Tiger Woods biðst afsökunar.

Góðan dag!

Þetta er nú eiginlega ömurleg frétt,þá á ég við að hann skuli hafa þurft að biðjast afsökunar á því hvað hann gerði.En gott mál samt,og vonandi getur hann byrjað uppá nytt, með konunni sinni og verið henni trúr. Þetta er nú eiginlega víti til varnaðar fyrir aðra,að láta ekki girndina ná tökum á sér. Á okkar dögum er ekki auðvelt að vera í felum með eitthvað sem ekki er rétt og fallegt,það er flétt ofan af öllu.Í Biblíunni stendur :Betra er gott mannorð en mikill auður. Og það er gott umhugsunarefni.Svo er vonandi að konan hans og börnin taki honum opnum örmum. Svo er önnur hlið á þessu öllu og það er Jesús sem fyrirgefur syndir,hann fyrirgefur og gleymi,en það er aftur verra með mannfólkið það fyrirgefur  og man svo áfram eftir mistökunum.Þessvegna ættu allir að hafa þetta orð úr Biblíunna ofarlega í minni sínu,af því að við eigum bara eitt mannorð.

En sem manneskja þá vorkenni ég karl greyinu að hafa fallið á þennann hátt og þurfa að fara þennan veg auðmyktar.

                              Góðar stundir!

                                                    Halldóra.


mbl.is Tiger Woods biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Líkið reis upp.

Sæl og blessuð!

Þegar þessi frétt er lesin kemur fram að læknar kalla þetta atvik" Lasarusar heilkennið" sem er sjálfsagt tilvísun í nyjatestamentið,þegar Jesús Kristur kallaði á hinn látna Lasarus í gröfinni, með þeim orðum:" Lasarus kom þú út". Og það var ekkert feik.Hann hafði legið í gröfinni í fjóra sólarhringa, og  mannlega talað engin von.En svo kom Jesús, og gerði þetta mikla kraftaverk,hann reisti Lasarus upp frá dauðum! Ég trúi að á vorum dögum geti Drottinn gert það sama, reist fólk upp frá dauðum.Ég held líka að fólk geti verið í einhverskonar dái og spítalar gert mistök og látið senda "dáið" fólk í líkhús.Því mannleg mistök verða.En Jesús gerir ekki mistök!  Skora á okkur öll að leggja líf okkar í hans hendur og biðja Drootinn Guð um miskunn og fyrirgefningu synda,svo að við getum lifað með Jesú um alla eilífð!

     Með kveðju

                               Halldóra.


mbl.is Líkið reis upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er mér óskiljanlegt.

Sælt veri fólkið!

Undanfarna daga hef ég lent í því trkk í trekk, að ungir krakkar vaða út á götu í veg fyrir bílana.Þetta er í fyrsta lagi stórhættulegt, sérstaklega ef einhver hálka er og erfitt að bremsa.Þegar ég var barn kom löggan í skólann og sagði það stórhættulegt að æða í veg fyrir bílana.Nú er öldin önnu,þau beinlínis vaða út á götu. Svo varð ég fyrir því ímesta myrkrinu í vetur og þegar svarta hálkan var að það hjolaði maður út á götuna í veg fyrir bílinn.Ég var sem betur fer á hægri ferð og sá hvað hann ætlaði sér í tíma.Ég vildi svo gjarnan að krakkar sem og aðrir gættu sín á umferðinni,það er nefnilega ekkert gaman að verða fyrir því að valda slysi, hvorki fyrir gangandi umferð eða bílana. Við þurfum öll að hjálpast að og vera tillitssöm. Þetta vildi ég sagt hafa í dag!

Fel Drottni vegu þína treystu honum og hann mun vel fyrir sjá!

                                                          Bestu kveðjur

                                            Halldóra.


Valentínusar dagurinn.

Komið þið sæl!

Í dag er Valentínusar dagurinn, sér Amerískt fyrirbæri sem hefur náð fótfestu hér.En það sniðuga í stöðunni er að við hjónakornin opinberuðum þann dag 1986.Þá hafði þessi dagur ekki fest sig í  sessi hér,svo við vissum ekkert af þessu fyrr en löngu seinna. Þessi dagur sem tileinkaður er þessum Valentínusi er góð áminning til allra um að halda við ástinni.Ástinni sem var einu sinni eins og ganga á bleiku skyi,en hefur breyst í djúpa og sanna vináttu.Ef við tölum alltaf fallega hvort til annars og sínum það að okkur þykir vænt um hvort annað, og látum hinn aðilann vita að við elskum hann,þá erum við örugglega á góðri leið.Og þannig ættu allir dagar að vera,kærleikur og væntumþykja. Í okkar hjónabandi höfum við gert okkur far um að biðja saman, og það er nokkuð sem ymsum þykir erfitt að gera, en ég skal segja ykkur það að færir hjónabandinu og lífinu sjálfu ómælda blessun.Það vermir líka hjarta mitt í hvert skipti sem minn maður þakkar Guði fyrir að hafa gefið sér migWink.Þannig er ástin,einhvernvegin svo falleg. Og ég kvet alla elskendur til að biðja saman og leggja alla hluti í Guðs hendur.

                                Guð blessi ykkur kæru vinir!

                                      Halldóra.


Fékk að skila rangeygri konu.Ææ

Góðan dag!

Maður byrjar bara á því að segja ææ þegar þessi frétt er lesin.Karl greyið gat hann ekki fengið að sjá þessa tilvonandi konu sína með eigin augum.Ég á nú bara óskaplega erfitt með að skylja þessi trúarbrögð, og þennan klæðnað á heitasta stað jarðar? Er viss um að það eru alveg ágætis konur  margar þeirra og fallegar eftir því bak við þennan búning.En það hefði nú kanski verið' hægt að laga þessi augu með gleraugum.Nema hann hafi verið skotnari í systurinni?En þá er líka spurning hvort hún hafi svipt hulunni af andliti sínu? Þetta eru svona minniháttar pælingar hjá konu sem les þessa frétt, og byr við frelsi.HIns vegar er ég vissum að Guð almáttugur ætlaði ekki að hafa þetta svona.Hann er stoltur af sköpun sinni hvað fegurð varðar, og elskar alla menn og allar konur,án skilyrða.Ég held líka að Drottni hafi ekki verið neitt á móti skapi að aumingja konan færi og léti taka þessi hár af andlitinu.Það eru til ymsir sjúkdómar sem framkalla hárvöxt í andliti kvenna.En svo mikið veit ég að það eru til lyf við því.Svo er það nú bara gamli góði plokkarinn!

En við þig sem lest þessar línur og ert með einhvern móral vegna útlits, vertu hugrakkur þú varst hannaður á teikniborði himinsins.Og þar eru ekki gerð mistök!

                                     Kveðjur og blessunaróskir

                                              Halldóra.


mbl.is Fékk að skila rangeygðri konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg skínandi loðna.

Sælt veri fólkið!

Verð að segja það að þessi frétt gladdi mig mjög mikið og ég gat ekki annað en hugsað "Guð er góður

Því það er vissulega mikil blessun fyrir landið þegar vel veiðist! Og ég í hjarta mínu blessa alla íslenska sjómenn  og bið þeim og fjölskyldum þeirra velfarnaðar.Því þeir leggja oft mikið á sig til að færa þjóðinni björg í bú! Sjálf á ég engar tengingar við sjómenn,eftir því sem ég best veit. En ég bið fyrir þeim og bið Guð um góðann afla,svo að blessanir Drottins Guðs megi hlotnast þessari yndislegu þjóð í ríkara mæli.

Og ég bið að þú megir eiga dásamlegan dag í dag og friður sé með þér!

                                      Blessunaróskir.

                                          Halldóra.


mbl.is „Alveg skínandi loðna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef við gröfum nóug djúpt finnum við gull.

Sæl og blessuð!

 

Sagan segir frá bóndakonu í vestur heimi sem þráði að lifa heilögu lífi .En henni gafst lítill tími til að lesa í Biblíunni.Þá kom  henni ráð í hug .Hún keypti sér nokkrar Biblíur.Ein hafði hún í hlöðunni,aðra í borðstofunni og þá þriðju  á eldhúsborðinu.Þannig gat hún lesið svolítið á þeim stað þar sem hún var stödd,hvað sem hún var að gera.William Carrey , sem lagði grunninn sð heimskristniboði fór að á svipaðann hátt.Hann las í Biblíunni meðan hann var að gea við skó.Því er ekki ætíð svo farið að  sá kristni maður lesi mest sem hefur drygstann tímaOft eru önnum kafnir menn best að sér í Biblíunni.Þeir opna Biblíuna ekki aðeins á helgistund einu sinni á dag,heldur er hún sífellt í notkun,þegar þeim gefst eitthvert tóm til. Fyrst í stað segir óvinurinn að það sé óeðlilegt að liggja sí og æ yfirBiblíunni,líkt og þegar aðrir lesa blöð og tímarit.Síðan segir hann að það sé hræsni.Satan vill halda okkur frá orkulindum. Sé honum vísað  á bug í nokkur skipti finnst okkur brátt óeðlilegt að lesa lítið í BiblíunniSumir kvarta yfir því að þeir fái svo lítið uppú því að lesa Biblíua.Já, þannig er það um allt nytt.Það er heldur engin ánægja að byrja að læra á fiðlu.En á að hætta við það af þeim sökum?Ef við leggjum niður skólagöngu af því að við kunnum ekki að lesa,lærum við aldrei að lesa.Fjársjóður Biblíunnar er ekki alltaf á yfirborðinu.Ef við gröfum nóug djúpt finnum við gull. Lestu oft í Biblíunni og lestu í samhengi.Strikaðu undir það sem þú skylur og talar hvað mest til þín.Þá mun skylningur þinn vaxa.Biblían opnar bara fyrir þeim sem opna hana oft!

    Guð blessi þig í dag!

                                                   

                                              Halldóra.


Stúlka barði hákarl og flæmdi burt.

Góðan dag!

Þetta er nú soldið hetjuleg frétt!! Fjórtán ára stúlka barði hann í hausinn með sundbretti. Mjög gott að þetta gekk vel ,og að hún slapp þó nokkuð vel,þrátt fyrir að hákarlinn biti hana um mittið. Var það furða þó henni væri ekki trúað í fyrstu?En örin sönnuðu þetta.

Mér datt nú bara barátta lífsins í hug,allir menn glíma við eitthvað, og sumt er eins og hákarls bit, og skylur eftir sig sár.Svo eru það freistingar þessa lífs,sem hafa fallið margann manninn og konuna.Ef fólk hefði nú áttað sig aðeins á því að freistingarnar koma frá hinum illa eins og hákarlinn fyrirvara laust,þá væri ymislegt öðruvísi.Mér finnst það alveg frábært af Guði skaparanum að koma með boðorðin 10, sem leiðbeiningu til alls mannkyns.Og ef við færum í einu og öllu eftir þeim  væri margt öðruvísi.Meira að segja hefði fall bankanna ekki orðið.Því það gerðist bara af því að boðorðin voru ekki virt.Merkilegt hvað þau ertu máttug! Samt ekki því allir vegir Guðs eru elska og trúfesti,fyrir þá sem gæta sáttmála hans og vitnisburða.Flott hjá þessari stelpu að lemja frá sér þegar það vonda kom,við ættum að gera það líka þegar hinn illi kemur í ljós engils líki.

           Góðar stundir.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Stúlka barði hákarl og flæmdi burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það varð allt í einu augljóst.

Komið þið sæl!

Var að glugga í Biblíuna í dag, eins og ég geri svo oft. Og það varð vers á vegi mínum sem fékk mig til að lesa það aftur og aftur.Versið  er svona: Ekki dirfumst vér að telja oss til þeirra eða bera oss saman við suma af þeim ,er mæla með sjálfum sér.Þeir mæla sig við sjálfan sig og bera sig saman við  sjálfan sig og eru óskynsamir. 2. kor, 10:12

Sumt fólk hefur svo gríðarlegt sjálfsálit að það hálfa væri nóg.En það sem verra er að þannig fólk er oftast frekar leiðinlegt,því að það reynir að upphefja sig á kostnað annara,sem er ljótt.Enda segir þetta vers að það sé óskynsamlegt.Merkilegt hvað Guðs orð tekur á mörgum þáttum hins mannlega lífs.Biblían er líka einstök bók! Hún segir okkur líka að við eigum að líkjast Kristi sem sagði ég er hógvær og af hjarta lítillátur.Sumt fólk hefur þann ljóta sið í sínu lífi að niðurlægja aðra til þess eins að upphefja sjálft sig.En við ættum að forðast það,og reyna eftir fremsta megni að líkjast Kristi.Þá er gott að muna eftir þessu versi.En svona er það með þessa mögnuðu bók,maður les þetta blessaða orð,svo allt í einu   kemur maður auga á eitthvað nýtt í þessu orði. Læt þessar hugrenningar fylgja þessu góða versi úr Guðs orði í þetta sinn.Og bið Drottinn Guð að gefa þér náð til þess að eiga frelsarann sem fyrirmynd í öllu  þínu  lífi.

  Guð veri með ykkur alla daga!

                              Halldóra.


Ekki versla í náttfötunum.

Sælt veri fólkið!

Er í sigurvímu,en gef mér þó tíma til að blogga smá.Ég er algjörlega sammála þessum búðareigendum að fólk eigi að koma klætt í föt til þess að versla.Ég var að versla á dögunum og mætti konu í bleikum náttbuxum og í sundskóm.Gat ekki annað en brosað með sjálfri mér.Svo kom ég við í Lyfju um daginn þar mætti ég komu á náttbuxum og bol, og ég hugsaði hún er kanski lasin að ná sér í meðul.

Svo fer ég sjálf hjá mér að fara á stuttermabol í tuttugu tiga hita út í búð. Já þetta er svona misjafnt. En mér þykir heldur ekkert gaman að mæta fólki í náttfötum úti í búð.Held bara að tískan sé alveg snar rugluð! 

Það er samt alveg sama hversu tískan stjórnar fólki, og fólk klæðist ljótum eða huggulegum fatnaði Drottinn spyr ekki um útlitið,hann skoðar hjartað! Og honum finnst vænt um okkur , og vill vera vinur  þinn!

                           Kveðja

                                                  Halldóra.


mbl.is Ekki versla í náttfötum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.9.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband