Símarnir í lífi mínu.

Komið þið sæl!

Hef verið að hugsa um hvað síminn hefur mikið vægi í lífi okkar.Meira að segja voru sérstakir símastólar, sem voru sannkallaðar mublur, eins og þeir voru nefndir.Þá sat maður á sama stað  í þar tilgerðum þæginlegum jafnvel bólstruðum símastól! Í dag finnst mér þetta mjög findið. Á bernskuheimili mínu var stóri svarti síminn hafður litlu borði úti í horni og ef maður ætlaði að tala lengi sótti maður bara eldhús koll til að tilla sér á. En ég var nú ekki mikið í símanum á þessum árum.Mesta lagi svaraði maður fyrir foreldrana.Svo komu gráu símtækin mun léttari, en þau svörtu.Ég á engar sérstakar  minningar um  rómantísk símtöl í þessum símumWink En ég á minningar um að geta ekki hreyft sig neitt.Það var ekki fyrr en ég flutti að heiman þá til Reyðarfjarðar að síminn fór að skipta mig máli. Ég man meira að segja númerin hjá mér, heimasíminn var 98-4375 og á skrifstofunni 98-4376 og það er  í raun merkilegt  að þessi númer gat ég valið sjálf.Í dag er þessu öðruvísi farið.  Víkjum aftur að heimasímanum. Hann var staðsettur uppá hillu og ég var bundin á þessum eina punkti  ef ég þurtfti að vera í  símanum.Mér fannst það vont enda tengdust símtölin vanalega vinnunni og ég þurfti alltaf að vera að segja " Bíddu aðeins" þá fékk ég mér langa snúru og gat farið um allt  með símtækið í höndunumBlush. Það voru engir farsímar heldur  til þá. Sumir voru með talstöðvar í bílunum sínum.Mér fannst það of strákalegt, og sleppti því.En éf ég hefði einhverntíma á lífsleiðinni þurft  farsíma þá var það á þessum tíma vegna ferðalaga sem  tilheyrðu embættinu.  Og þó að ég ætti kærasta í bænum varð maður að notast við þessa gömu síma, engin sms eða neitt þannig.Nú erum við öll með þráðlausa síma og gemsana auðvitað, og gerum alveg helling á meðan við erum í símanum! Eldum mat, þurkum af,brjótum saman þvott ofl,ofl. Svo er maður ekkert voðalega gamall í árum talið,en hefur upplifað þvílíka breytingu á svo mörgum sviðum.

En eitt breytist aldrei kæru vinir! Drottinn Jesús Kristur! Hann er hinn sami í gær og í dag og um alla eilífð.Símtalið til hans kostar ekkert, að er bara bæna andvarp þitt sem það kostar.Hvernig sem allt er komdu til Jesú í bæn.Þú þarft ekki að druslast með snúru í eftir dragi til að  geta talað. Línan til himins er þráðlaus og opin -fyirir þig!

 Guð blessi þig!

                                 Kveðja 

                                                 Halldóra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Símstöðin er opin og línan lögð nú er.

Lögð frá himni niður yfir jörðu hér.

Aldrei lokast þessi undrastöðin kær.

Aðeins nota trú og bæn og sambandið þú fær.

Kór: Bænasíminn upp til himins hringja kann.

Helgir lífsins straumar berast gegnum hann.

Faðir vor hann lagði fyrir börnin sín.

Flýt þér, hring í númer Guðs að frelsist sálin þín.

Ekkert kostar símtal, því allt er fullkomnað.

Áður Drottinn Jesús hefur séð um það.

Hann með krossins dauða greiddi gjaldið mitt.

Góði Jesús, lof og dýrð, ég prísa nafnið þitt.

Máski, kæri vinur, þú misstir símann þinn.

Meðan synd og vantrú komst í hjartað inn.

Þá er ráðið eina: Iðrun sönn og góð.

Aftur nærðu sambandinu fyrir Jesú blóð.

Stórir menn í heiminum hindrað eigi fá.

Himnasamband þess, er réttu trúna á.

Þrumur eða eldingar ei þau slíta bönd.

Er með Jesú náðarverki tengdi Drottins hönd.

                                                     H.Ó - K.S.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 4.1.2009 kl. 17:10

2 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Takk Rósa mín!

Var með þennan sálm í huga þegar ég skrifaði  þetta .

Og hugsaði  með mér sálmurinn kemur næst, svo kemur þú með þetta.

Bara æði

Er á leiðinni í kirkjuna mína. Bið að heilsa þér og þínum 

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 4.1.2009 kl. 17:58

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Guð - gef mér æðruleysi
til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því sem ég get breytt
og visku til að greina þar á milli.

Að lifa einn dag í einu,
njóta hvers andartaks fyrir sig,
viðurkenna mótlæti sem friðarveg,
með því að taka syndugum heimi eins og hann er,
eins og Jesús gerði en ekki eins og ég vil hafa hann

og treysta því að þú munir færa allt á réttan veg
ef ég gef mig undir vilja þinn
svo að ég megi vera hæfilega hamingjusamur í þessu lífi
og yfirmáta hamingjusamur með þérþegar að eilífðinni kemur.

Amen

Rósa Aðalsteinsdóttir, 5.1.2009 kl. 00:55

4 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Blessuð mín kæra!

Vá hvað þetta er flott!

Æðruleysis bænin, en hvað er hitt?

Er þetta bæn eftir þig?

Þú veist hvar ég var í morgun, og ég  gerði ákveðna hluti  fyrir þig sem bara við tvær vitum um.

        Og Rósa vertu meira en" hæfilega" hamingjusöm . Halldóra.

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 5.1.2009 kl. 11:44

5 Smámynd: Aida.

Alltaf jafn gaman að sjá ykkur systur.

Bið Drottinn að blessa ykkur, i Jesú nafni. Amen.

Aida., 7.1.2009 kl. 14:21

6 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Sæl Aida! Ég hefði líka gaman af að sjá þig

Komdu endilega á Aglow fund á morgun kl. 20 í skátaheimilið Jötunheima r við Bæjarbraut

hér í Garðabæ! Þá gætum við sést

 Kveðja til þín   

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 7.1.2009 kl. 18:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband