26.5.2009 | 18:38
Draumurinn um Lyklafell
Blessuð!
Dreymdi draum í nótt sem ég læt hér inn í dag. Dreymdi Lyklafell við Sandskeið.Mér fannst það vera bústaður ríkisstjórnar landsins. Allt í einu byrjaði fellið að hristast ógurlega og ég hugsa,það er að koma eldgos í því kemur Jóhann Sigurðard. út með trommur og slær þær ógurlega og ég skyl að hún er að reyna að stilla til friðar á stjórnarheimilinu,í því klofnar fellið ,og ég sný mér við og lýt í átt til borgarinna.Þá kemur ógurlegt flóð eins og eldgos í áttina að Lyklafelli, en þetta var ekki eiginlegt gos heldur allskonar heimilistæki ,ísskápar ,frystikystur,stólar pottar og pönnur. Allt mjög stórt.Það var alveg ofboðslega mikið þetta flóð af þessum heimilistækjum.Mér fannst ég allt í einu standa þar sem gamla Lögbergs húsið stóð, og ég fylgdist grannt með þessum ósköpum.Og ég hugsa hversvegna Lyklafell? Samstundis kom í hugann Jú, lyklarnir eru hjá þessari ríkisstjórn.Svo sá ég ákveðna stjórnmálamenn inni í þessu fjalli, og þeir voru ekki að gera neitt. Og ég hugsa aftur.Já, þeir eru með lylana og eru ekki að gera neitt.Sorglegt. Síðan er mér litið hinum megin við fjallið,þar er þá grænt og fallegt tún og þar stendur Bjarni Benediktsson og er einhvernvegin tilbúinn að taka í taumana ef á þyrfti að halda.Svo sá ég fleiri stjórnmála menn og konur liggja í grasinu, og naga strá. En alltaf var sama flóðið af þessum heimilistækjum rennandi að þessu stjórnarheimili inni í Lyklafelli.
Um bloggið
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Bloggvinir
- aglow
- stingi
- markusth
- gunnarasgeir
- arabina
- arncarol
- meyfridur
- baenamaer
- brandarar
- cakedecoideas
- christiancoaching
- einargisla
- fanneyogfjolnir
- fridrikschram
- gudnim
- alit
- zeriaph
- drengur
- eyfeld
- jonmagnusson
- bassinn
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kketils
- vonin
- margis
- mofi
- olijoe
- ragnarbjarkarson
- ragnargests
- rl
- rosaadalsteinsdottir
- sirrycoach
- snorribetel
- sur
- svala-svala
- svavaralfred
- hebron
- tb
- valdimarjohannesson
- icekeiko
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ja hérna hér! Þetta er magnað!
Kolbrún (IP-tala skráð) 26.5.2009 kl. 21:16
Sæl og blessuð
Nóg að gera hjá þér á næturnar.
Merkilegt og sennilega mun þessi ríkisstjórn klofna fyrr heldur en seinna. Ekki byrjaði það vel þegar þau voru sammála um að vera ósammála um ESB.
Vertu Guði falin
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 31.5.2009 kl. 22:47
Takk fyrir kommentið konur mínar!
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 1.6.2009 kl. 15:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.