17.12.2009 | 00:57
Barnið kom óvænt?!!
Komið þið blessuð!
Ég hef að vísu heyrt um svipuð atvi, að kona viti ekki af því að hún gangi með bara.Og þessi toppar það allt, sem sé kraftlyftingakona.Eins óheppilegt og það nú getur verið þá var manneskjan á fullu að æfa! Svo bara fæðist barnið.Og allt í einu er líf hennar breytt. Það sorglega í þessu er að hún fékk ekki tækifæri til að njóta þess að bera barn undir belti. Það er að mér finnst eitt það stórkostlegasta sem við getum upplifað! Svo þetta með hvernig líkaminn er gerður af Guði. Það er kraftaverk útaf fyrir sig. Það er heldur ekkert sjálfsagt að geta alið af sér barn.Sjálfri fannst mér það stórkostlegt að ganga með mín börn.Þó að það séu komin yfir tuttugu ár síðan,þá man ég gleðina að vita af litla barninu mínu svo nálægt mér í næstum því ár.Og ég man að fyrra barnið átti að fæðast viku fyrr en það svo gerði.Og ég beið svo spennt.Og svo fæddist lítill krullhærður drengur! Þetta er mögnu lífsreynsla. Og þegar seinna barnið mitt fæddist vorum við þrjú sem fögnuðum , og eldri sonurinn kom gangandi inn á fæðingardeildina. Pabbinn kenndi honum sem sagt að ganga:) Ég óska þessari kraftakonu alls góðs og vona að hún eigi eftir að fæða fleiri börn, og njóta meðgöngunnar.Og svona innan sviga, þá er mjög gott að hafa stutt á milli barna!
Börnin eru yndisleg og við skulum vera góð við þau og kenna þeim bænir og blessa þau daglega og fela þau og okkur, góðum Guði.
Kraftlyftingakona ól óvænt barn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Bloggvinir
- aglow
- stingi
- markusth
- gunnarasgeir
- arabina
- arncarol
- meyfridur
- baenamaer
- brandarar
- cakedecoideas
- christiancoaching
- einargisla
- fanneyogfjolnir
- fridrikschram
- gudnim
- alit
- zeriaph
- drengur
- eyfeld
- jonmagnusson
- bassinn
- jonvalurjensson
- thjodarskutan
- krist
- kketils
- vonin
- margis
- mofi
- olijoe
- ragnarbjarkarson
- ragnargests
- rl
- rosaadalsteinsdottir
- sirrycoach
- snorribetel
- sur
- svala-svala
- svavaralfred
- hebron
- tb
- valdimarjohannesson
- icekeiko
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Christian Glitter by www.christianglitter.com
Sæl og blessuð
Blessuð konan hefur sloppið við alla verki á meðgöngu - sú var heppin. Við heyrum frá svona atburðum annað slagið. Ótrúlegt að þungun skuli fara framhjá móður.
Megi almáttugur Guð varðveita konuna og barnið hennar.
Guð blessi þig kæra Konungsdóttir
Kær kveðja/Rósa Konungsdóttir
Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.12.2009 kl. 15:07
Rósa þú ert himnasending!
Það þurfa ekki endilega að vera neinir verkir á meðgöngunni,bara hríðirnar í lokin.
En vissi blessuð konan ekkert um samskipti sín við hitt kynið?
Held að ég haldi mig ekkert við læknisfræðilegu hliðina og útskyri ekki neitt.
En pældu í Guði hvernig hann varðveitir barnið þrátt fyrir hvað konan fór illa með sig miðað við
ástand sitt. Bestu kveðjur austur til þín úr Garðabænum.
Halldóra.
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 17.12.2009 kl. 15:16
Sæl og blessuð
Hún hefur sloppið vel á meðgöngu - vinkona mín þurfti að hætta að vinna fyrstu mánuðina nú á meðgöngu vegna m.a. ógleði. Og nú er hún hætt að vinna. Hún á von á sér 20. janúar. Hlakka til að eignast frændsystkini. Hún er gift frænda mínum. Við erum bræðrabörn.
Barnið er bænasvar. Hún var búin að missa fóstur tvisvar að mér minnir og við báðum fyrir því að þau gætu eignast heilbrigðt barn og nú er barnið að koma.
Guð veri með þér
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.12.2009 kl. 15:25
Aðeins að bæta við, já dásamlegt að barnið hefur varðveist en móðirin er nýbúin að vera í keppni þar sem hún að mér minnir var sigurvegarinn.
Sem betur fer skora ekki karlarnir alltaf þegar þeir eru að eiga við konurnar. það yrði nú meiri hjörðin þá hjá fjölskyldunum í landinu, svona eins og í denn.
Guð veri með þér
Kær kveðja/Rósa
Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.12.2009 kl. 15:30
Christian Glitter by www.christianglitter.com
Rósa Aðalsteinsdóttir, 17.12.2009 kl. 15:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.