Um farfuglana.

Komið þið sæl!

Mér finnst alltaf svo fallegt þegar þrestirnir fara að koma með ungana sína  í eplin  sem ég set út í garðinn minn.Ég nyt þess að horfa á fuglana háma í sig eplin.Í gær kom þröstur og tók epla bita lagði þá til hliðar og raðaði þeim síðan í gogginn og flaug burt,nokkrar ferðir.Fengum í heimsókn til okkar hjón með kornabarn,sem var ákaflega gaman.Ég hélt á litla kút og ætlaði að syngja,litlu andar ungarnir allir synda vel,en fann að ég var mjög riðguð í þeim fræðunum.En svo skerptist minni mitt og ég komst í gegnum þennan söng.Held bara að ég hafi verið betri í þessum barnasöngvum en mamman,sem raulaði,kátir voru karlar fyrir ungann sinnWink Náttúran er ægifögur á þessum  árstíma, og ég á eftir að fara í einhver ferðalög um landið, og njóta náttúrufegurðarinnar.Get þó alltaf stoppað við og horft á farfuglana,og hlustað á sönginn þeirra.Stundum er svo mikill söngur að maður spyr sig hvort þeir þurfi aldrei að anda.Sumarið er góður tími til að njóta góða veðursins og fegurðar landsins.Kvet ykkur til að finna ykkur góða gönguleið sem er ekki langt frá heimili ykkar, og fara út. Svo er Guð faðir skaparinn  tilbúinn að heyra bænir okkar og lofgjörð,sem honum svo sannarlega ber!

    Guð veri með ykkur!

                                                     Halldóra.


Ísland sleppur betur....

Heil og sæl!

Það berast góðar fréttir hér,Ísland sleppur betur en önnur Evrópuríki.Okkur finnst við hafa fengið meira en nóg samt.Ég er viss um  að það er rétt hjá þessum nóbels verðlaunahafa.En það sem ég sé í þessu öllu er að Drottinn Guð hefur ekki sleppt af okkur hendi sinni!Ég er líka á því að þessi skellur(bankahrunið) hafi líka verið til góðs,því þá kom öll spillingin upp á yfirborðið.Og það þurfti að taka til ! Ég ætla ekki að nefna nein nöfní sambandi við þetta allt.Bara þakka Guði fyrir að hafa þó sloppið betur en á horfðist. Hér í Reykjavík hefur hópur fólks komið saman og beðið fyrir Íslensku þjóðinni í nær tvö ár, og staðið vaktina af trúmennsku.Ég trúi því að þetta sé eitt af bænasvörunum sem okkur eru gefin.

En það þarf að biðja meira og gefast ekki upp! Stöndum saman og biðjum fyrir landi og þjóð!

                       Kærleiks kveðjur

                                       Halldóra.


mbl.is Ísland sleppur betur en önnur Evrópuríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel heppnað kvennahlaup í Garðabæ.

Komið þið sæl!

Þá er ég komin heim úr kvennahlaupinu.Veðrið var dásamlegt hér í Garðabænum og nýjustu tölur eru að þar hafi  um 6000 konur hlaupið.Ég hitti margar konur annarsstaðar frá,sem koma gagngert til að vera með í Garðabæ, og hafa sumar verið með okkur hér oftar en annarsstaðar. Sjálf hef ég lang oftast verið með.Nema kanski ég hafi verið í sumarfríi.Þó hef ég ekki alltaf keypt mér bol.En á mðan maður er með í hlaupinu er það bara gott mál. Í ár var það nú þannig að elskulegur bróðir minn kom færandi hendi í vikunni og sagði,ég er búin að skrá þig í kvennahlaupið- og færðimér bol!Í lokin var dagskrá þar sem elsti þátttakndinn 91 árs kona fékk blóm og silfur skjöld,einnig söng Ragnhildur Gröndal af sinni al kunnu snilld nokkur lög.Svo kom Ásdís Ólsen og talaði um hamingjuna, og sagði m.a. að hamingjusöm kona fengi að meðaltali tólf knús á dag, og svo kvatti hún okkur til að knúsa hverja aðra.Ein konan kom til mín og spurð,má ég knúsa? Og umleið og við knúsuðum hvor aðra, hvíslaði hún í eyrað ,tólf!Kissing

Þetta var frábær dagur í kvennahlaupinu í GarðabæSmile

                                  Takk fyrir samveruna konur!

  Svo fær maðurinn sem færði metalíuna líka þakkir!

                                                    Halldóra.


mbl.is Vel heppnað kvennahlaup
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Páfagaukurinn át þetta.

Komið þið sæl!

Fyrir nokkuð mörgum árum samdi ég þetta ljóð eða sálm, og hengdi upp á töflu vel og vandlega með teiknibólum,fyrir aftan fuglabúr.Og vitið þið hvað? Páfagaukurinn át blaðið ,réttara sagt muldi það niður  í svo pínulitlar kúlur að það hét ekki einu sinni pappír.En ljóðið hefur setið nokkurnvegin óbreytt í huga mínum síðan.Og merkilegt er, að  ég hverf stundum inn í hugarheim þess sem ljóðið fjallar um:Himininn!

Lendur Guðs mig langar að líta

lendur Guðs mig langar að sjá.

Lendur Guðs og dalina hvíta

lendur Guðs,það er mín þrá.

 

Lendur Guðs mig langar að líta

lendur Guðs og dali og fjöll.

Lendur Guðs og bogina hvíta

lendur Guðs, og himinsins höll.

 

Lendur Guðs mig langar að líta

lendur Guðs og himinsins dýrð.

Lendur Guðs mig langar að líta

Lendur Guðs,ei betur er skírð.

 

Eilífðin er eitthvað sem við forðumst kanski að tala um.En við sem elskum Drottinn Guð vitum að okkar bíður eilíft líf.Það eru margir staðir í Biblíunni sem fjalla um lífið eilífa.Ætla að leyfa ykkur að  njóta þessara hugsanna minna.

 

                                Bestu kveðjur og blessunaróskir.

 

                                                 Halldóra.


Pabbi minn er borgarstjóri.

Komið þið blessuð og sæl!

Þetta er skemtileg frétt.Hér er talað við son borgarstjóra sem er alveg með sama húmor og pabbinn og mjög líkur honum.Það eru ekki öll börn  á Íslandi sem eru tekin í spjall þegar pabbinn er kominn í  áberandi starf.En piltur skilaði sínu vel ! Ég er ánægð með svona græsku lausa findni. En það að Jón Gnarr er yfirlystur trúmaður er bara blessun fyrir borgina.Og ég veit að hann mun fela Guði öll sín mál og biðja hann að vera með. Þannig er það best.

Minni á samkirkjulega stund í Hallgrímskirkju á 17 júní kl.16. Fjölmennum!

 

                           Kærleiks kveðjur

                               Halldóra.


mbl.is Pabbi verður góður borgarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sennilega lesa þetta fáir.

Heil og sæl gott fólk!

Hve dyrleg er sú vissa

að vita að Jesús er 

sá vinur, sem á himnum

biður fyrir mér,

Hann fyrirgefur misgjörðir,

sjúka læknar sál.

Hann sér og skilur ávallt

hin leyndu hjartans mál.

 

Hann elskar mig,hann elskar,

hann elskar mig svo heitt.

Hann veit hvað hjartað þráir

og synjar ekki um neitt.

Hann frá mér voða víkur

og vota þerrar brá.

Ég vieit um eilífð alla

ég uni Jesú hjá.

  Kristrún S. Jónsdóttir.

 

Við sem unnum kristilegum sálmum,höfum yndi af að lesa svona texta,því miður kann ég ekki lagið við þennan söng ef hann er þá til.

Ég kann alveg ógrynni af kristilegum söngvum, og langar til að setja hér inn við og við einhver gullkorn úr þeirri flóru.Veit þó að það eru ekki margir sem, hafa yndi af þessu eins og ég .En hvað um það, boðskapurinn er góður!

Hvað er betra en að vita það að Jesús biður fyrir okkur?

                                          Kærar kveðjur

                                                  Halldóra.


Hitabylgja á Austurlandi.

Komið þið sæl!

Þetta er veðurspá í lagi,þökk sé Einari Sveinbjörnssyni! Sjálf hef  ég búið á austurlandi, og veit hvernig þetta virkar.EF það er gott veður þar,er gott veður.Og ef það er slæmt veður er slæmt veður. Á ákaflega góðar minningar að austan, og þykir mjög vænt um austfirðina.Skrifaði alltaf austurland með stóru A-i. Á Eina skemtilega minnigu um túrista sem voru á ferðinni  á Fagradal, og ég tók þau uppí hrakin og köld,en þá var rigninga sumar eins og þau gerast mest. Sjálf var ég á leið í flug hingað suður og klædd eftir því,þau spurðu mig hvað væri eiginlega með mig svona klædd í þessu veðri.Ég sagði þeim frá blíðunni í bænum , og þau breyttu öllum áformum sínum, og komu hingað ,en þá var hlyjast og sólríkast hér sunnan lands.Ég gleðst með austfirðingum að fá dásemdar veður, og börnin í sumarbúðunum eiga eftir að njóta þess í ríku mæli. Svo kemur bara gott veður hér líka  við tækifæri,á meðan fíkur askan burt og hreinsar loftið. Já það er bara gaman að lifa!!!

                    Verum kát !

                                     Kv. Halldóra.

 

 


mbl.is Spáir hitabylgju á Austurlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þúsundir af kríum.

Góðan dag kæru vinir!

Ég er alveg heilluð af farfuglunum sem koma trúfastlega ár eftir ár hingað.Mér finnst Guð hafa gert vel að hafa þetta þannig,þá getum við notið þess að sjá þessa fugla.Ég nyt þess líka í botn að gefa fuglunum epli í garðinum mínum.Þeir háma eplin í sig og hyrða upp ef eitthvað fer út fyrir.Mér finnst það reglulega skemtilegt að fylgjast með þeim,svo koma heilu fjölskyldurnar er líður á og foreldrarnir mata ungana. Á dögunum sáum við haga mús koma sér fyrir í eplaberkinum sem þrestirnir voru búnir að hreinsa úr,henni nægði nú bara annar helmingurinn af eplinu,svo lítil var hún.Og hún kom kvöld eftir kvöld.Svo eplið gerði gagn,sem matur fyrir fuglana og skjól fyrir litla hagamús. Einu sinni fór ég inní kríu varp, og það var nú ekki vel séð af tveimur aðgangs hörðum kríum,hinar nenntu ekkert að vera að standa í því að steypa sér yfir mig.Enda stóð ég stutt við. Má til með að nefna það að ég geng oft meðfram Vífilsstaða læknum hér í Garðabæ, og þar er mikið fulalíf, og oft verður göngutúrinn minn að fuglskoðun.Þar er öll flóran allt frá gæsunum og öndum í lóur,spóa og alla hina fuglana.Í garðinn okkar komu litlir gulir og gráir fuglar og sátu góða stund í trjánum, og við höldum að sé gulltoppur.Gæti haldið áfram með fuglasögur,enda mikil áhuga kona um farfuglana,sem rata fram og til baka  ár eftir ár.Og blessuð krían ferðast allra fugla lengst.Ég er alveg heilluð að því hvernig Guð gerði þetta allt svo vel.Og þú lesandi góður ert líka hannaður á teikniborði himinsins!

Með kveðju og blessun!

                                      

                                Halldóra.


mbl.is Þúsundir af kríum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástand Þórsmerkur.

Góðan dag!

Það fyrsta sem mér datt í hug er ég las þessa frétt var að þó allt sé breytt í landslaginu og líti út eins og líflaust,þá er lífið svo sterkt að það líður ekki á löngu þar til grænir litir fara að klæða landið upp á nýtt.Það gerist kanski allt í sumar,en ég veit að það mun gerast.Ég hef séð gras troða sér upp þrönga sprungu bæði á gangstétt og einnig í villtri náttúru.Lífið er svo öflugt.Besta dæmið um sigur lífsins er að Jesús Kristur reis upp frá dauðum! Dauðinn gat ekki haldið honum! Kanski líður þér ekki vel.Ert eins og í eyðimörk innra með þér,þá er besta ráðið að koma til Jesú og leyfa honum að fylla líf þitt af tilgangi.Á sama hátt og náttúran á eftir að klæðast grænum búning,þar sem allt er þakið ösku sem stendur. Náttúran hefur talað skyrt til umheimsins frá Eyjafjallajökli, og hún tjáir að við erum bara lítil peð í þessum heimi.Þessvegna er það besta í lífinu að eigahreina og sanna trú í sínu hjarta!

              Guð veri með ykkur!

                                                 Halldóra.


mbl.is Áfall að sjá ástand Þórsmerkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aska svífur yfirReykjavík.

Sælt veri fólkið!

Eg settist örfáar mínútur út á svalir þennan morguninn,og tók með mér bækur og aðrar vinnubækur sem  ég þurfti að nota.Rétt á meðan ég var þarna og ætlaði að vinna í rólegheitunum,kom öskufall og borðið  varð grátt af fínu riki.Um  leið og þetta er kvimleitt sérstaklega fyrir hreinlegar húsmæður,þá er þetta merkilegt fyrirbæri.Og svo hitt hvað askan getur haldist lengi í skyjunum.Þetta er allt verk Guðs.Fréttin greinir frá því að þeir sem eru viðkvæmir í öndunarfærum ættu að fara vel með sig,þá datt mér í hug að það er oft talað um andardrátt trúarinnar.Og hvað skildi það vera? Jú það er bænin,samtals leiðin við Guð.Og veistu,kæri vinur, að þessi samtals leið er opin fyrir þig.Notum andardrátt trúarinnar! Biblían segir, biðjið og yður mun gefast!

Svo ætla ég að nota þetta tækifæri og segja ykkur frá uppáhalds geisladisknum mínum,það er diskurinn sem Lofgerðarsveit Íslensku Kristskirkjunnar gaf út fyrir stuttu.Hann blessar mig og blessar alveg vinstri hægri!

                      Notum andardrátt trúarinnar!

                                           Blessunar óskir

                                                             Halldóra.


mbl.is Aska svífur yfir Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband