Gleðin

Góðan dag!

Það er svo margt dyrmætt í lífinu,sem við komum ekki endilega alltaf auga á. Bara það að hafa fengið að vakna í morgun er þakkarvert .Ég fór á samkomu í kirkjunni minni í morgun og var það yndisleg stund. Og fullur salur af fólki.Svo var fræðslan mjög góð.Og heilög kvöldmáltíð.Ætlaði að telja hversu margir fóru til altaris,en það voru svo margir að ég missti töluna á því.Mér finnst ég getað þakkað Guði fyrir allt þetta fólk og fyrir samfélagið sem ég á við það.Á heimleiðinni gladdist ég í hjartanu vegna þéss að það styttist í vorið, og alla byrtuna sem fylgir því.Og ég hugsaði til svo margra loforða úr Guðs orði sem uppörfuðu mig og blessuðu. Það var eins og égh heyrði rödd Drottins sjálfs sem ómaði innra með mér: Ég sjálfur hef  fyrirætlanir í hyggju með yður,fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð. Svona augnablik í lífinu þar sem Drottinn sjálfur uppörfar mann og blessar á svo einfaldan hátt eru svo dyrmæt.Göngutúr hefur líka gefið mér mikið,hressingu fyrir sál og líkama.

Nú er bara að syngja saman:

Ég er glaður,ég er glaðu

sérhvern sunnudag,mánudag

þriðjudag,miðvikudag,fimtudag

föstudag,laugardag.Ég er glaður 

ég er glaður!

Af því Jesús er minn besti

allra besti vin.

                            Þar til næst

                                         Bless,bless.

 

                                         Halldóra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Halldóra.

Satt segir þú, eins og fyrri daginn.

Ég átti líka góða stund í Fíladelfíu í morgun.

Þar fór fram Brauðsbrotning og var þar góður Prédikari Heiðar Guðmundsson Framkvæmdarstjóri frá Samhjálp og var gott að hlýða á hann, að mínu mati fæddur til að fræða.

Ég veit af eigin reynslu að þið eigið góða Prédikara líka

að þín Kirkja er líka dásamleg,

það er alltaf gott að koma þar og þegar ég hef heilsu til

þá fer ég yfir brúna og ég er kominn til ykkar,

Sjáumst fljótt.

Kærleikskveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 1.3.2009 kl. 17:19

2 identicon

Heill og sæll Þórarinn!

Morgunstund gefur gull í mund,segir máltækið. Og ég er sammála þér að það sé gott að koma í Guðs hús.

Ég hef líka heyrt Heiðar Guðnason (þú átt væntanlega við hann) predika, og ég er sammála þér að það er gott að heyra í honum.það er líka  notalegt að hitta þig Þórarinn í kirkjunni minni , og þangað ertu æfinlega velkominn!

Sjálf kem ég líka á kvöldin þegar bíllinn er heima,en við hjónin  búum við það að bóndinn vinnur vaktavinnu.

   Heilsist þér vel og Guð blessi þig!

Halldóra Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 1.3.2009 kl. 18:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 79275

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband