Stjörnurnar á andlitinu

KOmið þið sæl!

Þegar ég var um 15 ára gömul datt mér í hug að festa sjálf lysandi stjörnur í loftið í herberginu mínu,

að var ósköp fallegt í skammdeginu. Þetta hékk uppi nokkuð lengi.en svo fóru þær að hrapa fyrst ein og ein svo nokkrar og nokkrar. Og þær lágu oft við andlitið mitt á morgnana þegar ég vaknaði.En það merkilega var að ég var ekkert pirruð á þessu stjörnu hrapi.Eiginlega nokkuð fegin því ég fékk að mig minnir leið á þessu skrauti.Þessi stúlka í þessari frétt fór ekki eins vel og ég út úr hlutunum.Mínar voru sinn tíma í loftinu. En hún er með í andlitinu. Það er engu líkara en hún hafi rotast að vakna ekki við þessa aðgerð sem öllum finnst sársauka full,jafnvel mér sem hef bara séð þetta gert.Og myndi aldrei gera svona,enda komin yfir miðjan aldur.

Í fullri alvöru þá þurfum við öll að muna að við eigum bara eitt líf, og okkur ber að fara vel með það. Og  húðflúr er nokkuð sem erfitt er að losna við nema með öðrum álíka sársauka Við þurfum öll að vanda okkur og muna að vera skynsömLífið er of dyrmætt til að gera vitleysu.En ef okkur verður á þá er bara að byrja upp á nytt,með hjálp Guðs. Við gefumst aldrei upp þó móti blási.En við þurfum styrka föður hönd Drottins Guðs með okkur.

                                Bestu kveðjur úr Garðabæ.

                                                         Halldóra.


mbl.is Vaknaði með 56 stjörnur á andlitinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð

Þessi stúlka á alla mína samúð. Ég myndi ekki vilja láta setja húðflúr á líkama minn. Líkami minn er musteri Guðs og ég þarf ekkert að myndskreyta það sem Guð hefur skapað.

Vona að þú getir smá brosað en það er jú ókeypis nú á þessum góðæristímum þegar ríkisstjórnin ræðst á garðinn þar sem hann er hæstur og ætlar að lækka kaup hátekjufólks sbr. öryrkja og ellilífeyrisþega.

Vertu Guði falin

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 19.6.2009 kl. 20:42

2 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Sæl og blessuð austfjarða mær!

Suma hluti er hægt að bæta. En betra er heilt en brotið segir máltækið.

Það mætti segja um þetta eins og margt anað, Gerðu ekki það sem þú gætir séð eftir.

Við erum nú svo blessaðar Rósa mín,og verndaðar af Drottni.

 Bestu kveðjur á kvennahlaups deginum.

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 20.6.2009 kl. 11:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband