Blessuð blíðan í kortum Veðurstofunnar.

Sæl verið þið!

Það er kanski bara nóg að segja, ég kann vel við svona veðurfræðinga! Stundum er sagt í gamni þegar veður er vont dögum saman  að það þurfi að gefa þeim tiltal,þarna á Veðurstofunni.Fyrsta Veðurstofan sem ég man eftir var einhversstaðar þar sem Skógarhlíðin er núna.Kom þar öðru hvoru í fylgd föður míns.Það er bara gömul minning sem ég á.En ég man eftir gömlu veðurfræðingunum sem voru þá .

Mér finnst veðurfréttir mjög áhuga verðar, og fylgist vel með veðurfréttum.En oftar en ekki,þegar ég hef hlustað með athygli, og og veðurfréttum líkur,man ég þetta ekki nógu velWhistling En alltaf er ég jafn trúföst,hlusta með athygliWink. Svo er annað merkilegt, og það er hvernig Guð gerði veðrið mismunandi.Stundum þessi rjóma blíða og svo koma leiðinda veður.Mér finnst það þvílík blessun,því þá höfum við eitthvað að tala um og gleðjumst  innilega þegar blessuð sólin vermir hal og sprund.

Nú er bara að njóta þessara daga,þeir eru ekki svo margir hér á landinum okkar góða.

             Guð veri með ykkur og farið varlega,það er hægt að brenna sig á sólinni!

                                               Kveðjur

                                              Halldóra.


mbl.is Sumar og sól í kortunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Njósnadúfan í gæsluvarðhaldi.

Góðan dag!

Já það er ekki öll vitleysan eins hér í þessum heimi.Meira að segja ég hef upplifað að fá hvíta dúfu  við svefnherbergisgluggann minn,einnig sat hún á bílnum mínum einhvern tíma í vetur.En að mér dytti í hug að hún væri að njósna,það kom bara ekki í huga minn.En hún þessi kom í leynilegum njósnaleiangri fyrir erkióvinina í nágrannalandinu Pakistan,að því er lögreglan ytra telur.Og nú er hún í gæsluvarðhaldi! Svo var hún kanski bara  greyið að koma símanúmeri til elskenda ? Hver veit.Svo er annað hvíta dúfan sem kom hingað á gluggasylluna hefur ekki sést í dálítinn tíma.En hvort hún situr í gæsluvarðhaldi, eða hvað,er ekki gott að segja.

En það sem gerir dúfur einstakar er hvað þær eru viðkvæmar,og vilja helst vera á rólegum stöðum,þola illa læti, og sækja í að sitja á húsþökum þar sem þær fá frið.Þetta er eðli þeirra,en hvort njósna dúfan þolir við í gæsluvarðhaldinu er ekki gott að segja.Þetta er nú samt allt svolítið kjánalegt.Hvað um það .

Munið að Drottinn Guð elskar ykkur, og þráir að eiga persónulegt samfélag við ykkur!

                    Góðar stundir

                                       Halldóra.


mbl.is Njósnadúfa í gæsluvarðhaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besti flokkurinn í viðræðum.

Sælt veri fólkið!

Það hefur aldeilis orðið breyting í borgarstjórnar málum  hér á þessu góða landi. Fréttir greina frá manni sem skautaði niður Effel turninn, og náði sínu markmiði.Besti flokkurinn náði sínu markmiði, og ég vil nota þetta tækifæri og ópska þeim til hamingju! Ég skil mæta vel að þau þurfi aðeins lengri tíma til að koma sér inn í hlutina og viðræður við aðra flokka.En ég minnist góra greina  í Fréttablaðinu sem oddviti flokksins Jón Gnarr skrifaði á sínum tíma um trúarlíf sitt.Þetta voru virkilega góðar greinar.Og  ég vona að hann noti bænina í sínu starfi.Ég held líka að hann lumi á mörgu góðu, og þá er gott að hafa Guð með sér svo allt fari nú vel. Sjálf by ég á heið bláu svæði, og kaus ekki í Rvk. en ég óska þeim alls hins bests í  lífi og starfi.Guð veri með þeim ,og okkur öllum!

Bænin má aldrei bresta þig 

búin er freisting ymislig.

Þá líf og sál er lúð og þjáð

lykill er hún að Drottins náð.

 

                                           Friður sé með ykkur!

                                                    Halldóra.

 


mbl.is Besti og Samfylking ræða saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í hamingju kasti.

Sælt veri fólkið!

Nú er ákveðinni spennu létt af okkur öllum.Og það er ekkert skrítið að þau skuli vera í hamingju kasti,því  að ná þessum áfanga er stór sigur.Svo á bara eftir að reyna á það sem eftir kemur.En mér finnst það ekki skipta öllu máli,heldur hitt að komast á þennan stað. Ég sendi þeim Heru og  co bara baráttu kveðjur og veit að þau verða áfram landi og þjóð til sóma.

Svo er hér örstutt saga af ömmu minni heitinni,en við vorum nöfnur.Áður en hún fór að sofa á kvöldin þá söng hún alltaf fallegan sálm, sem  gagntók hjarta mitt þegar ég var lítil stelpa.Hann heitir Ég er hamingjubarn. Og þá er talað um það að hamingjan  felist í því  að leggja líf sitt í Drottins hendur. Mér finndist að það ættum við öll að gera.Því ef við höfum Jesú með okkur á lífsgöngunni,verður lífið hamingjuríkara. 

   Kæru vinir! Drottinn blessi ykkur  öll!

 

                                            Halldóra.


mbl.is Erum í hamingjukasti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í tilefni dagsins.

Gleðilega hátíð heilags anda!

Í morgun fór ég í Grensáskirkju kl. 11,sem er ekki í frásögu færandi nema hvað að þar upplifði ég helga stund. Því í einum sálminum var sungið "Réttu þína helgu hönd hingað til vor niður"og mér varð litið upp að altarinu einmitt þegar þessi setning var sungin ,og þá fannst mér eins og hendur Guðs byrtust í steindu gluggonum fyrir ofan altarið.Akkurat þá upplifði ég sterka nálægð heilags anda. Þarna syndi Drottinn Guð mér kraft sinn og nærveru á mjög svo sérstakan,en dyrmætan hátt fyrir mig persónulega.

Langaði bara að deila þessu með ykkur í tilefni dagsins.

Svo er upplagt að lesa Postulasöguna um það sem gerðist á hinum fyrsta Hvítasunnudegi.

Guð blessi ykkur á þessum fallega degi í Jesú nafni.

 

                                Halldóra.


Jón Gnarr er stoltur.

Já það hafa orðið vatna skyl í pólitíkinni,grín frambo,orðið að veruleika og allt bendir til stórra sigra!

Mér finnst ömmuhagfræðin ,sem er á stefnuskrá alveg meiri háttar,því hún hefur gefist vel inni á venjulegum íslenskum heimilum.Mér finnst þetta atriði einna best í stefnuskránni hjá Besta flokknum,þó að ég komi ekki til með að kjósa hvorki Jón eða neinn annan því ég er ekki búsett í Reykjavík.Ég  er sem sé utan bæjar manneskja.Þó vil ég nota tækifærið og benda fólki á bænina til Jesú.Og ég veit að Jón og aðrir stjórnmála menn þurfa fyrirbæn.Á tímabil talaði Jón um bænina sjálfur og trúna á Guð.Og það er gott veganesti að hafa Guð með sér í verki. Ég er ekki bara að segja að Jón og hans fólk þurfi fyrirbænm þau öll sem standa í brúnni þurfa þess líka.Og fyrir Ríkisstjórninni veitir ekki af að biðja í öllu ráðaleysinu.Þau eru búin að standa sig vel í ymsum erfiðum málum,og þau þurfa virkilega að staðið sé með þeim í bæn.

Svo er líka bara gott að meiga leggja sjálfan sig og sitt fólk í Drottins hendur.

Bænin breytir kringumstæðum!

                                    Verið Guði falin.

                                           Kveðja

                                                  Halldóra.

 


mbl.is Jón Gnarr: „Ég er stoltur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gosið eykur tapið af keppninni.

Heil og sæl!

Þá er komið að bloggstund hjá mér.Um daginn tók ég eitthvert próf á facebook, og út úr því kom að ég er eurovision nörd:) Það kom mér frekar á óvart,þar sem ég er komin yfir unglings árin,eða svona rétt sloppinWhistling Samt hef ég gaman af að fylgjast með öllu umtalinu um  þessa skemtilegu keppni.Og horfi á Alla leið á föstudögum.Hvað sem mér finnst um íslenska lagið,þá óska ég þeim alls góðs.Þegar Noregur sigraði í fyrra var ekkert gos á Íslanndi, og engann grunaði að eldgos gæti haft svona miklar afleiðingar,líka fyrir þessa keppni.Svo það er alls óvíst að fólk komi í stórum stíl til Oslóar.En við vonum að úr rætist.Það eru ekki bara Norðmenn sem finna fyrir að fólk afpanti hótel það gerist hér líka og á fleiri stöðum.En verum bjartsyn á að allt fari vel á endanum og að hingað komi ferðafólk í stórum stíl  og komi með fjármuni inn í landið.Svo óska ég Heru og hennar fylgdar fólki alls góðs.

En munum að hjálp vor er fólgin í nafni Drottins!

                                      Bestu kveðjur

                                          Halldóra.


mbl.is Gosið eykur tapið af keppninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brauð uppskrift.

Komið þið blessuð og sæl!

Ég hef annað slagið sett hér inn brauð uppskriftir. Síðast þegar ég setti inn brauð uppskrift,kallaði  hann Óli frændi mig "konuna sem bakar brauð" og núna ætla ég að koma með góða uppskrift af brauði. Og ég veit að hann Óli frændi á eftir að prófa  þessa uppskrift.En Óli má alveg láta mig vita hvernig þessi smakkast þegar hann er búinn að prófa  brauðið,því ég tyndi netfanginu hans.

Heilhveiti  sóda brauð:

260 gr. heilhveiti

260 gr. hveiti

20 gr. hveitiklíð( smá slatti)

30 gr. haframjöl (ca 1 bolli)

3 tesk lyftiduft

40 gr. sykur (ca 2 matsk )

1 tesk salt

21/2 des súrmjólk

2 1/2 des mjólk.

Blandið öllu saman í skál hrærið vel með trésleif.Degið er mátulega þykkt þegar sleifin getur staðið upprétt í því.Setjið deigið í brauðform og bakið við 180 gráður í ca 50 mín.

Gangi ykkur vel og njótið þess að borða volgt brauð með smjöri og osti , og gott kaffi  með.

           Að baka brauð handa sér og sínum veitir mikla ánægju!

                       Guð veri með ykkur!

                                    Kveðja úr eldhúsinu í Garðabæ

                                                    Halldóra.Smile


Uppörfun og kvatning!

Sæl og blessuð öll!

Lífið gengur sem betur fer oftast vel,en það koma samt dagar þar sem við eigum úr vöndu að ráða.

Þá er gott að eiga trúana á Drottinn Guð sér til hjálpar.Það er líka gott að nefna nafnið hans aftur og aftur,af því að þá streymir friður hans inn í hjarta og huga okkar. Svo er það líka gott fyrir sálina  að vera jákvæður.Það gerir okkur öllum gott. En á hverju sem gengur: Misstu aldrei kjarkinn! Örvænting hefur aldrei unnið sigur á andstreymi og enginn hefur náð takmarki sínu með því að missa kjarkinn.Treystu Drottni og haltu fast  við hann og þú vinnur sigur á erfiðleikum þínum og nærð takmarkinu.

Láttu Drottinn fylla huga þinn og hjarta,þá hefurðu betri tök á óvæntum kringumstæðum.

Mundu að Drottinn elskar þig og vill vera vinur þinn og lausnari!

             Kærar kveðjur og Guðs blessun.

                            Halldóra.


Góð leið til að láta sér líða vel.

Góðan dag!

Ég er mikil áhuga manneskja um að okkur líði vel.Þá er ég að meina að við gerum allt til þess að svo megi verða.Okkur þarf að líða vel á svo mörgum sviðum lífs okkar, og þessvegna verðum við að gera ymislegt til þess að viðhalda því besta í lífi okkar.Við sem erum í hjónabandi þurfum að rækta þann þátt vel,sem og börnin okkar.Og við þurfum að vera þannig í vinnunni að fólki líði vel kring um okkur. Í því felst hamingjan að vera vel nærður á öllum þessum tilfinninga sviðum í lífi okkar.Þetta á líka við þá sem eru einhleypir.Þeir verða líka að rækta sitt líf.Ég hef oft sett þetta í örfáar reglur til að fara eftir, sem ætti ekki að vera flókið,en vefst oft fyrir mörgum.

1. Sofa vel

2. Borða hollann mat.

3. Fara út að ganga

4. Vera notalegur við makann,láta makann finna að þér þyki virkilega vænt um hann/hana.

5. hugsa um útlitið( það gefur sjálfs öryggi)

Mér hefur lærst að fólk fer ekki eftir þessu ef reglurnar eru fleiri,þess vegna því færri því betra.

Og fyrir einhleypa er uppörfandi að minna sig á að vera barn konungsins á himnum.

Eiginlega ætti það að vera númer eitt að lifa bænalífi !

Og ef við förum eftir þessu þá verðum við jákvæðari.

            Gangi þér vel!

           Og munum að brosaSmile

                                         Bestu kveðjur

                                                   Halldóra.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband