Engin Spaugstofa??

Sæl verið þið öll!

Mér hefur fundist ekki veita af einni Spaugstofu  einu sinni í viku.Hef verið trúfastur aðdándi þeirra félaga frá byrjun.Hér á bæ voru margir þættir teknir upp fyrstu árin. Og ég á mér uppáhalds hláturs spretti.Það má kanski ekki segja frá því að fjármálaráðherrann sem var  á fyrstu árum þeirra félaga,  fékk ansi oft spreng hlægilega meðferð hjá þeim.Og en þann dag í dag fæ ég bros vípring í munnvikin að hugsa um það!Svo urðu þeir bara góðir heimilis vinir.En það  er ekki hægt að segja um alla aðra.Manni var farið að þykja vænt um persónurnar,sem hafa ennst áratugina tvo eins og gerist í góðu hjónabandi. En Siggi sagði í sjónvarpinu í kvöld að þeir kæmu aftur, og aðdáandinn sem situr  við tölvuna núna mun sitja við skjáinn þá!

              Svo er hér heilræði sem klikkar ekki ,Brosið og verið jákvæð!

                                                      Góðar stundir!

                                                          Halldóra.


mbl.is Engin Spaugstofa í vetur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alvarlegar hugsanir.

Komið þið heil og sæl!

Hér á eftir fara nokkrar alvarlegar hugsanir,sem er jafnan gott fyrir okkur öll að hugsa aðeins um.En það var á dögunum að ég mætti konu á förnum vegi.Og samtalið sem við áttum pirraði mig óskaplega.Hún notaði þessar örfáu mínútur sem við ræddum saman til að tala illa um  annað fólk.Ég reyndi margsinnis að stoppa hana,en það gekk ekki ,hún hélt bara áfram.Ég reyndi að segja aumingjans fólkinu eitt og annað til varnar en þá kom hún bara með aðra sögu um þetta fólk.Fólkið sem hún talaði svona illa um er að mínu viti mjög vandað og má ekki sitt vamm vita.Þá gekk ég í burtu en hún kallaði þá aftur á mig og hélt áfram.Loks ins komst ég þó í burtu. Svona lagað líkar mér mjög illa og ég þoli ekki að fólk sé að tala illa um aðra.Sem kristið fólk er það rangt að tala illa um aðra. Og Biblían segir okkur að úr sama brunni getur ekki komið heilnæmt og súrt vatn.Kristinn maður þarf að vanda mál sitt.Það skal tekið fram að umrædd kona er ekki úr kristna geiranum.Við erum fulltrúar Drottins Guðs þar sem  við förum og við ættum að muna að við erum erindrekar hans. Þessvegna kæru vinir verum meðvituð um orð okkar.Við höfum ekki leyfi til að tala illa um aðra. Segi þessa sögu hér til að minna okkur á. Við þurfum kvatningu til góðra verka og uppbyggjandi orða.Verum vitur gott fólk og  blessum og uppörfum með orðum okkar.

              Guð veri með ykkur! 

                       Halldóra.


Elsta kona Tokyo týnd.

Sælt veri fólkið!

Þessi frétt fékk mig reyndar til að hlæja,en það er nú ekkert fyndið að enginn skuli vita um manneskju  síðustu  þrjátíu ár.Ekki einu sinni dóttirin vissi um gömlu móður sína.Við Íslendingar eigum gott að vera ekki milljóna þjóð.Þó að það komi fyrir að fólk hafi fundist látið heima hjá sér hér á landi,þá er það varla áratugum saman.Kínverjar verða  sennilega að fara betur yfir sín mál.Þeir eru kannski ekki með hagstofu sem heldur utan um svona lagað,og kannski heldur ekkert létt að vera með þannig apparat.

Æ þetta er bara of döpur frétt til að vera að tjá sig eitthvað mikið um hana.Eitt er víst að ef við leggjum okkur í Guðs hendur vakir hann alltaf yfir okkur.Það er bara betra að hafa Guð með sér.

                         Góðar stundir.

                                 Halldóra.


mbl.is Elsta konan í Tokyo týnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stútfullt í Herjólf.

Komið þið sæl!

Það hafa orðið straumhvörf í  þessum ferðum Herjólfs hvað tíma varðar í siglingu milli landa og Eyja.Það er bara gott að öllu leiti,ekki síst fyrir þá sem eru sjóveikir:)  Fréttin greinir frá því að Íslendingar nenni ekki að ganga og taki bílinn alltaf með sér. Við hjónin höfum verið að ræða það að skreppa til Eyja í  dagsferð , og vegna þess að við þekkjum engann þar þá yrðum við að hafa bílinn til þess að hafa afdrep.Það er skömm frá því að segja að ég hef ekki komið til Eyja síðan 1977,þá á Þjóðhátíð.Og mig langar ekki aftur á Þjóðhátíð í Eyjum.En langar samt að koma sem túristi smá stund.Það er búið að standa til hér á bæ í nokkur ár að framkvæma þetta, og hver veit nema það verði fljótlega.Óska Vestmanneyingum til lukku með þetta og vona að mannskapurinn sé þokkalega ánægður með þetta allt! Bið Guð að blessa þessa starfsemi  á allann hátt.

                 Kveðja úr Garðabæ

                                            Halldóra.


mbl.is Stútfullt í Herjólfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvægar hugsanir.

Mark.3.13-19

Þessi texti lætur lítið yfir sérí fyrstu.Þessi orð hljóma eins ogupptalning og annað ekki .En þegar betur er að gáð koma þarna fram atriði sem gerir þetta allt svo innihaldsríkt.En þarna er Jesús að kalla lærisveinana til þjónustu.Það segir í textanum að Jesús fór til fjalls og kallaði þá til sín sem hann sjálfur vildi,og þeir komu til hans.Þettasegir okkur að Jesús velur fólk í þjónustur í ríki sínu.Við vitum að Drottinn getur notað alla menn,en það err ekki þar með sagt að allir eigi að vera í sömu þjónustunni.Við vitum að það gengur ekki upp.Í þessari frásögu er okkur sagt að Jesús var að leita að mönnum sem hann gæti sent  út að predika,með valdi og rekið út illa anda.Það synir okkur að Jesús er nákvæmur og setur okkur í þjónustur eða á þá staði sem hann vill.Það er greinilegt að hann tekur mið af hæfileikum miðað við þennan texta.En í mörgumöðrum tilfellum kallar Drottinn fólk sem mannlega talað hafði ekki það til að bera sem til þurfti.Skoðum aðeins köllun Móse.Hann sagði nú bara,Æ Drottinn aldrei hef ég málsnjall maður verið,hvorki áður  fyrr né síðan þú talaðir við mig þjón þinn,því mér er trekt um málfæri og tungutak. En Drottinn sagði þá við hann Hver gefur manninum málið eða  hver gerir manninn mállausann eða daufan eða með sjón eða blindan? Er það ekki ég Drottinn sem gjöri það?Far nú ég skal vera með munni þínum og kenna þér hvað þú skalt mæla.En Móse möglaði og svaraði Æ Drottinn sendu einhvern annan.Þ'a reiddist Drottinn en sagði ,þá er það hann Aron   bróðir þinn levítinn.Ég veit að hann er vel máli farinn.Taktu nú eftir hann fer til móts við þig , og er hann sér þig mun hann fagna í hjarta sínu.Takið nú vel eftir hvað Drottinn segir við Móse,þú skalt tala til hans(Arons) og leggja honum orð í munn en ég mun vera með munni þínum og munni hans , og kenna ykkur hvað þið skuluð gera.Hann skal tala fyrir þig til lýðsins og hann skal vera þér sem munnur,en þú skalt vera honum sem Guð.

Mér finnst þetta í raun svo falleg frásaga af því hvernig Guð er.Guð sá eitthvað í Móse sem Móse sá ekki sjálfur  sem Drottinn vildi nota .En þá sá Drottinn Guð leið,hann kallað Aron til að standa við hlið Móse.Var ekki einfaldara að kalla einhvern annan sem stamaði ekki og  og hafði nægt álit á sér til að vinna þetta verk sem Móse var ætlað? Kannski var það ekki hægt því Egyptalandskonungur fyrirskipaði að myrða ætti öll börn,einmitt þau sem voru fædd á sama tíma og Móse.En við þekkjum það að dóttir Faraós leyndi honum.En Guð greinilega hafði augastað á Móse allt frá frumbernsku.Við munum líka eftir þbí að Drottinn kallaði Pal postula sem þá hét SálHann var á lei nálægt Damaskus þá leyftraði um hann ljós frá himni.Hann féll til jarðar og heyrði rödd segja við sig,Sál,Sál hví ofsækir þú mig?Og hann segir þá hver ert þú herra?Þá var svarað ,ég er Jesús sem þú ofsækir, og í þrjá daga var hann sjónlaus.En svo varð Páll síðar þessi mikli guðs maður.Og um  köllun Jerimía er sagt að Drottinn kallaði hann áður en hann var myndaður í móðurlífi.Ég hef ákvarðað þig til að vera spámann þjóðanna.En Jerimía sagði Æ Herra Drottinn sjá ég kann ekki að tala því ég er en svo ungur.Til að draga þá sögu svolítið saman þá kvatti Drottinn hann til að takast á við þessa þjónustu,og sagði ,þú skalt ekki óttast,það er ég sem sendi þig og ég mun vera með þér!Við gætum skoðað sögu fleir  hetja Biblíunnar,en látum þetta nægja í bili.En við að skoða þessar sögur kemur eitt og það sama út að Drottinn ætlaði að fara með þeim.Það átti ekki að skylja þetta fólk eitt eftir.Nei Drottinn lofaði að vera með.Í versunum sem vitnað er til hér að ofan,eru þeir tólf taldir upp.Símon sem hann gaf nafnið Pétur er fyrstur  í þessari röð.Það segir svo fallega frá því  hvernig Andrés  leiddi Pétur bróður sinn til Jesú  í Jóhannesarguðspjalli 1 kafla og þar segir ,Hann fór með hann til Jesú! Það segir mér að Andrés átti gott með að leiða fólk til Jesú,en mörgum finnst  erfiðast að leiða sína nánustu til trúar.Það er líka til frásaga af Filippusi  þar sem hann hittir Jesú  og Jesús bauð honum að fylgja sér,og Fillippus fór beint og leitaði Natanael uppi ,sá varekki alveg tilbúin en Filippus  sagði ,kom þú og sjá!Svo fóru þeir til Jesú og Jesús ávarpar Natanael ,þá spyr Natanael  Jesú hvernig þekkir þú mig?Ég sá þig áður en Filippus kallaði á þig.Þannig eru til litlar og fallegar sögur af sumum þessara manna sem Jesús kallaði  til að fara út og predika.Hvað áttu þeir svo að predika? Það var iðrunarboðskapurinn.Gerið iðrun! Himnaríki er nálægt!Læknið sjúka, vekið upp líkþráa, rekið út illa anda.Þannig lysir Matteus guðspjallamaður hvað þeir áttu að gjöra.Og það stendur líka í Matteusarguðspjalli Sjá ég sendi yður eins og lömb á meðal úlfa.Verið því kænir sem höggormar og falslausir sem dúfur. Jakobi og Jóhannesi gaf hann nafnið Þrumusynir Kanski voru predikanir þeirra þannig og kanski lá þeim hátt rómur.Tómas þekkjum við sem efasemdamanninn og Matteus sem tollheimtumanninn, Júdas var sá sem sveik Jesú.Þannig áttu allir þessir menn sér  einhverja sögu.En Jesús kallaði þá og valdi eins og hann sjálfur vildi.Og hann fól þeim hlutverk. Og Jesús sá í öllum þessum mönnum ,jafnvel það sem þeir sáu ekki sjálfir.En þann dag í dag kallar Jesús fólk til þjónustu við sig. Okkur líka! Suma setur hann í áberandi starf aðra þar sem þeir sjást ekki og það veit varla nokkur af  þessu starfi.En þó skiptir það svo miklu máli.Sjálfri dettur mér í hug hann Epafras sem talað er um í Kólossusbréfinu,Hann er þjónn Krists Jesú og berst jafnan fyrir yður í bænum sínum til þess að þér megið standa stöðugir.Þann vitnisburð gef ég honum að hann leggur mikið á sig,segir Páll postuli. En þann dag í dag er ti svona fólk sem leggur mikið á sig við að biðja. Og ég hef heyrt fólk segja frá því að það þekkti Guð þegar að þau voru börn, en villtust burt frá trúnni og Guði,en gáfust Drottni aftur á einhverjum tímapunkti, og þau sögð hún amma mín bað alltaf fyrir mér.Það er dyrmætt að vita af slíku fólki sem stendur þannig bænavaktina af trúfesti.Sumum kann að finnast bænastarf ómerkilegt,en það er ekki ómerkilegra en það að það er drifkrafturinn að öllu sem lítur að ríki Guðs.

Ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni en vona að þú sjáir hvað Biblían inniheldur frábærar sögur  sem við getum heimfært inn í allar aðstæður.Að biðja og eiga bænasamfélag við Guð, og lesa Biblíuna það er málið!

                      Kæru vinir Guð blessi ykkur öll!

                                          

                                       Halldóra.


Fangelsið að Bitru,rimlalaust.

Komið þið sæl!

Þessi frétt heillaði mig þó nokkuð.Ekki það að það væri svo frábært að hafa fangelsi.Nei. Hitt finnst mér gott og það er traustið sem föngunum er synd með slíku fangelsi.Engir rimlar né girðingar.Þetta minnir mig á sögu sem ég las eitt sinn frá einhverjum stað í Englandi,en þar varð svo sterk trúarleg vakning að fangelsin stóðu tóm.Þeir sem höfðu verið í afbrotum eignuðust lífið í Guði  og  þjónuðu honum.

Það gerist kanski einhverntíma hér.Vonandi. En ég blessa þetta starf og bið þess að menn komi betri út en þeir fóru inn.Við þurfum jú öll að standa skyl á gerðum okkar,og miðað við það er þessi staður örugglega góður til að afplána dóma.

                     Guð blessi þig og þitt hús!

                                  Halldóra.


mbl.is Fangelsi án rimla og girðinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkrar hugsanir í tilefni dagsins

Komið þið sæl!

Á svona fögrum degi eins og er í dag,heiður himinn og hiti um 20 gráður þá er lífið oftast léttara,og fólk klæðist sumarfatnaði og fer meira út.Út að hjóla,ganga eða til að syna sig og sjá aðra.Og það er gott.

En hver dagur hefur sinn sjarma,líka vinnudagarnir.En við hugsum kannski sjaldnast út í það að Drottinn Guð stendur á bak við hvern dag,hverja stund . Og allt er svo fallegt  af hendi hans og við gleðjumst vegna fallegu blómanna sem prýða borg og bæ á þessum tíma árs.hver mínúta lífs okkar er gefin af Guði og þessvegna eigum við að fara vel með lífið okkar.Lifa hollu og heilbrygðu lífi og vera öðrum til blessunar.En því miður er lífið sumum ekki þessi gleði og ánægja,en hvort heldur sem er þá er bænin okkur öllum gefin, og við meigum biðja Drottinn Guð að vera með okkur í ólgusjó lífsins.Hvað sem hver segir þá er betra að eiga bænina og Drottinn Guð að.Hér er ein gömul bæn sem gott er að fara með: Leiddu mína litlu hendi,ljúfi Jesú þér ég sendi,bæn frá mínu brjósti sjáðu,blíði Jesú að mér gáðu.Biðjum með börnunum okkar og kennum þeim fallegar bænir og verum dugleg að biðja fyrir þeim.Því við viljum jú öll sjá að þau verði gæfusöm! Og við meigum tala um okkur sjálf við Guð,hann heyrir vissulega,jafnvel þó að við sjúm ekki bænasvarið um leið,þó það gerist stundum. Verum góð við hvert annað,brosum og horfum á okkur sjálf út frá þeim punkti að við erum sérhönnuð af Guði.Og við skulum vera jákvæð.

  Guð gefi ykkur góðar stundir.

                                     Halldóra.

         


Goslokahátíð og mikil stemning

Gott kvöld!

Það er að halla í miðnætti þegar þetta er ritað, og goslokaknallið  á Skógum í fullum gangi.Það er bara gott að menn taki upp léttara hjal eftir það sem á hefur gengið.Við þurfum öll á því að halda að gera einhverntíma annað en þetta venjulega.Gott að vera saman og hlæja.Árni Johnsen átti þessa hugmynd og það er vel .Ég óska svo fólkinu undir Eyjafjöllunum alls hins besta og bið Guð að vera með ykkur í leik og starfi!

Langar samt að láta það fylgja með að það er hópur sem hefur komið saman vikulega og beðið fyrir landi og þjóð í tvö ár.Á þessum stundum hefur verið beðið markvisst fyrir þeim sem búa í nánd við jökulinn og ég hef heyrt fólk  og hef tekið sjálf þátt í því að biðja Guð að blessa landið og gefa gott  hey þrátt fyrir aðstæður, og breyta efnunum  í  öskunni  í bætiefni fyrir grasið og gróðurinn.Og hvað hefur gerst? Sprettan aldrei betri.Þannig er Guð! Og við skulum ekki gleyma honum  í lífsins ólgu sjó.

Blessun Guðs sé yfir okkur öllum í Jesú nafni !

                                              Kveðjur úr Garðabæ

                                                          Halldóra.


mbl.is Mikil stemmning á goslokaknalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðin gerir öllum gott

Blessuð og sæl!

Lífsgleðin er Guðs gjöf, er fyrirsögn i Predikaranum.Það eru orð að sönnu.Því miður búa ekki allir svo vel að eiga þessa gleði.En ég segi fyrir mig að Guð hefur verið mér góður! Lífið er ekki alltaf dans á rósum

og það tekur stundum á í lífsins ólgu sjó.En trúin á Drottinn Jesú Krist hefur fært mér gleði sem er mér mikils virði, og ég vil ekki missa af. Og þessa gleði sæki ég mér í bók bókanna Biblíuna.Þar eru margar dásamlegar perlur.Það hjálpar vissulega að trúa Jesú, og gefur lífinu gildi.Það er vissulega gott að hafa orð Jesú í huga alla daga.Hann sagði ég verð með ykkur alla daga,allt til heimsins enda.þetta er styrkur hins kristna manns,að Jesús verður alltaf með.

Notum Biblíuna og orð hennar okkur til kvatningar og hjálpar alla daga!

                    Kveðja    Guð blessi þig!

                                       Halldóra.


Hvítur skógarþröstur

Sæl og blessuð öll!

Ég er mikil áhuga kona um fugla.Sérstaklega farfuglana okkar. Hef séð nokkra flækinga þetta árið ,sem ég kann ekki nöfnin á. En er að reyna að finna út úr því.Verð að segja að mér finnst þessi hvíti skógarþröstur bara fallegur.Maður gæti haldið að þessi fugl hefði sloppið úr fuglabúri einhversstaðar.Svona úr fjarska. Hér á bæ eru nefnilega dísar páfagaukar sem gætu alveg flogið upp á rafmagnslínu og litið út eins og flækingar.En það er bara gaman að þessu. Njótum náttúrunnar,skoðum fuglalífið og virðum fyrir okkur sköpunarverks Drottins Guðs. Það gefur manni svo mikið, og utiveran hressir mann á alla lund.

     Guð veri með ykkur og blessi !

                                                   Halldóra.


mbl.is Hvítur skógarþröstur í Súðavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband