Starfsfólki brugðið.

Blessuð og sæl!

Ææ hugsaði ég þegar ég las þessa frétt.svo héldu hugsanirnar áfram,eins og þessi eftir einn ei aki neinn! Svo hugsaði ég aðeins dypra og manneskjulegra um það að þarna var á ferðinn einhver manneskja sem í okkar huga er bara frétt.Nú er sá/sú manneskja niðurbrotin væntanlega.Svo kom starfsfólkið til vinnu í morgun og þeim var brugðið eðlilega.En það sem þyrfti að komast inn í huga þeirra sem nota áfengi er að það  er stranglega bannað að setjast undir styri fullur.Ekki bara sín vegna heldur líka allra hinna vegna í umferðinni.Við þurfum öll á því viti að halda í umferðinni sem við höfum fengið hjá Guði. Annars getur farið illa. Það þarf lika að minna alla gangandi  á að ana ekki út á göturnar  fyrir bílana.Var að keyra um daginn og þá gekk ung kona með þrjú smá börn fyrir bílinn hjá mér og ég varð að snar bremsa.Inn um gluggann heyrði ég konuna segja er hún snar rugluð ætlar að keyra á okkur. Það er eins og sumt fólk hugsi ekki skyrt í umferðinni.Í den þegar löggan var með umferðarfræðslu í Vogaskólanum,þá bryndi hún fyrir okkur að líta til beggja hliða og fara ekki út á götu fyrr en það væri óhætt. Núna þegar skólarnir eru að byrja ættu foreldrar að fara yfir þessi mál með ungunum sínum.

         Góðar stundir!

                                   Halldóra.


mbl.is „Starfsfólki brugðið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn gamall og góður.

Góðan dag!

Ef fund þú girnist frelsarans

og finnst þér ei þú ná til hans.

Send heita bæn þér brjósti frá.

Hún brátt mun Jesú fundi ná.

 

Ef óskar þú að opnist dyr

Guðs eilífs ríkis jör sem fyr

Send bæn að knyja öflugt á

og upp mun lokið verða þá.

 

Ef Drottins þyrstir þig í náð

haf þá hið sama góða ráð

Lát bæn þér lind fram leiða þá

og lífsins vatn af hellu slá.

                    Danskur sálmur- Valdimar Briem.

 

Kæri vinur,hvernig sem allt er í dag hjá þér,komdu til Jesú með öll þín mál.Og Drottinn heyrir bæna ákall þitt.Hann kemur með sinn frið til þín sem er æðri öllum skylningi.Misstu ekki af því!

 

                             Guð blessi þig!

                                                    Kveðjur úr Garðabæ

                                                          Halldóra.


Bloggfærslur 24. ágúst 2010

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband