Mikill áhugi erlendra fjölmiðla.

Góðan dag!

Það er  kominn kosninga skjálfti í  fréttamennina. Ekki síður þá erlendu, sem er bara gott, ef þeir  gefa okkur gott orð. Annars er bara best að segja nei í þessum kosningum.Ég ætla ekki að nota fleiri orð um það við getum öll kynnt okkur málið bæði á vefnum og með því að fara inná  indifens.is  þar á að vera ymislegt um það sem gott er að vita.Það er líka bara gott að þingmenn og ráðherrar gefa sér tíma til að halda fundi með fréttmönnum, og bara mjög nauðsynlegt.Það eru víst komnir um þrjátíu manns, og eiga eflaust eftir að fjölga,þannig að það er eins gott að fréttamenn geri réttar og góðar fréttir.

Ég var ein af þeim sem var á Austurvelli í gær ,þar sem við báðum fyrir íslensku þjóðinni.Ég trúi staðfastlega að landið muni rísa upp og fá virðinguna á ny.En það var búið að úthrópa landið, og dæma það ljótum og röngum dómi.En ef við gerum það sem er fallegt og gott til afspurnar, mun  blessun Guðs koma í meira mæli en við höfum þekkt. Guð blessi  okkur öll og öll þau mál sem við stöndum fyrir.

             Kærar kveðjur í dag!


mbl.is Mikill áhugi erlendra miðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísbirnir ung dyrategund.

Sælt veri fólkið!

Gat ekki annað en brosað með sjálfri mér er ég las þessa frétt,að ísbirnir hafi þróast frá brúnbjörnum  fyrir 150 þúsund árum.Ég sá þetta  einhvernvegin  fyrir mér gerast á tveimur sekúndum, og þann dökka upp á klakanum alveg ringlaðann.Þetta er nú bara mín fantasía.En einhvernvegin urðu þessar tvær tegundir til.Hvort Guð gerði þá í sitthvoru lagi eða að þetta var þróun,þá er sköpunarverkið samt þvílikt furðuverk,réttara sagt meistaraverk! Ég ber virðingu fyrir vísindunum, og sennilega hafa þeir mikið til síns máls.Biblían segir okkur að Guð skapaði manninn, og gerði  hann þannig að lítið vantaði uppá að hann væri eins og Guð. Svo hafa þessar merkilegu skeppnu ísbirnirnir komið af og til hingað og komið í fréttirnar og við fylgst vel með þeim fréttum.Man fyrst eftir að ísbjörn kom í Grímsey  líklega fyrir 1970.Þetta eru merkilegar skeppnur, geta rotað mann með annari loppunni með lítilli fyrirhöfn.Eins gott að verða ekki á vegi þessarra skeppna.Svo er það líka merkilegt hvað Guð gerði feldinn þeirra sterkann að þola öll veður og úthald á jöklum obbann úr lífi sínu.

Gaman að þessu!

                                      Góðar kveðjur úr Garðabæ

                                               Halldóra. 


mbl.is Ísbirnir ung dýrategund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mætum á Austurvöll kl. 12:30 næsta miðvikudag.

Komið þið sæl!

Næsta miðvikudag kl. 12:30 ætlum við að safnast saman á Austurvöll og biðja fyrir Íslensku þjóðinni.

Við ætlum að blessa alla þá sem standa í fremstu víglínu fyrir landið okkar.Stjórnmála lega þurfum við ekki endilega að vera sammála í pólitík.Við ætlum bara að biðja Guð að gefa þeim visku inn í hin erfiðu mál,svo að þau geri bara það sem rétt er. Og við munum biðja Guð um að koma með sínar velgjörðir á allann hátt yfir þetta land.Við biðjum Guð að blessa efnahag landsins, og virðing okkar út á við komi aftur heil og óflekkuð. Og við munum tala um atvinnuvegina við Drottinn Guð, svo að blessun hans verði á öllum sviðum. Og við munum biðja í Jesú nafni, og segja verði þinn vilji svo á jörðu sem á himni!

Mætum í hlyjum fatnaði og sameinumst um að biðja fyrir landinu okkar!

                                                Blessunar óskir

                                               Halldóra.

 


Sat föst í snjóskafli.

Komið þið sæl!

Hugleiðing daagsins er úr Matteusarguðspjalli 25 kafla:

Því að hungraður var ég ,og þér gáfuð mér að eta,þyrstur var ég ,

og þér gáfuð mér að drekka,gestur var ég og þér hystuð mig,nakinn 

og þér klædduð mig,sjúkur og þér vitjuðuð mín,í fangelsi var ég , og þér komuð til mín.

Lífið er oft í svipuðum farvegi og það sem Jesús segir í þessum texta.Við gefum hungruðum 

mat, sendum jafnvel mat og annað í aðrar heimálfur, og þannig förum við að með hinn þyrsta,

gefum honum vatn.Heimilislausum er búinn staður til að búa á,þeim gefin föt, og viðvitjum 

sjúkra,og ef við þekkjum einhvern í fangelsi þá heimsækjum við viðkomandi.Við erum jú

yfirleitt gott fólk.Hjálpsöm og góð.Og Jesús sagði: Hvað sem þér gerið mínum minnstu 

bræðrum það hafið þið gert mér.

Í snjónum í fyrradag festist bíll sonar míns  úti á miðri götu, og við sátum pikk föst.Það leið

ekki löng stund þar til stór jeppi kom og út úr honum maður og unglings piltur sem íttu á bílinn, og hann losnaði. Við þökkuðum þeim sjálfsögðu fyrir,en mér flaug í hug skyldi þetta hafa verið englar?

Þeir nefnilega sögðu ekkert,bara gengu í verkið og fóru. Og hann sonur minn sagði,það er til gott fólk! Það kom mér í hug hvort við  reynumst öðrum vel,hvort við synum kærleika og hjálpsemi þar sem enginn sér? Við ættum í dag að hugleiða það að vera þannig framrétt hönd Drottins Jesú Krists.

   Guð hjálpi okkur til þess!

                                                 Halldóra.

 


Fyrir þá sem hafa gaman að ljóðum.

Komið þið blessuð og sæl!

Ég er ein þeirra sem hafa gaman af ljóðum, og les kanski nóug mikið af þeim,en samt eitthvað.

Hef í gegnum tíðina lesið Passíusálmana, enda um einstakt Meistaraverk að ræða. Hlustaði í gærkvöldi á lesturinn á RÚV á gamla upptöku.Og af því að lesturinn var ekki eins og ég hefði viljað hafa hann, missti ég af  tilfinningunni í lestrinum.Kunni þó menið af sálminum,en tók fram Passíusálmana og leit yfir þennan tilfinninga þrungna boðskap. Þetta var sálmur 21.Ætla að setja hér  vers úr þessum sálmi.

Við lestur inn þarf að gæta vel af boðskapnum:

Mannvitsforvitni og menntaglys

margir þá vildu reyna,

að orði drottins gjöra gys,

gaman loflegt það meina.

Varastu, sál mín,vítin reynd,

virstu í hæsta gildi

þá mestu mildi,

alvarlega með góðri greind

guð við þig tala vildi.

Síðasta erindið er svona:

Hvar sem ófriður hreyfir sér

af holdsins veikleik bráðum

millum kristinna manna hér

mót guðs vilja og ráðum,

gakktu þar Jesú milli mest

með þínum friðaranda

og varna vanda.

Hjálpa þú, svo vér hugsum best

í hreinum kærleik  að standa.

 

 Bestu kveðjur  Og megi Guð vera með ykkur í Jesú nafni!

 

                        Halldóra.


Þankar í blind byl.

Góðan dag gott fólk!

Þessa stundina er blind bylur í Garðabæ og þó nokkur ófærð.Þannig er lífið stundum, eins og veðrið .Það  koma miklir sólskins dagar og hitinn vermir okku,svo kemur rigningin,og blessar þurrann jarðveginn,nema þegar það rignir látlaust dögum saman þá verðum við pínu þreytt.Og snjórinn er sumum fagnaðarefni,þá er hægt að fara á skíði og börnin leika sér í snjónum.Mitt í þessum pælingum þá sé ég hönd Guðs í þessu öllu.Tilbreytinguna! Lífið getur stundum verið eins og veðrið,það koma stormar, og það getur reynt á.Byst við að við þekkjum það öll! Jesús sagð: Komið til mín allir þér sem erfiðið  og þunga eruð hlaðnir.Það er gott að eiga þetta skjól að geta leitað styrks í öllum aðstæðum lífsins.Og orð Guðs segir: Hlyðið á mig(Guð) þá skuluð þér fá gott að eta og sálir yðar gæða sér á feiti!

Sem þyðir að samfélagið við Guð hressir okkur og gefur okkur styrk.Fyrir suma kann þetta að hljóma undarlega,en reynsla okkar sem lifa svona lífi með Drottni Guði  er það,það allra besta sem við getum gert.Kanski er blindbylur í þínu lífi.Ég veit ekkert betra en að tala um það við Guð.Hann þekkir þig,enda skapari himins og jarðar,og mun taka þér vel, og koma með sinn frið sem er æðri öllum skylningi, og styrk sem þú getur hvergi fengið nema hjá honum.

Bið þess að þessi dagur verði þér til blessunar og að þú leitir Drottins Guðs.

                                      Kv. Halldóra.


Höfða mál gegn Jóni útaf handlaug.

Heil og sæl!

Ég verð nú bara að segja það að mín íbuð er innréttuð  mestmegnis af vörum frá IKEA og það sem meira er ég er hæst ánægð.Flottheitin í kringum útrásar fólkið hefur verið svo mikil gegnum tíðina að það sem okkur þessum venjulegu finnst mjög gott og er hagstæð kaup, er drasl hjá þeim.Mér finnst heldur ekkert að því að setja handlaug í leigu íbúðina aðeins ódyrari ,heldur en úr gulli. Hef einu sinni komið í hús þar sem voru gull kranar á salerninu og marmara vaskur, og ég segi það í fullri alvöru að mér þótti óþæginlegt að þvo mér um hendurnar í þannig græju.Sennilega líka af því að það hlógu allir svo mikið af þessu tildri. En í Jóns og Ingibjargar tilfelli þá hefur leigjandinn búist við einhverjum öðrum klassa.En að það sé verið að kasta matarleifum  niður á svalirnar hans frásvölum eigendanna er ekki líkt neinu.Það eru ákveðin mörk í öllum hlutum í þessu lífi, og allir verða að virða þau.

Hin kristna hugsun er að gera öllum mönnum gott.Og að það sem þú villt að aðrir geri þér skalt þú  og þeim gjöra. Það er sjálfsagt mál að við séum kurteis og virðum hvert annað,því allir menn verða að koma fram fyrir dómstól Guðs að lokum. Við skulum vera þakklát fyrir það sem við höfum og erum,því  það kemur sá dagur að  aðeins eitt skiptir máli,það að gera köllunog útvalningu sína vissa frami fyrir Drottni Guði.

                         Friður sé með þér!

                                       Halldóra.


mbl.is Höfða mál gegn Jóni Ásgeiri og Ingibjörgu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvalveiðibanni aflétt.

Sæl og blessuð !

Undirritaðri finnst kominn tími til að þetta verði gert.Í mínu ungdæmi var hvalkjöt á borðum og súrt hvalrengi  borðað af bestu list.Líka af lítilli stelpu, sem í dag er hún ég og hef ekki smakkað hvalrengi  í alla þessa áratugi. Mér líður eins og fornaldar konu þegar ég hugsa um þetta.Svo það er sannarlega kominn tími til.En ég er nú samt hrædd um að það verði ymsir sem ekki hafi áhuga á hvalkjöti,því þær kynslóðir sem ekki hafa alist upp með þessum herramanns matbíða örugglega ekki í röðum eftir þessu.

Svo er annað, og það er að oft hefur mér fundist eins og það sé bara of mikið af hval í Atlanshafinu:)

og þeir þurfa ekkert smá af fæðu á dag þessar skepnur.Og eitt er víst að ekki eru þeir á hörbalæf.Við vitum að hver og ein skeppna þarf fleiri tonn af fiski á dag.Svo það er bara jákvætt að verið sé að vinna í þessum málum.En hvað skyldu grænfriðungar taka sér þá fyrir hendur? Einhver nefndi rækjuna.

Hann afi minn sagði stundum þegar yfir hann gekk: Ekki er öll vitleysan eins,þó hún sé svipuð!

Guð gerði okkur ráðsmenn yfir auðlindunum og við skulum gera okkar besta.

           Kærar kveðjur í dag!

               Guð blessi okkur öll!

                                                        Halldóra.

 


mbl.is Hvalveiðibanni aflétt?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fundurinn um Icesave.

Komið þið sæl!

Ég á þá bæn heitasta í brjósti mér að þessi fundur muni ganga vel í alla staði. Og að allir verði eins og einn maður í allri ákvarðanatöku.Og að gagntilboðið ef það getur orðið í dag,verði leitt af Guði. Því ég tel að mesta og besta hjálpin sé fólgin í að biðja Guð um hjálp.Þá mun hann liðka fyrir öllum samninga leiðum á góðan hátt.Og ég bið af öllu mínu heita hjarta að styrkja  þau sem í þessu standa,og gefa þeim visku inn í þessar aðstæður.Þessu bloggi er ekki ætlað að vera mjög flókið.Ég vil aðeins senda þeim  Jóhönnu og Steingrími baráttu kveðjur og biðja Guð alsherjar að vera þeim nær!

 

                      Megi Drottinn líka blessa þig!

                        Kveðja úr Garðabæ

                                     Halldóra.

 


mbl.is Fundur hafinn um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dreymdi lausn í Icesave málinu.

Komið þið sæl!

Mig dreymdi merkilegan draum í nótt. Þessi fjallaði um málefni þjóðarinnar.Mér fannst ég verða vitni að  fundi í forsætisráðuneytinu með ráðherrum  já allra ríkisstjórninni , og þar voru menn algjörlega ráðalausir gagnvart þessu stóra máli Icesave, og það var þungt  yfir fólki,því ráðaleysið var svo mikið.Þá fannst mér Steingrímur segja,þá er bara eitt eftir í stöðunni, og það er að við spennum öll greipar og biðjum Guð um hjálp.Á þessum tímapunkti fannst mér eins og hann og Jóhanna hefðu verið búin að ákveða þetta  sem síðasta neyðarúrræðið.Á meðan þau báðu, kom einhver með umslag til mín, og ég opna það og í því stendur að hjálp muni berast frá  ákveðnu landi( sem ég vil ekki nefna) og að það muni verða mikil og góð lausn fyrir Íslensku þjóðina.Þetta sé eitthvað sem enginn hafi reiknað með að gæti gerst. Ég lokaði umslaginu og  hugsaði  yndislegt,við erum í Guðs höndum.Þar endaði þessi draumur.

Það er málið gott fólk að leggja þessi flóknu mál fram fyrir Guð.

 Guð blessi ykkur daginn!

                                               Halldóra.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband