Laugarvegurinn

Blessuð og sæl!

Það var í kringum 1984 sem ég réði mig í vinnu hjá kirkjunni,til að sjá um æskulyðsstarf á vegum

kirkjunnar á austfjörðum,það var yndislegur tími, og ég minnist hans með gleði! Á þessum árum kynntist ég fullt af góðu fólki, sem ég annars hefði aldrei kynnst, og það er mjög dyrmætt, ungum og gömlum, og ég finn til þakklætis og gleði að hafa kynnst þessu góða fólki.Við sumt af þessu fólki hef ég haldið sambandi æ síðan. Tilefni þessa skrifa er að einum fullorðnum hjónum kynntist ég meira en öðrum,á þessum árum,því þau voru nágrannar mínir. Maðurinn sagði mér frá skemmtilegu atviki úrlífi sínu.Og það var þannig að hann teymdi , sem ungur maður belju, niður Laugarveginn í Reykjavík!.

Erindið sagði hann mér,en því miður man ég það ekki,þó er eins og mér finist það hafa tengst þessari belju. Gömlu göturnar hafa sögu,sem við hin þekkjum kanski ekki,eða höfum ekki heyrt af. Sem barn fór ég til ömmu minnar á Grettisgötunni, og þá var aksturs stefnan öfug við það sem er í dag.

Biblían talar líka um gömlu göturnar. Og segir ; Nemið staðar við vegina og lítist um og spyrjið  um gömlu göturnar,hver sé hamingjuleiðin, og farið hana, svo að þér finnið  sálum yðar hvíld.

Þú hefur kanski einhverntíma lagt af stað í gönguna með Guði, en svo tókstu einhverja hliðar beygju, og tapaðir sjónum af Drottni. Nú er kominn tími til að spyrja um þessa gömlu götu og fara hana! Á þeim vegi sem tilheyrir Drottni er Drottinn sjálfur í farar broddi, og stefnan er ljós,þeim sem fara þessa leið.Þeir stefna á himininn,á eilífa lífið með Guði. En veistu, að þar er fólk með allskyns bakrunn sem er á þessari leið,en það er ekki spurt um það.En þar er Jesús sem segir við  okkur 

synduga menn: "Barnið mitt syndir  þínar eru þér fyrirgefnar" Og hann segir líka" Ég þekki þig með nafni ,þú ert minn".

Í dag vil ég benda þér á þessa gömlu götu. Henni hefur ekkert verið breytt, hún er alveg eins og áður, og bíður þín. Jesús bíður þín! Hann saknar þín og vill fá þig í sinn hóp á ný.  Ef þú stígur þetta skref á móti frelsaranum, stígur hann líka skref á móti þér.Og það sem meira er,hann réttir þér höndina sína, og vill leiða þig, og vera vinur þinn.

Villt þú vera vinur hans?

                                        Bestu kveðjur í kærleika Krists

                                            Halldóra Ásgeirsdóttir. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð.

Því miður vilja ekki allir fara gömlu götuna og finna hamingjuleiðina.

"Spyrjið um gömlu göturnar"

Svo mælti Drottinn: "Nemið staðar við vegina og litist um og spyrjið um gömlu göturnar, hver sé hamingjuleiðin, og farið hana, svo að þér finnið sálum yðar hvíld." Jer. 6: 16. 

Guð blessi þig og varðveiti.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 21.7.2008 kl. 11:31

2 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Heil og sæl Rósa mín!

Takk fyrir innlitið og kommentið.

Við báðar vitum að þessi hamingjuleið  færir þeim sem fara hana er búinn friður

sem er æðri öllum skilningi!

Blessun og friður úr Garðabæ       Halldóra. 

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 21.7.2008 kl. 19:12

3 Smámynd: Linda

Yndislegur lestur 

Linda, 25.7.2008 kl. 13:55

4 identicon

Sæl Halldóra mín.

Ég er sammála,mér finnst þetta göfug lesning og góð áminnig í þoku lífsins.

Góður Guð veri með þér,við hljótum að fara að sjást.

 Annars er ég að fara að pakka niður.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 28.7.2008 kl. 05:44

5 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Heill og sæll Þórarinn!

Takk fyrir kommentið,ekki væri það slæmt að fá að sjá bloggvinina!

Annars er ég á faralds fæti um þetta leiti árs.

Njóttu lífsins minn kæri,og Drottinn blessi þig  æfinlega!

Sumar kveðja     Halldóra. 

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 28.7.2008 kl. 13:21

6 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Amen! 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 1.8.2008 kl. 00:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Okt. 2024
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.10.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband