11.9.2009 | 21:52
Dúfan fljótari en tölvupóstur.
Sælt veri fólki!
Mér finnst þetta falleg saga af litlu dyri sem vann sitt verk með sóma.Tölvur eru frábærar og tölvupóstur hefur sparað okkur mikinn tíma.Samt eru tölvur ekki fullkomnar,en þær geta líka gert okkur grikk með því að frjósa og hrynja og hvað þetta allt saman heitir.Ég er bara byrjandi kann minna en lágmarks kunnáttu,en kann þó að blogga. Veit ekki alveg hvernig veröldin væri ef við þyrftum oöll að hafa þennann háttinn á, að nota bréf dúfur.Það væri líka voðalega erfitt hér á landinu kalda. Nema að þær geti haldið á sér hita í öllum veðrum? Dúfurnar hafa sennilega í sér dulinn les skylning.Og lesa utan á umslögin,eða hvað? Þetta er okkur hulið. En Guð hannaði þessa litlu fugla öðruvísi en börnin sem hamast við að verða læs í skólanum. Nei,bara svona að velta þessufyrir mér:) En dúfurnar fæðast með les skylning,sem kemur sér vel,þegar þær eru að bera út póst.Að öllu gamni slepptu þá eru dúfur mjög viðkvæm dyr.Og hafa lítið hjarta.Þær vilja helst ekki vera þar sem læti og ónæði er,halda sig oft á þökum og láta lítið fyrir sér fara.Guð faðir notaði líkinguna um dúfuna sem tákn um heilagan anda.Ég held að það sé vegna þess að heilagur andi er viðkvæmur og þoli ekki neitt rangt,en hann vill vera þar sem hann er velkominn og þráir að blása andlegu lífi í alla sem þrá meira af Guði.En heilagur andi er eins og dúfan mjög hljóðlátur,en vinnur sitt verk þegar honum er hleypt að.Heilagur andi Guðs er til staðar fyrir alla sem hungrar og þyrstir eftir meiru af Guði. Heilagur andi var sendur til okkar frá Guði,líka til þín.
Kærar kveðjur úr Garðabæ
Halldóra.
![]() |
Dúfan var fljótari en tölvupósturinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.9.2009 | 16:50
Greiddi 75 millur fyrir hund.
Góðan dag!
Það er ekki öll vitleysan eins,þó hún sé svipuð!
En samt. SEnnilega hefur þessi hundur verið allra þessara aura virði?
En drottningarstælarnir voru ekki búnir,hún vildi 30 glæsibifreiðar til að taka fagnandi á móti sér og hvutta. Já þannig er nú það. Hef í gegnum tíðina heyrt eitt og annað um furðulegar uppákomur í svipuðum dúr.Og sagt ekta amrískt.En þessi er kínversk. Það getur verið að henni líði ekki nóug vel í landinu sínu og hafi þurft þess vegna góðan og dyran sálu félaga. Annrs er ég hætt að skilja þetta allt með alla þessa peninga sem fólk á.Og það er talaðum milljónir og milljarða eins og ekki neitt. Svo hef ég og flestir aðrir hugsað sig tvisvar um í hvert skipti sem maður hefur keypt eitthvað. T.d vantar mig úlpu fyrir veturinn,og ég þarf bara að bíða og sjá hvort það gangi upp.Þetta er dæmi sem ég veit að vel flestir hér á landi gera líka.Svo sem ekkert merkilegt,en samt! Þessi hugsun að fara vel með og að vera nægjusamur hefur ekki verið í tísku síðustu ár.Byst ekki við að fólk hér á landi eyði jafn miklum pening í hund eins og þessi sem um getur í þessari frétt.En hundar eru dyrir,það veit ég vel.Meira að segja kom fólk í heimsókn til okkar í sumar sem áttu og eiga hunda sem slaga í milljónina.Og eru því verðlauna hundar-nema hvað. Mér finnst samt aðal atriðið að þeir séu vel upp aldir ogséu þannig að manni standi ekki stuggur af þeim.
Við hér á Íslandi fáum fréttir nær daglega af allskonar furðulegri spillingu varðandi peninga heiminn,og erum orðin lang þreytt á því öllu saman.Konu greyjið átti örugglega fyrir þessari kjánalegu uppákomu,ég efa að ekki.En fréttin er samt um fólk sem hugsar ekki um að spara.Hún hefði kanski getað fengið ódyrari og betri hund. Hver veit.
Hef farið hér um víðan völl,en þakka lesturinn.
Guð friðarins sé með þér!
Halldóra.
![]() |
Greiddi 75 milljónir fyrir hund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.9.2009 | 16:11
Svona gerum við ekki.
Góðan dag gott fólk!
Það var á dögunum að á vegi mínum varð kona,sem staldraði aðeins við þar sem ég var stödd.með það sama fór hún að setja út á mig.Og segja ert þú að gera þetta,þú getur það ekki.Og hún hélt áfram að setja út á mig.Það skal tekið fram að ég þekki hana ekki neitt,veit reyndar hvar hún byr,annað ekki.Það var ekki eins og ég hefði yrt á han.Hún kom bara aðvífandi og byrjaði að setja út á mig.Ég neita því ekki að mér fannst þetta lítil mannlegt af henni.Og þar að auki þekkti hún ekkert til mín og minna starfa. Ég er nú bara þannig gerð að ef einhver synir mér ókurteisi eða talar niður til mín þá læt ég mig hverfa.Það er ekki svo að skilja að þetta sé daglegt brauð,öðru nær.Lang flest það sem ég hef tekið mér fyrir hendur hefur blessast mikið og vel.En þessi aumingjans kona sem kom til að setja út á mig og mín störf,fannst mér gera sig að minni manni. Ég hef alltaf reynt að vera uppörfandi og kvetjandi við aðra,og finnst dónalegt þegar fólk niðurlægir aðra.Mig langaði bara að segja ykkur frá því að við eigum ekki að brjóta aðra niður,heldur syna öðrum kurteisi og hlyju.Við vitum aldrei hvað með öðrum byr,og eigum því að umgangast aðra með virðingu og kurteisi. Flest allt fólk veit þetta mæta vel,en kanski er þetta góð áminning til okkar.Verum þau sem strá í kringum sig kærleika og hlyju.
Þetta eru hugsanir mínar í dag.
Gangi ykkur vel að gera öðrum gott.
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.9.2009 | 22:15
Þetta ættu þeir að lesa sem hafa völd.
Komið þið sæl!
Sagan segir frá konungi sem ríkti í Samaríu í sautján ár. Hann var ekkert sérstaklega góður við þegnana og gerði það sem illt var.Og þjóðin lenti í mikilli ánauð og þeir voru kúgaði af annari þjóð.
Og þar sem konungur sá enga leið út úr vandanum,braut hann odd af oflæti sínu, og bað Guð himinsins um hjálp.Og Drottinn sendi þessari þjóð hjálparmann sem losaði þá undan allri kúguninni.Og þjóðinni var borgið og landsmenn þurftu ekki að yfirgefa eignir sínar,þau gátu afram búið í sínum eigin húsum.
Af þessari stuttu sögu um konunginn Jóahas Jehússon getum við lært það að bænin til Drottins Guðs himinsins,getur breytt veraldarsögunni. Ef við aðeins notum bænina . Og það er áskorun mín til þeirra sem hafa einhver völd gagnvart Íslensku þjóðinni Biðjið Guð um hjálp og leiðsögn!
Þessi konungur var ekkert sérstaklega réttlátur,hann var meira að segja vondur maður,en Guð heyrði ákall hans.
Guð blessi þig!
Kveðja úr Garðabæ
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.8.2009 | 17:23
Hálfkaraðar glæsihallir.
Góðan dag!
Undanfarna daga hef ég hitt fólk sem er við það að liggja í rúminu vegna þess að ástandið í þjóðfélaginu fer svo illa með það.Það er sorglegt. Svo kemur þessi frétt um þetta hálfkaraða glæsihysi við Þingvallavatn,sem átti að verða sumarhúsi.Hann sem á þetta er örugglega niðurbrotin yfir sínu,ég efa það ekki.En það eina sem hægt er að benda á og getur hjálpað er að snúa sér til hans sem er á himnum og heitir Jesús og er Kristur. Mér hefur reynst það vel í stormviðrum lífsins að halla mér að trúnni.Og ég segi það satt að án Guðs get ég ekki verið!
En með byggingu Valhallar eða hótels ,þá lyt ég svo á að það er nauðsyn að hafa þarna einhverskonar" Valhöll" ekki endilega hótel. En einhverskonar matsölu, og fundarstað sem nyta mætti allt árið.Matsalan gæti verið lokuð yfir svartasta skammdegið. Já eða hægt væri að fara með ferðamenn til að sjá norðurljósin og fossinn í klakaböndum.Sjálfri finnst mér gaman að fara slíkar ferðir til Þingvalla.Ég vil endilega hafa einhverskonar aðstöðu þar. Þingvellir eru í mínum huga einn fallegast staður landsins.
En vaðandi kreppu og allt þetta sem er að gerast á landinu okkar,skulum við leggja allt í Drottins hendur og hann mun vel fyrir sjá!
Guð blessi þig!
Kveðja úr Garðabæ
Halldóra.
![]() |
Hálfkaraðar glæsihallir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.8.2009 | 17:42
Sprengjutilkynning í Borgarholtsskóla
Góðan dag!
Fréttirnar þessa dagana eru margar dapurlegar,nema fréttin um bláu stólana, fyrir feita fólkið.Það er vissulega jákvæð frétt. En fréttirnar hér heima eru margar svo sorglegar og mann langar bara ekki til þess að lesa allt þetta neikvæða. Á ferðalagi í sumar gistum við hjá vina fólk úti á landi,þar voru engin blöð.Þau kaupa ekki blöðin.Svo þegar við komum í menninguna aftur hafði ymislegt gerst,sem fór alveg fram hjá okkur.Í sjálfu sér var það líka hvíld.Og kanski dáldið sérstakt fyrir frétta sjúkt fólk eins og mig.
Ég er ein þeirra sen fer stundum í fjölmiðla föstu,bara til þess að hvíla hugann.Sleppi blaðalesti og hlusta bara á góða tónlist,og læt kvöld fréttirnar nægja. Mér finnst það viss hvíld. Svo kom þessi frétt um að allir yrðu að yfirgefa skólann og lóðina í skyndi. Sonur minn var þarna og fékk þetta allt beint í æð. Enginn var hræddur held ég ,enda við ekki vön slíku. En ég hef einhvernveginn í dag verið að huleiða það hvað fær fól til að gera slíkt.Vissulega var þar á ferð ógæfusamur piltur.En ég hélt einhvernvegin að hvað sem fólk væri undir miklum áhrifum áfengis eða vímuefnum þá vissi það muninn milli góðs og ills .En þar skjátlaðist mérundir þeim kringumstæðum tekur annað yfir ,það illa. Er það ekki merkilegt að djöfullinn situr um sálirnar til þess að fá þær til að gera það sem rangt er? Mig langar til þess að kvetja okkur öll til þess að gera það sem er fallegt og gott afspurnar, og helst að láta áfengi og vímuefni vera. Sjálf hef ég aldrei notað áfengi eða annað deyfiefni.Svo anda ég bara að mér heilnæmu súrefni. Hugsa að ef Guð hefði ætlað okkur að reykja hefði hann skapað okkur með stromp! Vonandi verða ekki svona göbb tíð hér á landi,nóg er nú samt.Vonandi á þessi ógæfu piltur eftir að rísa upp og sigra vímuefnin.
Þetta var hugleiðing mín í dag!
Góðar stundir!
Halldóra.
![]() |
Játaði eftir yfirheyrslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.8.2009 | 12:21
Kjarvals málverkið.
Komið þið sæl og blessuð!
Það eer kominn tími á blogg,enda hef ég ekki verið viðlátin um tíma.
Það er af mér að frétta að ég hef ferðast þó nokkuð í sumar.Nylega var
ég stödd á Bolafjalli. En ég heimsótti meðal annars vestfirðina í sumar.
Fyrir nokkru kom ég þó sem gestur á heimili þar sem mikil gersemi var
en enginn sinnti. Í fallegu sumarveðri í sumar var ég gestkomandi í húsi
þar sem Kjarvals málverk hékk uppi á vegg.En það var í lítt notuðu herbergi
á bak við hurð.Engum til ánægju.Ég spurði heimilisfólk út í þetta, og fékk þau svör
að þau væru svo lítið fyrir svona myndir.Þó að ég sé enginn sérfræðingur þá veit
ég um verðmæti þessarra mynda. Og mér datt í hug að sennilega er á mörgum heimilum
ymiskonar verðmæti sem ekkert er spekúlerað í. Það erutil Biblíur eða nyjatestamenti á
flestum heimilum,en fólk les ekki það sem þar stendur.En ég veit að ef við leggðum okkur niður við að lesa það sem þar stendur og fara eftir því,þá væri margt öðruvísi.Látum ekki fjársjóðinn í Guðs orði framhjá okkur fara.Það eru mikli andleg verðæti í þeirri góðu bók.Verðmætt málver er ekki neitt í samanburði við þau verðmæti sem blessa.
Verið Guði falin
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.8.2009 | 21:57
Allt það góða.
Það er annars merkilegt hvað Biblían er vanmetin bók. Hún er auðvitað ekkilétt til aflestrar,en mikill fjársjóður þegar maður hefur kynnt sér hana.Í þessari bók er bara einföld siðfræði byggð á orðum Jesú.Bræður ljúgið ekki hver að öðrum,er t.d. eitt af þessum heilræðum.Og sannleikurinn mun gera yður frjáls.Í mínum huga eru þetta snilldar leiðbeiningar,fyrir alla menn og konur.Því sá sem lygur er eins og maður með kúlu við fötinn,kemst ekkert áfram ,fer hring eftir hring.Látið ekkert skaðlegt orð líða yður af munni,heldur það eitt sem gott er . ERu þetta ekki góð viðvörunarorð? Jú ég held að við getum verið sammála um það. Verið góðviljaðir hver við annan,miskunnsamir,fúsir til að fyrirgefa hver öðrum. Ef við hugsum rökrétt þá vitum við hvað fyrirgefningin er máttug.Að lifa í riði er niðurdrepandi fyrir sálina og ekki þess virði að vera reiður.
Svo stendur á einum góðum stað í Bréfum Páls postula: Gefið djöflinum ekkert færi. Kvet okkur öll til þess að lifa sem góðar manneskjur.Vera öðrum góð,fyrirgefa þeirra og okkar sjálfra vegna.Látum ekki hið vonda yfirbuga okkur. Reynum að strá blessunum allt í kringum okkur.Einnig gleði og friði.Þetta eru allt ráð Biblíunnar,sem koma okkur öllum vel.Og hún er vel þess virði að vera lesin.
Guð veri með ykkur!
Kveðja úr Garðabæ
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.8.2009 | 10:16
Kreppa hjá breskum sveitarfélögum.
Kæru vinir!
Ég er nú orðin svo hundleið á öllum þessu neikvæðu fréttum dag eftir dag!
Og það stendur enginn upp og talar uppörfunarorð til þjóðarinnar.Enginn
sem segir Vinir!Verið hughraust,svona eru hlutirnir,en þetta mun taka enda,og
við skulum vera upplitdjörf!! Það vantar þannig rödd sárlega því margir eru illa
staddir á sálinni og efnahagslega. Við erum öll að glyma við einhverskonar afleiðingar.
Margir eru svo hræðilega reiðir. En ég vil segja við okkur öll, að það er mannskemmandi
að vera reiður.Horfum upp og lítum á björt hliðarnar.Mitt besta ráð er að biðja Guð um að
koma okkur til hjálpar.Já notið bænina!
Varðandi þessa frétt sem hér fylgir með,þið skuluð ekkert vera að eyða tíma í að lesa hana.
Hún er bæði mannskemmandi og niðurdrepandi. Horfum á Jesú, hann mun ekki bregðast.
Og hann segir ekki komdu til mín 2012 þá verð ég við.Nei. Í dag er hjarta hans opið fyrir þinni bæn.
Verum hugrökk,og vísum allri depurð burt, og verum hughraust!
Guð gefi þér góðar stundir.
Sólskins kveðjur Halldóra.
![]() |
Kreppa hjá breskum sveitarfélögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.8.2009 | 15:00
Sá hvíta dúfu.
Komið þið blessuð og sæl!
Já staðreyndin er sú að ég sá hvíta afar fallega dúfu í morgun.Hún sat á húddinu á bílnum mínum, og hreyfði sig ekki þó ég opnaði hurðina og færi inn. Ég varð að spjalla við hana smá stund áður en hún flögraði af bílnum.Hún er örugglega vængstífð,því hún gekk bara hér á gangstéttinni undir húsinu.Ég vona innilega að hún hafi ekki orðið ketti að bráð eða annað slíkt.En ég var á leið til vinnu, og þar skyldu leiðir.
En mig langar til að setja hér inn nokkur vers úr Biblíunni, úr Efesusbréfinu kafla 4 og frá versi 17
Þetta segi ég og vitna í nafni Drottins: Þið megið ekki framar hegða ykkur eins og heiðingjarnir hegða sér. Hugsun þeirra er alslaus, skylningur þeirra blindaður og þeir eru fjærlægir Guði vegna vanþekkingarinnar sem þeir lifa í og síns harða hjarta.Þeir eru tilfinningalausir og hafa ofurselt sig lostalífi svo að þeir fremja allskonar siðleysi af græðgi.En þannig hafið þér ekki lært að þekkja Krist. Jesús er sannleikurinn og ég veit að þið hafið verið heyrt um hann.Þið eigið að hætta hinni fyrri breytni og afklæðast hinum gamla manni sem er spilltur af tælandi girndum,en endurnyjast í anda og hugsun og íklæðast hinum nyja manni sem skapaður er í Guðs mynd og breytir eins og Guð vill og lætur réttlæti og sannleika helga líf sitt.
Gott til umhugunar fyrir okkur öll!
Guð veri með ykkur og blessi
Kv. Halldóra
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Bloggvinir
-
aglow
-
stingi
-
markusth
-
gunnarasgeir
-
arabina
-
arncarol
-
meyfridur
-
baenamaer
-
brandarar
-
cakedecoideas
-
christiancoaching
-
einargisla
-
fanneyogfjolnir
-
fridrikschram
-
gudnim
-
alit
-
zeriaph
-
drengur
-
eyfeld
-
jonmagnusson
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
krist
-
kketils
-
vonin
-
margis
-
mofi
-
olijoe
-
ragnarbjarkarson
-
ragnargests
-
rl
-
rosaadalsteinsdottir
-
sirrycoach
-
snorribetel
-
sur
-
svala-svala
-
svavaralfred
-
hebron
-
tb
-
valdimarjohannesson
-
icekeiko
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.9.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar