líka átt við að við stelum ekki gleði annarra með því að tala illa um þá eða til þeirra) og leggi hart að sér, og geri það sem gagnlegt er með höndum sínum, svo hann hafi eitthvað til að miðla þeim sem þurfandi er.Látið ekkert skaðlegt orð líða yður af munni, heldur það eitt sem gott er til uppbyggingar,þar sen þörf gjörist,til þess að það verði til góðs þeim er heyra.Hryggið ekki Guðs heilagan anda, sem þér hafið verið innsiglaðir með til endurlausnardagsins.Látið hverskonar beiskju vera fjærlægt yður og alla mannvonsku yfirleitt. verið góðviljaðir hver við annan miskunnsamir, fúsir til að fyrirgefa hver öðrum, eins og Guð
hefur í Kristi fyrirgefið yður.
Það er svolítið gott að spegla sig í þessum orðum, og spyrja ,hef ég?
Hef ég sagt ósatt?Hef ég reiðst?
Hef ég stolið?
Hef ég sært einhvern með orðum mínum?
Er ég fullur beiskju eða mannvonsku?
Get ég fyrirgefið?
Þetta er hálfgert landspróf,fyrir okkur öll!
Ég veit það eitt að enginn fær 10-En gangi ykkur vel- Ég er fallin.
En það góða í stöunni er að Jesús fyrirgefur syndir, og við getum byrjað uppá nytt.
Kær kveðja Halldóra
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.3.2008 | 21:44
Skaut eiginkonuna.
Skaut eiginkonuna! Ég verð að viðurkenna að ég fór bara að skelli hlæja.Það er ekki fallegt, ég veit það
en mann greyið, var í vanda.Ég er hinsvegar viss um að ef hann hefði spurt konuna ráða, hefði hann aldrei þurft á byssunni að halda.Svo finnst mér þessi eiginmaður bara ekki bera virðingu fyrir húsinu sínu,skjóta gat í stað þess að bora.Ég þakka fyrir að hann er ekki tannlæknir! ég segi nú bara eins og hann afi minn forðum:Ekki er öll vitleysan eins,þó hún sé svipuð !
![]() |
Ætlaði að setja upp gervihnattadisk en skaut konuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2008 | 14:20
Til unhugsunar.
Fallegur dagur,og Guð blessi ykkur öll á þessum degi
Þegar einhver verður á vegi þínum,þá heilsa
honum með blessun, og Guð mun blessa þig á ny.
Hér er annað dáldið gott:
Gef þeim kærleiks koss í huga þér sem angra þig
með fasi sínu og framkomu.Þá mun Guð aftur og
aftur veita þér kærleikskoss.
Það besta við lífið er að Drottinn Guð fyrirgefur syndir
og elskar okkur óendanlega. !
Að venju, brostu! Helst út að eyrum!!!
Halldóra Ásgeirsdóttir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Bloggvinir
-
aglow
-
stingi
-
markusth
-
gunnarasgeir
-
arabina
-
arncarol
-
meyfridur
-
baenamaer
-
brandarar
-
cakedecoideas
-
christiancoaching
-
einargisla
-
fanneyogfjolnir
-
fridrikschram
-
gudnim
-
alit
-
zeriaph
-
drengur
-
eyfeld
-
jonmagnusson
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
krist
-
kketils
-
vonin
-
margis
-
mofi
-
olijoe
-
ragnarbjarkarson
-
ragnargests
-
rl
-
rosaadalsteinsdottir
-
sirrycoach
-
snorribetel
-
sur
-
svala-svala
-
svavaralfred
-
hebron
-
tb
-
valdimarjohannesson
-
icekeiko
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar