Blessun Guðs fyrir okkur öll.

Komið þið sæl!

Við þig sem lest þessar línur vil ég segja og það eru orð Biblíunnar:

Fel þú Drottni verk þín

þá mun áformum þínum framgengt verða.

Og í Jesaja 41:10

Óttast þú eigi,því  að ég er með .

Lát eigi hugfallast,því að ég er þinn Guð.

Ég  styrki þig,ég hjálpa þér, ég styð þig

með hægri hendi réttlætis míns.

Og í sálmi 37:5

Fel Drottni vegu þína treystu honum 

og hann mun vel fyrir sjá.

Og í Kólossusbréfinu  stendur:

Látið orð Krists búa ríkulega hjá yður.

Og í Jerimía 29:11 stendur;

Því að ég þekki þær fyrirætlanir sem 

ég hefi í hyggju með yður-segir Drottinn-

fyrirætlanir til heilla ,en ekki til óhamingju

að veita yður vonarríka framtíð.

Með kveðju og bæn um blessun Guðs fyrir okkur öll!

                 Halldóra.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl kæra vinkona.

Yndisleg orð sem ég ætti að fara með aftur og aftur því ég veit að vegna fyrirheita Guðs þá mun ég lífi halda og það með stæl. HVAR VÆRI ÉG ÁN ÞÍN???

"Ég skal eigi gleyma fyrirmælum þínum að eilífu, því að með þeim hefir þú látið mig lífi halda." Sálm. 119:93.

"Þetta er huggun mín í eymd minni, að orð þitt lætur mig lífi halda." Sálm. 119:50.

Þegar ég las pistilinn þinn datt mér í hug orðin í Sálmi 119:93. Fann nokkur í viðbót sem hafa svipað innihald. Gott að hafa Biblíuna á netinu og geta slegið inn eins og núna: "mig lífi halda." Ég fékk tíu vers að velja úr og kom með eitt auka. "Ég er með yður alla daga les ungi maðurinn úrbæklingnum Yndisleiki Orðsins.

Er að hlusta á Lindina.  

Takk fyrir frábær orð sem eru full af fyrirheitum Guðs almáttugs.

Vertu Guði falin 

Kær kveðja/Rósa 

Rósa Aðalsteinsdóttir, 2.12.2008 kl. 16:02

2 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Amen!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 2.12.2008 kl. 20:53

3 identicon

Sæl Halldóra mín.

Þú kannt að ylja okkur um hjartaræturnar sem lesum bloggið þitt . Frábært.

Vertu Guði falin.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 4.12.2008 kl. 07:45

4 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Takk fyrir kæru bloggvinir!

Guð veri með ykkur!

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 4.12.2008 kl. 23:08

5 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð

"Treystu Drottni og gjör gott, bú þú í landinu og iðka ráðvendni, þá munt þú gleðjast yfir Drottni, og hann mun veita þér það, sem hjartað þitt girnist." Sálm. 37. 3.-4

Megi almáttugur Guð blessa þig.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 5.12.2008 kl. 00:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband