Davíð

Kæru vinir!

Mig langar til að setja hér inn nokkur uppörfandi vers úr Biblíunni.

Jesaja 54:10

Því þótt fjöllin færist úr stað og hálsarnir riði

skal mín miskunnsemi við þig og kærleikur  ekki

færast úr stað og minn friðarsáttmáli mun ekki raskast.

Sáttmáli um heilbrigði, hamingju, öryggi, velgengni,

góðvild og velmegun, segir miskunnari þinn Drottinn.


Jakobsbréf  5:16

Áhrifarík og afkastamikil bæn réttláts

mans er kröftug,veigamikil og máttug til sigurs.

 

Fyrir stuttu bloggaði ég um Davíð Oddsson og það skoðuðu 1200 mans þetta blogg á einum degi

Ég á nú aldeilis ekki von á því að þetta blogg skoði jafn margir,en mig langar til að nefna Davíð Biblíunnar. Hann var alls ekki mikið fyrir mann að sjá,en Guð fól honum stórt verkefni,að fella risa. Og honum tókst það.Risinn Golíat kom útbúinn  í allskyns brynjum og vestum ,en Davíð með einn stein og slöngu bút.

Kanski stendur þú frami fyrir stóru verkefni sem þér finnst ókleyft.En ég held að við þurfum engan  rosalegan kjark, og líta út eins og Golíat. Allt sem við þurfum er að leggja af stað og hafa Drottinn með í för. Og gera okkar besta ,þá fer allt vel. Notum bænina og biðjum Jesú að vera með okkur,

þá mun hann koma og vera hjá okkur og með okkur.

Ekki líta smáum augum á sjálfan þig,vertu auðmjúkur,og Guð mun blessa þig.

 

                                 Í kærleika Krists.

 

                                      Halldóra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bryndís Böðvarsdóttir

Vildi bara þakka þér fyrir uppörvandi og hvetjandi ræðu um síðustu helgi í Kristskirkjunni. Blessaði mig mikið.

Guð blessi þig!

Bryndís Böðvarsdóttir, 21.7.2009 kl. 14:59

2 Smámynd: Aida.

Takk Halldóra mín fyrir uppörvandi orð frá Drottni.

Þú mátt biðja fyrir mér, ég r í einhverri sálarkreppu. Ég yrði þér svo þakklát.

Aida., 22.7.2009 kl. 18:27

3 Smámynd: Aida.

Takk Halldóra mín fyrir uppörvandi orð frá Drottni.

Þú mátt biðja fyrir mér, ég r í einhverri sálarkreppu. Ég yrði þér svo þakklát.

Drottinn blessi þig og varðveiti.Í Jesú nafni.Amen.

Aida., 22.7.2009 kl. 18:30

4 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Kæra Bryndís! Takk fyrir þessa elskulegu kveðju!

Guð blessi þig og þína!

Aida! Vertu Drottni falin og megi hann hressa þig til sálar og líkama og anda!

   Kveðja 

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 26.7.2009 kl. 13:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband