Má ég sjá ofan í töskuna?

Heil og sæl mínu kæru vinir !

Í vikunni þurfti ég að fara inn í ákveðna verslun, sem er frekar sérhæfð.

Nema hvað að um leið og ég geng inn pípir þjófavarnakerfið, og ég bara 

yppti  öxlum, gerði mín kaup og ætlaði að borga, sem ég og gerði.Afgreiðslu stúlkan

spurði mig þá hvað ég væri með í veskinu,bara símann og annað tómt seðlaveski.

Hún bað þá um að fá að skoða í það, sem var ekkert mál, enda ekkert í því.Þá biður hún mig um að fá að sjá ofan í lítið hólf með rennilás, sem ég vissi ekki einu sinni um,og ég opna það.Þa segir hún hvar keyptirðu þessa úlpu, spurði hún þá? Ég vað svo hissa að ég sagði, elskan mín þetta er eldgömul kápa

keypt í Dalakofanum í Firði í Hafnarfirði, fyrir mörgum árum.Þarna var farið að renna upp fyrir mér að 

hún væri viss um að ég væri stór glæpon, sem kæmi upp dressuð úr flottustu fata verslunum landsins, inn í verslunina sem hún afgreiðir í og að hún kæmi upp um þessa voðalegu konu.Svo ég  sagði, veistu ég gæti ekki sofið ef ég tæki eitthvað ófrjálsri hendi, ég vil hafa hreint hjarta!

Svo sagði ég,ef það pípir þegar ég fer út, hvað þá? Þá yppti hún öxlum, og ég þakkað fyrir mig og fór út, en það pípti aftur  í kerfinu þegar ég fór. Hvað gat ég gert ? Ég bara brosti og fór.

En á meðan á öllu þessu stóð kom fólk þarna inn, og það pípti hjá því eins og mér, og það fór og það pípti aftur, en hinar afgreiðslu stúlkurnar  fóru ekki svona að.  Svona eftir á er ég bara mjög hissa á þessari afgreiðslu konuWoundering.

Mér líður ekker illa út af þessu, en finnst þetta furðulegt.

Guð veri með ykkur öllum.

          Kærleiks kveðjur Halldóra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð.

Ég hef oft lent í svona pípveseni. Einu sinni var ég stödd í Kringlunni og það byrjaði að pípa á mig þegar ég ætlaði út. Ég dreif mig inn aftur og við fórum að skoða töskuna mína og þá kom í ljós að gamalt landabréfakort sem ég var með var að gera mér þennan óskunda og afgreiðslukonan tók það og skannaði svo strikamerkið myndi nú ekki virka ef ég væri að flækjast með það í töskunni. Algjör sveitalubbi á ferðalagi í höfuðborginni með landabréfakort.

Guð veri með þér og þínum

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.10.2008 kl. 00:25

2 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Halló Rósa!

Ég sé þessa uppákomu fyrir mér þarna í Kringlunni,

en ég er að velta því fyrir mér hvort þessi afgreiðsludama 

sem afgreiddi mig hafi mátt koma svona fram við mig.Hvort

hún hefði ekki átt að ná í lögguna til að spyrja mig út úr.Var

hún ekki að gera það sem henni kemur ekki við?Kanski að,njósna

um mig? Pæling!              Líði þér vel blessunin mín!

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 17.10.2008 kl. 21:34

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir


Christian Glitter by www.christianglitter.com

Í Kringlunni með landabréfakortið í töskunni

Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.10.2008 kl. 22:46

5 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Ó, Rósa mín!

Ef þú værir ekki  svona dugleg að blogga

væri lítið um svona mega skutlur eins og þig

á þessum vetvangi.

 Drottinn blessi þig mín kæra.      Halldóra.

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 18.10.2008 kl. 11:49

7 identicon

Jæja mín kæra!

varstu ekki að segjast vera í sláturgerð, og hefðir ekki tíma til að blogga.

Nú er ég búin að fatta þetta allt, slátrið er bara yfirskrift,þú ert bara í því

að sitja fyrir á svona glitter pictures myndum. Þú ert ljómandi góð í þessu,

augnhárin uppá gagnauga, neglurnar vel buffaðar, og hárið eins og englahár.

Breyttu nú lógóinu, og komdu með dömulegri mynd af þér

Góða helgi og Guð veri með þér.        Kv. úr Garðabænum

Sé að spegla "meðferðin" er að virka

Halldóra Ásgeirsdóttir (IP-tala skráð) 18.10.2008 kl. 16:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 79277

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband