Kjarvals málverkið.

Komið þið sæl og blessuð!

Það eer kominn tími á blogg,enda hef ég ekki verið viðlátin um tíma.

Það er af mér að frétta að ég hef ferðast þó nokkuð í sumar.Nylega var 

ég stödd á Bolafjalli. En ég heimsótti meðal annars vestfirðina í sumar.

Fyrir nokkru kom ég þó sem gestur á heimili þar sem mikil gersemi var

en enginn sinnti. Í fallegu sumarveðri í sumar var ég gestkomandi í húsi 

þar sem Kjarvals málverk hékk uppi á vegg.En það var í lítt notuðu herbergi 

á bak við hurð.Engum til ánægju.Ég spurði heimilisfólk út í þetta, og fékk þau svör

að þau væru svo lítið fyrir svona myndir.Þó að ég sé enginn sérfræðingur þá veit

ég um verðmæti þessarra mynda. Og mér datt í hug að sennilega er á mörgum heimilum

ymiskonar verðmæti sem ekkert er spekúlerað í. Það erutil Biblíur eða nyjatestamenti á 

flestum heimilum,en fólk les ekki það sem þar stendur.En ég veit að ef við leggðum okkur niður við að lesa það sem þar stendur og fara eftir því,þá væri margt öðruvísi.Látum ekki fjársjóðinn í Guðs orði framhjá okkur fara.Það eru mikli andleg verðæti í þeirri góðu bók.Verðmætt málver er ekki neitt í samanburði við þau verðmæti sem blessa.

           

                             Verið Guði falin

                                           Halldóra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Halldóra .

Sammála.

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 13:10

2 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Sæll Þórarinn! Takk fyrir innlitið.

Svo ertu velkominn í Fossaleynið í kvöld

Kær kveðja vinur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 23.8.2009 kl. 14:32

3 identicon

Ég beið og beið eftir framhaldinu, að heimilisfólkið hefði fyrir tilstilli þína selt málverkið fyrir svo mikinn pening að þau gátu séð fram á ánægjulegt ævikvöld í ellinni. En hinn sanni fjársjóður er vissulega ekki falinn í peningalegum sjóðum heldur orði Guðs og það veit Dóra Lára best af öllum.

Ásta Björg Þorbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 23.8.2009 kl. 23:29

4 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Sæl Ásta !

Þessi grein mín lítur út eins og ég sé sérfræðingur í myndlist.En það veit Guð að ég veit afskaplega lítið um málverk.

Hér á bæ eru engin Kjarvalsmálverk.Hér hanga hinsvegar saumaðar myndir eftir sjálfa mig.Sem fyrir öðrum eru verðlitlar

en eru bara alveg ágætis myndir Ég er viss um að málverkið eftir Kjarval á eftir að hanga bak við hurð í þessu húsi um ókomna tíð.

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 24.8.2009 kl. 13:36

5 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Halldóra mín

Flott hjá þér. Gott væri nú fyrir landsmenn alla að taka Biblíurnar úr hillunum og dusta af þeim rykið og lesa.

"Því hvar sem fjársjóður þinn er, þar mun og hjarta þitt vera." Matt. 6:21.

Drottinn blessi þig og varðveiti.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 24.8.2009 kl. 23:36

6 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Hlyjar kveðjur til þín Rósa!

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 25.8.2009 kl. 12:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Sept. 2024
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband