Í baráttu lífsins.

Góðan dag!

 

Þjónaðu Guði af heilu hjarta,og vertu alltaf reiðubúinn til þjónustu fyrir hann.Óvinurinn ræðst að vísu gegn þér og þú verður fyrir ymsum freistingum og erfiðleikum af því að þú ert að hrifsa bráðina frá honum.En standist þú þær raunir með því að ákalla stöðuglega sigurnafn Jesú verða endalok baráttunnar þau að þú eignast kórónu lífsins.Þú getur þessvegna glaðst í raunum þínum.

Kæri vinur! Sértu niðubrotin vegna einhverra hluta sem þú hefur þurft að þola, mundu þá þetta,að það er sigurnafn Jesú sem hjálpar!

  Hlustið endilega á Lindina fm 102,9 hér á suðurlandi.Aðrir geta fundið tíðnir lands byggðarinnar á Lindin.is

                              Blessun og friður sé með ykkur!

                                           Halldóra.
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl Halldóra mín.

Takk fyrir þessi frábæru orð. Í nafninu Jesú er fellst lausn. Ég þarf að muna þetta sjálf fyrir mig og muna að Guð vill bera byrðarnar fyrir mig.

Guðs blessun og ósk um góða helgi.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 5.7.2008 kl. 13:48

2 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Sæl Rósa mín!

Takk fyrir hvað þú er dugleg að kvitta!

Gangi þér allt vel,elskuleg, og vertu Guði falin!

 Kær kveðja  Halldóra. 

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 5.7.2008 kl. 15:44

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Glitter Graphics

Weekend Glitter

Sæl Halldóra mín.

Treystum Drottni því hann er góður. Við treystum því að Drottinn komi með lausn og Paul fái að koma aftur hingað og þau fái að búa hér. Drottni er ekkert ómáttugt og hann getur tjónkað við stjórnmálamennina okkar þó við getum það ekki.

Kær kveðja og Guðs blessun/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 5.7.2008 kl. 18:20

4 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Sæl aftur Rósa mín!

Hugur okkar margra er hjá þessum ungu hjónum,en eitt getum við gert, beðið fyrir þeim og  trúað 

með þeim á að Drottinn opni leið, svo þau geti átt saman gott líf.  Og við vitum að hann mun vel fyrir sjá!

Takk líka fyrir þessa fallegu mynd.Hún hæfir þínu fallega og góða hjarta!

 Bestu kveðjur á Vopnafjörð.Halldóra. 

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 5.7.2008 kl. 20:07

5 identicon

Sæl Halldóra mín.

þú ert sem ylur hér á Blogginu og veitir ekki af á stundum.Satt segir þú með freistingarnar og erfiðleikana og svo nafnið sem allt sigrar     Jesús.

Ég er alltaf nánast alltaf með Lindina á og að einnig Omega.

Ég þakka þér fyrir vaktina og ekki veitir af.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 06:43

6 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Sæll og blessaður Þórarinn!

Takk fyrir hly orð í minn garð,þú gerir mig bara feimna,en takk samt!

En enn og aftur,þú ert góður penni,sem gaman er að lesa , og vill ekki sleppa  í yfirferðinni.

                Hafðu kærar þakkir og Guð veri með þér,vinur minn!

                               Halldóra.

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 8.7.2008 kl. 10:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 8
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 79253

Annað

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband