Vaknaði við þetta.

Sæl kæru vinir!

Í dag hefst aðventan.Biðin eftir jólahátíðinni.

Mig langar til þess að blogga um annað í þetta skiptið.

Þar sem Pasíusálmarnir eru í miklu uppáhaldi hjá mér,leita

ég oft  í þá.Æfinlega blessa þeir mig. Ég er svo heppin að

á unglingárunum gekk mér vel að læra utan að og ég lærði

mjög marga Passíusálma. Í morgun þegar ég fór á fætur 

hljómaði í huga mínum þetta vers úr fyrsta sálminum

Innra mig loksins angrið sker,

æ, hvað er lítil  rækt í mér.

Jesús er kvalinn í minn stað.

Of sjaldan hef ég minnst á það.

Mig dreymdi í  nótt  að ég væri að kenna Tímóteusarbréfið.

Og draumur þessi var svo frábær því í draumnum kunni ég það utan að.

Í öllum þessum morgun hugleiðingum mínum datt mér í hug annað vers

úr þessum sálmi.

Horfi ég í huga mér,

herra minn Jesús eftir þér.

Dásamleg eru dæmin þín.

Dreg ég þau gjarnan heim til mín.

 

Við ykkur biðjandi fólk vil ég segja: Höldum áfram að biðja fyrir  Íslensku þjóðinni !

Biðjum Drottinn að þessar hörmungar sem yfir  okkur ganga taki skjótan endi , og blessanir frá himni Guðs flæði yfir okkur.Biðjum fyrir þeim sem eru að reyna að leysa máli,en finna enga lausn,

að Guð gefi þeim visku og vísdóm. Og að Drottinn Guð verði okkur náðugur. Að koma  með málin fram fyrir Guð, veitir blessun og frið.

 Náð sé með ykkur  frá himni Drottins Guðs!

                                        Kveðja   Halldóra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Halldóra.

Já,ekki veitir af að miðla til okkar hinna, sem njótum framtaks þíns.

Algóður Guð gæti þín og þinna.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 29.11.2008 kl. 14:04

2 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Heill og sæll Þórarinn!

Takk fyrir kærleiksríka kveðju.

Mæli með því að þú komir í kirkju annað kvöld.

Mín allra besta kveðja til þín og henni fylgir bæn

um góða heilsu og afkomu. Geymi þig Guð!

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 29.11.2008 kl. 14:09

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð Halldóra Konungsdóttir

Við erum lánsamar fyrir það sem Jesús gerði fyrir okkur.

Takk fyrir að minna okkur á að biðja fyrir landi og þjóð og fyrir ráðamönnum að Guð gefi þeim visku og vísdóm.

Vertu Guði falin.

Kær kveðja/Rósa Konungsdóttir

Rósa Aðalsteinsdóttir, 29.11.2008 kl. 16:40

4 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Kæra Rósa!

Ég fer  að hlægja í hvert skipti sem þú kommentar á mig!

Mér finnst við svo smart hvernig þú titlar þig!

Við elskum báðar Drottinn,það er yndislegt, og viljum gera hans vilja,

það gefur lífinu gildi. Guð gefi þér yndislegan sunnudag!

        Halldóra.

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 29.11.2008 kl. 23:46

5 Smámynd: Linda

Sæl Halldóra mín, mikið hlakka mig til að sjá þig í ræðupúltinu á morgun, ég kem pest eða engin pest.  Yndisleg færsla frá þér eins og þér einni er vant.

bk

Linda.

Linda, 30.11.2008 kl. 00:41

6 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Linda mín!

Takk fyrir hly orð!

Ég hlakka líka til að sjá þig!

Kveðja úr Garðabæ

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 30.11.2008 kl. 12:44

7 Smámynd: Linda

Hæ Halldór mín, mig langaði svo að koma og faðma þig og þakka þér fyrir frábæra fræðslu í kvöld, þú hefur geislandi framkomu og skemmtilegan talsmáta sem fangaði athygli mína.  Ég bið að Guð blessi þig og varðveiti. og hittumst þegar nær dregur jólum.

kv.

Linda.

Linda, 1.12.2008 kl. 00:04

8 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Linda mín!

Ég svipaðist um eftir þér,en fann þig ekki .

Líklega vegna þess að ég var í fyrirbæninni, og

þá er hugur minn við það. En takk fyrir fallega kveðju.

Guð blessi þig -og hressi!

    Halldóra.

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 1.12.2008 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband