Maðurinn missti sig gjörsamlega

Heil og sæl á þessum fallega sólskis degi!

Stundum verða atvik úr daglega lífinu,efni í ræður hjá ræðu mönnum, og þannig er það hjá mér í dag.,

Varð nefnilega vitni að því nylega að ungur maður,húsbóndinn á heimilinu,kom askvaðandi út úr húsin þar sem hann byr, og helti sér yfir tvo unga pilta sem voru að ræða saman í róleg heitum fyrir framan þetta sama hús.Og blótsyrðin og ónefnin sem hann lét dynja á öðrum piltinum, er ekki hæft á prenti, svo mikið er víst.Ástæðan fyrir þessari uppá komu var svo lítil fjörleg,að enginn annar tók eftir því sem pirraði þennan mann.Annar  pilturinn kom á bíl og beið hins við húsið,á meðan hann beið, steig hann á bensín gjöfina með til heyrandi  hávaða,rétt sem snöggvast,annað ekki. Pilturinn bað þennösku reiða mann afsökunar, sá sagðist ekki fyrirgefa þetta og tæki ekki hönd hans, lét svo skammar yrðin og blóts yrðin dynja á honum eina ferðina enn.Þessi maður er ekki yfir lystur kristinn. En það varð tilefni tilefni til þess að ég fór að hugsa til okkar kristnu, erum við Drottni til sóma? Mér finnst ég hafa orðið

svo oft  vitni að því að kristnir menn setja blett á Jesú.Þetta sama fólk hegðar sér oft eins og "ofur kristnir" á samkomum,þegar aðrir sjá.En eru  ekki líkir Jesú annarsstaðar.Það er orð sem talar inn í þessar hugleiðingar mínar hér í dag úr Filippí bréfinu4:8 Að endingu bræður, allt sem er satt,allt sem er göfugt,rétt og hreint, allt sem er elskuvert,og gott afspurnar, hvað sem er dyggð, og hvað sem er lofsvert,hugfestið það.

Það sem segir "gott afspurnar" er dálítið góður punktur fyrir okkur að skoða okkar líf út frá.

Svo er annað sem Biblían segir , og það er, eins og þér mælið mun yður aftur mælt verða!

Einu sinni var kona sem vann á ákveðnum  vinnustað,hún var yfirlíst kristin, en það var svo skrítið  að þegar hún hætti, á þessum vinnustað, voru allir fegnir.

Sjálf þarf ég daglega að skoða mitt líf, til þess að minna mig á.

Ætla að skilja eftir  þá spurniingu til þín í dag að glíma við, hvort þú sért Drottni til sóma hvar sem þú ferð?

                  Drottinn blessi þig og hjálpi þér á veginum með sér.

                               Halldóra.
 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Haldóra.

Þessi pistill er þess verðugur fyrir alla að hugleiða og inna sjálfa/nn sig.

Ég segi fyrir mig að það er svo stuttur tími síðan ég tók Kristna trú, og á það til að missa mig. og þá reyni ég eða er alla vega tilbúin að bæta mig.

Mér finnst mitt líf haf batnað mikið síðan,þrátt fyrir erfið veikindi og erfiða lífsbaráttu,þá get ég líka þakkað það að upplifa þennan tíma sem enn er ekki búinn. Vegna þess að það hefur kennt mér, svo margt í ýmiss konar raunum, þegar ég skoða hlutina eftir á.  þetta á allt eftir að lagast.

 Ég trúi á það með fullvissu að svo verði,þannig hvarf frá mér áfengið á sínum tíma .

Ég  TRÚÐI    því að það yrði frá mér tekið, og það varð.

Ég mun alltaf muna þá stund.

Takk fyrir góðan pistil,

 og megi algóður Guð vaka yfir þér og þínum.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 04:32

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Halldóra mín.

Sorglegt að lesa um þennan mann. Ungi maðurinn bað hann fyrirgefningar en hann vildi ekki fyrirgefa honum það sem að mínu mati var ekki neitt.

Maður uppsker víst eins og maður sáði og þetta var hræðileg sáning fyrir þennan mann. Ég vona að hann fái ljós yfir þessa misgjörð sína og fái tækifæri að koma að krossi Jesú Krists og biðji Jesú fyrirgefningar og eins að biðja unga manninn fyrirgefningar ef hann á tök á því. Ekki víst að hann sái hann aftur. Megi almattugur Guð miskunna þessum manni.

Guð blessi þig og gefi þér góðan dag.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.7.2008 kl. 10:48

3 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Sæl bæði tvö!

Þórarinn! Það gleður mig að heyra að þú hafir náð slíkum árangri! Þú mátt ekki vera svekktur þó þér takist ekki alltaf vel upp.En við erum öll að læra að taka framförum, hver á sinn máta.Vegni þér vel vinur!

Rósa! Takk fyrir þetta! Eins og talað út úr mínu hjarta.

                                     Hlý kveðja   Halldóra. 

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 21.7.2008 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Okt. 2024
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.10.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband