Giftist í 2,1 löngum kjól

Sæl og blessuð!

Það fyrsta sem mér datt í hug er ég las þessa frétt,ef frétt skyldi kalla, var þetta er sóun á dyrmætum tíma.Svo við notum skynseminaþá er þetta nú meira bullið.Við þessar sem erum giftar og vorum í hvítum brúðarkjól vitum að brúðarkjólarnir eru fallegastir þegar þeir eru látlausir. En í þessu tilfelli var þetta allt saman eintómt vesen.Bara það að breiða út slóðann tók  yfir 200 mans  um þrjár stundir. Ég hefði miklu heldur viljað drífa giftnguna af og klára veisluna, og koma mér heim.En sitt synist hverjum . Hún er vonandi vel gift blessuð konan, og tengdamóðirin ánægð með tengdadótturina.Í fréttinni er ekki sagt frá eiginmanninum,svo við vitum ekki hvað honum fannst. Er ekki réttast að óska þessum Kínversku hjónum til lukku og óska þeim bjartrar framtíðar?

    Gott hjónaband felst ekki í umbúðunum utan um brúðarkjólinn eða veisluna.Gott hjónaband er samvinna og kærleikur endalaust.

                                           Þar til næst

                                                       Góðar stundir.

                                                                    Halldóra.


mbl.is Giftist í 2,1 km löngum kjól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Húslegir karlar.

Sæl verið þið!

Svona fréttir eru vissulega vinsælar. Að karlarnir standi sig vel í uppeldinu.Ég held að mjög margir feður annist börnin sín vel,konuna sína og hjálpi til í heimilishaldinu.En það er sennilega öll flóran til,það að  karlar geri ekki neitt,en setjist bara við matarborðið og síðan fyrir framan sjónvarpið og svo mætti lengi telja.Þegar ég var með okkar börn í vagni fyrir rúmlega tuttugu árum tíðkaðist það ekki að börnin kölluðu pabbi  þegar eitthvað bjátaði á.Það var bara mamma. Í dag finnst mér ég oftar heyra börnin kalla pabbi,en mamma.Mér finnst alveg sjálfsagt að mennirnir og strákarnir á heimilunum taki til hendinni,érstaklega þar sem bæði vinna úti,og tíminn er dyrmætur.En það kemur eðlilega í hlut þess aðilla sem er meira heima að taka til hendinni. Mikilvægast er þó að kærleikurinn ríki á heimilinu og fólk standi saman en sé ekki að gera einfalda hluti flókna.Leyfum ástinni að vaxa og verum til staðar fyrir hvert annað.Ef við fullorðna fólkið stöndum okkur vel í því þá læra börnin okkar góða siði.

Ekki meira að sinni,því þvottavélin bíður mínSmile

        Gangið á Guðs vegum!

                                  Halldóra.


mbl.is Vilja húslega karla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draumur

KOmið þið sæl!

Dreymdi í nótt sniðugan draum.Hann var á þá leið að  mér fannst ég vera að tala við Guð um ástand þjóðarinnar,og ég spyr Guð þessarar spurningar,hvenær líkur öllu þessu óvissu ástandi þjóðarinnar?

Mér fannst ég reyndar sitja við glugga sem var allur mis stórar rúður og með rúllugardínum, og ég eer einhvernvegin að tala við Guð, og mér þykir ég finna fyrir nálægð hans þar sem ég sat.Þegar ég spurð Guð um það hvenær þessu lyki,þá sagði Guð,ég held í spottana og ég á alla tíma,svo togað hann í böndin á rúllugardínunum sitt á hvað ,í því koma fleiri spottar úr loftinu í herberginu sem við vorum í  og hann togaði í þessa spotta.En þeir voru svo hátt upp að það hefði verið lífsins ómögulegt fyrir nokkurn mann að ná í þessa spotta.Ég spyr þá Guð áfram  spurninga,því mér fannst ég verða að fá svör við ymsu fyrst ég var búin að ná sambandi við Guð.Og ég spyr Guð hvenær sá tími kæmi að þessu lyki, og nú vildi ég dagsetningar.Þá rann það upp fyrir mér að glugginn sem við Guð sátum við,var svo hár að það hefði enginn getað  með nokkru móti að sjá hvar glugginn endaði.En  á þessu augnabliki sé ég hillu beint fyrir framan mig, og Guð sagði mér að lesa sálm 49. og það gerði ég,en fannst allt breytast við þetta svar,það er að mér fannst ég vera komin inn í herbergi með grænu veggfóðri.En sálminn hef ég lesið vandlega, og það er merkilegt hvað kemur þar fram. Látum sálminn tala:

Heyrið þetta allar þjóðir,hlustið á þér heimsbúar,bæði lágir og háir,jafnt ríkir sem fátækir! Munnur minn talar speki ígrundun hjarta míns er hyggindi.Ég hneygi eyra mitt  að spakmæli ræð gátu mína við gígjuhljóm.Hví skyldi ég óttast á mæðudögum þá er hinir lævísu óvinir mínir umkringja mig með illsku þeir sem reiða sig á auðæfi sín og stæra sig af miklu ríkdæmi.Enginn maður fær keypt bróður sinn lausan né greitt Guði lausnargjald fyrir hannLausnargjaldið fyrir líf þeirra yrði of hátt svo hann yrði að hætta við það að fullu,ætti hann að halda áfram að lifa æfinlega og ekki líta göfina.Nei hann sér, og vitrir menn deyja,fífl og fáráðlingar farast hver með öðrumog láta öðrum eftir auðæfin sín.Grafir verða heimkynni þeirra að eilífu bústaður þeirra frá kyni til kyns,jafnvel þó þeir hafi kennt lendar við nafn sitt.Maðurinn í allri sinni vegsemsd stenst ekki,hann verður jafn skepnunum sem farast.Svona fer fyrir þeim sem er þóttafullur,og þeim er fylgja þeim og hafa þóknun á tali þeirra,þeir stíga niður til heljar eins og suðahjörð,dauðinn heldur þeim á beit,og hinir hreinskylnu drottna yfir þeim  þá er morgnar og mynd þeirra eyðist.Hel verður bústaður þeirra.En sál mína mun Guð endurleysa því að hann mun hrífa mig úr greipum heljar.Óttast þú ekki þegar ewinhver verður ríkur þegar dyrð húss hans verður mikil,því að hann tekur ekkert af því með sér þegar hann deyr auður hans fer ekki þangað niður eftir honumHann telur sig sælann meðan hann lifir .Menn lofa þig af því að þeim farnast vel.Hann verður þó að fara til kynslóðar feðra sinna sem aldrei að eilífu sjá ljósiðMaður í vegsemd er hyggindalaus verður jafn skeppnum sem farast.

 

                         Kv. Halldóra.


Davíð

Kæru vinir!

Mig langar til að setja hér inn nokkur uppörfandi vers úr Biblíunni.

Jesaja 54:10

Því þótt fjöllin færist úr stað og hálsarnir riði

skal mín miskunnsemi við þig og kærleikur  ekki

færast úr stað og minn friðarsáttmáli mun ekki raskast.

Sáttmáli um heilbrigði, hamingju, öryggi, velgengni,

góðvild og velmegun, segir miskunnari þinn Drottinn.


Jakobsbréf  5:16

Áhrifarík og afkastamikil bæn réttláts

mans er kröftug,veigamikil og máttug til sigurs.

 

Fyrir stuttu bloggaði ég um Davíð Oddsson og það skoðuðu 1200 mans þetta blogg á einum degi

Ég á nú aldeilis ekki von á því að þetta blogg skoði jafn margir,en mig langar til að nefna Davíð Biblíunnar. Hann var alls ekki mikið fyrir mann að sjá,en Guð fól honum stórt verkefni,að fella risa. Og honum tókst það.Risinn Golíat kom útbúinn  í allskyns brynjum og vestum ,en Davíð með einn stein og slöngu bút.

Kanski stendur þú frami fyrir stóru verkefni sem þér finnst ókleyft.En ég held að við þurfum engan  rosalegan kjark, og líta út eins og Golíat. Allt sem við þurfum er að leggja af stað og hafa Drottinn með í för. Og gera okkar besta ,þá fer allt vel. Notum bænina og biðjum Jesú að vera með okkur,

þá mun hann koma og vera hjá okkur og með okkur.

Ekki líta smáum augum á sjálfan þig,vertu auðmjúkur,og Guð mun blessa þig.

 

                                 Í kærleika Krists.

 

                                      Halldóra.


Sannleikurinn í Borgarleikhúsinu

Komið þið sæl!

Ég fór á dögunum í Borgarleikhúsið að sjá Sannleikann með Pétri Jóhanni Sigfússyni.

Þetta var léttog skemtilegt uppistand.Salurinn var líka mjög góður þetta kvöld,og mikið hlegið.

En hvað um það,ég var mjög ánægð því þetta stykki hafði góðan boðskap.Hann sagði að ef Guð hefði ekki skapað himinn og jörð værum við ekki hér í kvöld.Guð skapaði okkur öll og gerði okkur svona eins ogvið erum.Svo tók Guð stjörnurnar og setti hverja og eina á sinn stað. Raðaði þeim á þann stað sem honum líkaði. Auðvitað sagði leikarinn þetta á sinn hátt,svo að fólk fór að hlæja,en hann gerði það bysna vel.Hann tók jafnvel flugurnar fyrir og sagði að þær væru líka sköpun Guðs. Ég væri bara alveg til í aðfara aftur á þetta leikrit.Það var mikið hlegið,en það var ein kona sem stóð sig best í því.Það gerði líka mikið fyrir syninguna. Kanski var hún þarna á launum hjá leikhúsinu,hver veit? En það komst bara vel til skyla að við erum hér af því að við erum Guðs handa verk.Og að við erum ekki gleymd fyrir Guð.Hann fylgist með okkur og er með okkur. Og það er sannleikur.

Kæri vinur! Við erum sköpunarverk Drottins Guðs, og hann hefur mætur á okkur.Og er með okkur jafnvel þó að við finnum ekki fyrir nærveru hans þá er hann samt til staðar.Gleymum ekki þessum sannleika!

 

                     Kærar kveðjur úr Garðabæ

                                       Halldóra.

 


Davíð á Skjá einum

Góðan dag!

Ég get ekki annað en sagt það sem ég hugsaði er ég horfði á þáttinn,fólk tekur mark á Davíð. Og mér fannst einhvernvegin það sem hann sagði liggja svo ljóst fyrir,það er að hann hefði vit á því sem hann er að tala um.En þá spyr maður sig líka þeirrar spurningar sem við höfum örugglega öll í kollinum,af hverju finnast ekki þessi skjöl sem hann vitnarí  að séu til? Er það kannski svo að hann á persónulega óvildarmenn sem standa í vegi fyrir því eðaer þetta bara alls ekki til? Spyr sá sem ekki veit.Þátturinn var góður og þarna kom ymislegt fram sem skyrði ymsa hluti.Svo er hann líka að hugleiða að koma aftur í stjórnmálin.Væri það bara ekki ágætt? Það er nú líka þannig í blessaðri pólitíkinni að ef vinstri stjórn fer kemur hægri stjórn. Hvað sem segja má um allt þetta umtal sem Daví fékk meðan hann sat í Seðlabankanum,þá stóð hann sig vel á Skjá einum.Það segir líka mikið að áhorfið setti vefsíðu þeirra á hliðina um stund. Þannig var nú það!

Við þurfum að halda vöku okkar og biðja fyrir landi og þjóð. Biðjum allar þær blessanir sem Guð vill gefa okkur yfir Ísland og okkur hvert og eitt. Og að stjórnmálamenn og konur geri enga vitleysu .

                                       Með bæn um blessun

                                                 Halldóra.


mbl.is Davíð Oddsson setti Skjáinn á hliðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleymum ekki þessum sannleika.

Komið þið sæl!

Í  dag vil ég minna okkur  á þann Guð sem við öll meigum leita til.Guð föður, skaparann.

Það er alveg sama á hverju gengur,þú mátt alltaf koma og þyggja fyrirgefningu og náð hans.

Líf okkar er áskorun að mörgu leiti. Það er allavega okkur gefið til þess að gera það besta sem við getum.Oft er það þó þannig að lífið fer aðra leið með okkur en við vildum. Og við verðum fyrir vonbrigðum. En ég er með gleðifréttir  handa þér.Drottinn Guð hefur augun á þér,og hefur gert allt frá móðurlífi! Þú ert á þeim stað af því að hann fól þér ákveðið verkefni til að leysa.En hann vissi það alltaf að þú og ég gætum ekki leyst okkar mál ein,við þyrftum hjálp.Og hjálpin er til staðar.Jesús  sem er Kristur er þessi hjálp.Og við meigum, já eigum að snúa okkur til hans í bæn. Bænin er lykill að hjarta Drottins Guðs.Notum bænina! Biðjum Guð að vera með okkur á lífsins göngunni.Hann mun vera til staðar þegar þú og ég biðjum í Jesú nafni. Og á erfiðustu stundum lífs okkar þegar við höldum að hann sé víðs fjærri.Þá er hann nálægur. Treður sér ekki. En bíður og vakir yfir okkur.

Góði vinur! Gleymdu ekki þessum sannleika um Drottinn Jesú Krist.

                           Drottinn blessi þig!

                                           Kærleiks kveðja

                                                    Halldóra.


Sunnudags hugvekja

Kæru vinir!

Ég hef verið að hugleiða orð Guðs í morgun. Og það er nú þannig með þetta blessað orð Guðs að það er eins og olía á hjól. Ég verð alltaf svo uppörfuð að lesa þetta  góða orð Biblíunnar. Þegar maður skoðar hvernig persóna Páll postuli var,þá kemur í ljós að hann ber svo mikla umhyggju fyrir hinum trúuðu, og hann sendir söfnuðunum uppörfunarbréf, til þess að kvetja þá og til þess að áminna þá um að halda sér við Drottinn Guð.Þetta finnst mér alveg frábært.Við eigum auðvitað að láta okkur þykja vænt um hvert annað. Það er meira að segja Biblíulegt,en í Galatabréfinu stendur að við eigum að gera öllum mönnum gott,einkum hinum trúuðu.Þannig hefur Páll eflaust hugsað. Og mig langar til að gera orð Páls postula að mínum: En hvað sem öðru líður þá hegðið yður eins og samboðið er fagnaðarerindinu um Krist.Hvort sem ég kem og heimsæki yður  eða er fjærverandi, vil ég fá að heyra  um yður að þér standið stöðugir í einum anda og berjist saman með einni sál  fyrir trúnni á fagnaðarerindið og látið í engu skelfast  af mótstöðu mönnum.

Það er mikið gleðiefni ef hinir kristnu geta staðið saman í einum anda. Það er Biblíulegt og til eftirbreytni. Stundum er það þannig að kristnir geta ekki staðið saman í  þjónustunni og í samfélaginu. Þá kemur fyrripartur þessa orðs svo vel inn í kringumstæðurnar: Ég vil að þér standið stöðugir í einum anda og berjist saman  með einni sál fyrir trúnni  á fagnaðarerindið, og látið í engu skelfast fyrir mótstöðumönnum.Versti mótstöðu aðilinn er hinn illi. En ef við erum í Kristi,þá eigum við að vera svo sterk í Guði að við hræðumst ekki þann óvin.En eitt er nauðsynlegt, og það er að biðja fyrir hvert öðru og vera til blessunar.Verum meðvituð sem lærisveinar Krists að okkur er ætlað að blessa aðra og koma með gleði og frið frá himni Guðs þar sem við erum.

                 Drottinn blessi þig og þitt fólk í dag.

                                       Kveðja úr Garðabæ

                                                    Halldóra.


Útivist. Hreyfing er holl.

Komið þið sæl!

Það er sumar og landið klæðist grænni kápu. Blómin skarta sínu fegursta . Fuglsöngur í loft og allt er svo mikið yndislegt. Sjálf reyni ég að fara út að labba á hverjum degi ,og geng venjulega sama hringinn 2 km. sem ég tel bara gott.En við það að fara út  og anda að sér hreinu lofti og njóta fegurðarinnar í náttúrunni verður maður svo frískur og glaður. Ég vel helst að ganga meðfram Vífilsstaðalæknum hér í Garðabæ af því að þá fæ ég svo margt í einu.Stórbrotna náttúru hér rétt við miðbæinn,fuglasönginn sem lætur í mínum eyrum eins og hið fegursta tónverk,lækurinn þar sem endur halda til með unga sína og söku fiskur stekkur upp,svona rétt til að minna á að það sé fiskur í læknum.

Svo eru fallegir húsgarðar sem gleðja augað. Og ekki má gleyma grasflötinni sem ég geng á þarna,græn og falleg.Oft er þessi flöt krind mörgum fuglum sem allir syngja sitt lag - fyrir mig!

Og ekki má gleyma góða loftinu sem maður andar að sér,það hressir svo ekki sé meira sagt.

Ég elska þetta allt svo mikið því það gleður mitt litla hjarta,hressir líkama og sál og minnir mig á  Drottinn Guð sem sem skapaði himinn og jörð, og gerði allt svo fallegt.

Kæru vinir Notið þennan yndislega tíma til útiveru eins og kostur er. Það hressir ,og er ókeypis.

Svo er það gott fyrir anda og sál að muna að Drottinn elskar. Elskar þig ! Og elskar mig!

                               Bestu kveðjur og Guð blessi ykkur.

                                              Halldóra.

 


Þá varð ég reið -kynferðislegt ofbeldi

Komið þið sæl!

Ég er ekki vön að blogga um annað en það sem tilheyrir kirkju og kristni.En nú ætla ég að fjalla um kynferðislegt ofbeldi.Af því að ég varð vitni að því hvernig maður misnotaði  sér aðstöðu sína. Ég var stödd á ákveðnum stað innan um fólk sem ég þekkti ekki neitt.Þannig var að ég sat nálægt þessu fólki.

Það var líf og fjör  og þau með áfengi. Á einum tímapúnkti kallað eldri maður í unga fallega stúlku og bað hana að standa hjá sér þar sem hann sat við borð,ásamt fleira fólki.Ekki veit ég hvort einhver tengsl voru milli hans og stúlkunnar,en finnst það líklegt (kanski var hann afi hennar) Í fyrstu byrjaði hann að tala fallega um hana og hæla henni við borðfélaga sína.Og hún stóð hjá þeim og brosti feimnislega. En svo fór þessi maður að strjúka henni um bakið og klappa henni um leið og hann hældi henni,svo fór hann með hendina á staði þar sem hann á ekkert með.Hann  snéri þannig að ekki sást aftan að þeim, svo hann notaði þetta tækifæri til að þukla. Ég fylgdist með stúlkunni, sem hafði verið brosandi og átti sér einskis ills von. Svipur hennar varð allt í einu eins og hún fengi æluna uppí háls,en yrði að kyngja henni. Ég varð allt í einu svo reið,og hugsaði í fljótu bragði hvernig ég gæti komið henni til hjálpar,en því miður ég sá enga leið.

Þetta atvik hefur ekki farið úr huga mínum síðan og ég finn svo til með þessari stúlku, sem gat ekki farið í burtu.Það var búið að bá til kringumstæður af fullorðnum manni, til þess að gera henni illt.

Eruð þið hissa þó ég sé reið? Ég veit að margar konur og stúlkur verða fyrir þessu ofbeldi,þvi miður.

Hvað er hægt að gera? Hvað hefði ég getað gert? Ég finn mig seka að hafa ekkert getað gert.

En þessi stúlka á samt samúð mína alla.

                                       Kveðja  og blessunar óskir

                                                  Halldóra.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband