Gullkorn frá himni Guðs inn í daginn.

Góðan daginn!

Hef verið að hugleiða orð Guðs í morgun og teiga í mig allar þær blessanir sem orð Guðs á handa mér.

Var að skoða sálm 35;27 Vegsamaður sé Drottinn hann sem ann þjóni sínum heilla! Og sálm 37:5 Fel Drottni vegu þína  og treystu honum ,hann mun vel fyrir sjá. Einnig vers 7 Ver hljóður fyrir Drottni og vona á hann.

Það er líka uppörfandi versið í sálmi 41:13 Vegna sakleysis míns  hélst þú mér uppi og lætur mig standa frammi fyrir auglyti þínu að eilífu.

Og í sálmi 50 stendur Drottinn er alvaldur Guð hann talar og kallar á jörðina frá upprás sólar til niðurgöngu hennar.

Og að síðustu versið í sálmi 52. Miskunn Guðs varir alla daga!

                                     Guð blessi þig  !

Guð er í gær og í dag og um alla eilífð hinn sami!

                               Kærleiks kveðja 

                                           Halldóra.


Umferarlögin.

Jæja gott fólk!

Hvað segir maður við svona löguðu? Gamalt fólk á ofsa hraða.Hún hefur kanski haldið aftur af sér alla sína bílprófs tíð, og ákveðið að láta gamminn geysa svona rétt í restina. Ég hef mætt bílum á svo miklum hraða að ég hef hálf partin farið út í kant,þið hafið örugglega öll upplifað eitthvað slíkt líka.En þá hugsar maður æ,þetta unga fólk! Svo er það ekki endilega unga fólkið sem á í hlut.Stundum er það eldra og reyndara fólk sem kítlar þannig bensín gjöfina.Allavega var hún á hraðferð þessi blessuð kona. En setjum okkur í smá stund í  spor löggunnar sem stoppar svo fullorðna konu, og lítur á öku skyrteinið,og sér að hún er fædd1905. Ég byst við að hann verði hissa, og spyrji eru augun í lagi? heyrnin? og athyglin? Það sem gerir þetta atvik svo broslegt er að það var engin umferð svo hún ákvað að gefa í. Gilda umferðarlögin ekki þegar engin umferð er? Nei. Og sennilega fer öll dómgreind út í veður og vind. Sennilega ekki vind í landinu helga þar er örugglega hlytt og lygnt alla daga.

Enþað er best að vara okkur þessi fimtugu við því þegar við verðum 95 að brjóta ekki umferðarlöginSmile

       Góðar stundir


mbl.is 95 ára á 130
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er fallegt lag við þennan texta.

Komið þið sæl!

 Mig langar til að setja hér inn sálm sem ég held mikil upp á og varð mér til mikillar blessunar á yngri árum.

 Heilaga vissa,hirðirinn minn.

Herrann er sjálfur gleði ég finn.

Lifandi staðreynd orðin það er:

Endurlausn Jesús vann handa mér.

 

Kór: Gleði míns hjarta orðinn hann er 

Óslitin lofgjörð Jesú þþví ber.

Síðar á himni ,lofa ég hann.

Hjálpræði og náð er sekum mér vannm.

 

Öllu ég sleppti allt með því vann,

eilífa lífið Jesú ég fann.

Himnanna opna og engla ég sá.

Unaðsboð flytja himninum frá.

 

Örugg hvíld nú eignast ég hef .

Engann um meiri gæði ég kref.

Sál mín er frelsuð fyrir mig galt.

Frelsarinn Jesús- Hann er mér allt.

Fanny Crosby- Bjarni Eyjólfsson.

 

Sjálri mér er Jesús mín örugg von og vissa .Hann er líka öruggt athvarf í stormviðrum lífsins.

Og að sjálfsögðu Gleði hjarta míns.

Hvers virði er Drottinn Jesús Kristur þér?

 

                  Megi hann blessa þig ríkulega!

                                       Kveðja

 

                                           Halldóra.


Skipað að auka reykingar

Komið þið sæl!

Það má nú segja að ekki sé öll vitleysan eins!

En svona eru nú hlutirnir samt.Um heiminn hefur farið sú frétt að reykingar séu stórhættulegar.Það þurfti að vísu ekker að segja okkur það. Í mínu ungdæmi voru sígarettu pakkar merktir með áletruninni að reykingar drepi,ég veit ekket um það í dag.Enda var þessi áletrun auglyst allvel hér í den. En þessi frétt segir okkur hvað stjórnvöld í Kína eru á taugum, um að þeirra framleiðsla sejist ekki. Og skikka því áhrifa fólk til þess að reykja sem "gott" fordæmi. Og þannig styrkja efnahagslífið til muna. Þeir fá þá kanski eitthvað að gera blessaðir læknarnir, að meðhöndla fólk sem hefur látið tilleiðast. Og kanski kollegana líka. Miðað við allann þann heilsu áróður sem hefur gengið um heiminn sl. ár myndi maður halda að fólk léti ekki plata sig.Svo er þetta dyrt. Þetta er eiginlega lyginni líkast.En máttur stjórnvalda í þessu landi er bara ekki á sama plani og hjá öðrum. Vesturlanda búar eru að sporna við heilsutjóni eins og kostur er,þannig að þetta eru öfugmæli.

En hveersvegna heldurðu að ég sem hvorrki reyki né nota áfengi sé að blogga um þetta? 

Það er bara ein ástæða fyrir því ,trúum sannleikanum . Jesús Kristur sagði Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið.

     Guð blessi ykkur!

 

                              Kv. Halldóra.

 


mbl.is Skipað að auka reykingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sálmur eftir Sigurbjörn Einarsson.

    Ég mun láta yður menn veiða.

Við hættum þessu verðum víst að hlyða,

 hann vill við komum strax og fylgjum sér.

 Við kveðjum bát og net og vatnið víða,

 já, vertíðinni okkar líkur  hér.

 

  Við fórum aldrei fyrri burt að héti,

   rétt fram á mið,eitt dægur lengst í senn.

    Nú vill hann láta varpa öðru neti,

    víðsfjarri,upp á landi,fyrir menn.

   Að veiða fólk mun fráleitt okkur metta.

   Við finnum þessu raunar engan stað.

   Það boðar ekkert gott að gera þetta

   en gesturinn,sem kom hér,heimtar það.

 

Eftir Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup

 texti  ortur útfrá Mark. 1. 16-18.

 

         Við þurfum líka að læra að hlyða frelsaranum Jesú. Vera munnur hans og hendur og einnig fætur. Til að boða hans ríki er þörf fyrir alla kristna menn og konur.Höldum vöku okkar hvar sem við förum.

               Guð veri með ykkur

                                          Halldóra. 

 

 


Smá fréttir af mér

Sælt veri fólkið!

Ætla að sleppa því að tala um kosningarnar.Ætla hins vegar að tala um hvað það var gott að fara í messu í morgun. Fer yfirleitt í nessu á sunnudagsmorgnum.Í morgun fór ég í Grensáskirkju,það var ljómandi gott og gefandi.Suma sunnudaga fer ég á tvær samkomur,aðra fyrir hádegi og svo að kvöldinu. Það styrkir bara svo mikið hinn andlega mann að koma í Guðs hús. Það vill svo til að ég fór í annað Guðshús ekki fyrir svo margt löngu,og boðskapurinn var ekki eins og ég vildi.Ég vildi hreint og klárt Guðsorð,en þar var bara spjall um allt og ekkert.Það þótti mér miður.Í morgun talaði presturinn hreint og ómengað Guðs orð.Hann talaði umDrottinn sem góða hirðinn sem er ekki sama um okkur mannfólkið sem er að glyma við allt mögulegt.Og að hann sé fær um að hressa sál okkar.

Þetta er nefnilega alveg satt hjá prestinum.Ég hef reynt þetta sjálf! Að hafa Drottinn með í öllu gefur manni styrk,og veitir blessun. Og nú þegar ny ríkisstjórn tekur til starfa ættu þau að snúa sér til Drottins Guðs himins og jarðar, og biðja hann um vísdóm og visku.Og við ættum að standa vörð um þetta fólk í bæn,svo allt fari vel.Og að þau taki réttar ákvarðanir.Biðjum Guðs vilja yfir land okkar og þjóð.

Kæru vinir,þið sem lesið þetta ! Drottinn blessi ykkur !

                      Kv. Halldóra.


Nyr draumur.

Komið þið sæl og blessuð!

Það er alveg einkennilegt hvað mig dreymir mikið.Mig dreymdi ákveðna hluti inn í mín persónulegu mál fyrir skömmu, og það kom alt fram. Í nótt er leið dreymdi mig þennan draum: Mér fannst ég vera stödd á einhverskonar eyju,og hún var frekar hrjóstrug,en merkilegt nokk það voru kosningar í aðsígi.Sennilega hugas ég svo stíft til þeirra sem eru í framboði fyrir þessar kosningar að þetta sama fólk var í framboði í draumnum mínum.Mér fannst eins og Bjarni Ben,vera í gömlu vaskafati eða bala eins og þeir voru  hér áður.Allt í einu stendur hann upp og reysir upp ljósastaur í fullri stærð, svo það lysti öllum rétta leið. Þetta var ekki auðvelt verk en honum tókst það með sóma.Ég leit í kring um mig og sé Þorgerði Katrínu svolítið frá og hugsa, afhverju er hún alltaf í gráum fötum? En svo hugsaði ég  með mér í draumnum að hún væri sennilega tákn þess trygga og myndi standa trygg og trú með Bjarna.Svo fannst mér ég horfa út fyrir þetta svæði sem mér þótti ég vera á og sé þar Steingrím J. í  vaskafati grútfúlann með hendur í kross,eins og pirraður strákur.Mér fannst ég ekkert geta gert í því en hugsaði,hann jafnar sig.Í því kemur Ögmundur sterkur og stór og gengur þarna um eins og hann sé á eftirlitsferð.Ég sný mér að honum og er spyrjandi þá segir hann  ósköp rólega já  svona er þetta bara.Og mér fannst hann salla rólegur. Í því kemur Guðfríður og lytur á hann og segir er bara ekkert við þessu að segja? Nei segir Ögmundur ,það er bara ekkert við þessu að gera. Þá vaknaði ég.

            Þetta er aðeins gert til gamans.Fólk hefur verið að biðja mig að ráða sína drauma, en ég er ekkert góð í því. Það besta sem við gerum er að fela Guði alla hluti.

      Drottinn blessi ykkur!

 


Meistaraverk.

Komið þið sæl!

Hef verið að hugleiða hvað við eigum mikinn og stórann Guð. Var að lesa í spádómsbók Amosar  1:8

Hann sem skóp sjöstjörnuna og Óríon,sem gjörir niðamyrkrið að björtum morgni og dag að dimmri nótt,sem kallaði á vötn sjávarins og jós  þeim yfir jörðina,Drottinn er nafn hans.

Mér finnst alveg magnað að tilheyra þessum skapara himins og jarðar. Hann festi stjörnurnar á himinhvolfið og  gaf þeim nafn. Er þetta ekki stórkostlegur Guð? Hvað hann vandaði sig við að skapa þessa veröld. Svo skapaði hann okkur mennina.Hafið þið nokkurntíma hugsað út í það hvað hann vandaði sig mikið? Það er bara til eitt eintak af þér  og bara eitt eintak af mér! Sérhönnuð á teikniborði hans! Mér verður nær orða vant ég er svo heilluð af Drottni mínum.Ástæðan fyrir að þú ert þú er af því að hann skapaði þig  eins og hann er ánægður með. Og hann hefur fyrirætlanir í hyggju með þig!

Hvert smá atriði í þínu lífi var sérhannað af Guði föður skapara himins og jarðar.Alveg eins og stjörnur himinsins. Þú ert ekki eitthvað,þú ert Meistaraverk Guðs.

 Svo heldur textinn áfram: Leitið hins góða,en ekki hins illa til þess að þér megið lífi halda, og þá mun Drottinn Guð alsherjar vera með yður.

                                     Kærleiks kveðjur 

                                              Guð blessi þig!

 

                                                                Halldóra.


Seðlabúnt í brjóshaldara.

Sæl öll sömul!

Þessi frásaga minnir mig á sögur sem ég hef heyrt af fólki sem var með nyjatestamentið í brjóstvasanum og lenti í skothríð þar sem það var á ferli, og nyjatestamentið bjargaði lífi þeirra.

Það er mjög áriðandi að vera alltaf vel útbúin,sérstaklega ef við erum á hættu slóð eins og margir sem fara í trúboðsferðir.Ég er nybúin að lesa bókina um himnamanninn og það er bók sem ég kvet fólk til þess að lesa.Ég gat bara ekki stoppað þegar ég byrjaði.Bókin er um handleiðslu Guðs yfir þessum himneska manni.ástæðuna fyrir þessu nafni  er að finna í bókinni.En hann upplifði hvernig Guð,sjálfur skapari himins og jarðar kom honum til hjálpar.Sjálf á ég milljón  upplifanir af því hvernig Guð kom mér til hjálpar í minu lifi.Ja, eða meira! Því hver dagur er mér kraftaverk.Og ég er svo yfir mig þakklát fyrir hverja mínútu lífs míns.Við vitum svo sem ekkert hvað með öðrum byr,þannig séð.En fyrir mér er Jesús minn hjálpari,mitt skjól,já án hansværi ég ekki það sem ég er.Ég segi eins og Davíð konungur í sálmi 121 Ég hef augu mín til fjallann hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur fráDrottni skapara himins og jarðar.Og daglega beini ég sjónum mínum til himins ´og þakka honum sem er  sannleikurinn og lífið.Mér finnst það vera kraftaverk þegar fólk bjargast frá voða,eins og þessi kona sem hafði alla þessa peninga innaná sér.Ég sé bara vernd Drottins Guðs í því.

Þessvegna er betra að fela sig í hans hendur á hverjum degi. Og að lesa nyjatestamentið er  hunang fyrir sálina!

  Kvet okkur öll til að fela líf okkar og land í Drottins hendur.

                                     Kærleikskveðjur

                                                    Halldóra.


mbl.is Seðlabúnt falið í brjóstahaldara bjargaði mannslífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draumurinn.

Komið þið sæl!

Um síðustu mánaðar mót dreymdi mig draum,sem ég hef verið að bíða eftir að rættist.Og nú hefur hann komð fram. Ég reyndi að segja ákveðnum aðillum frá draumnum en þau syndu honum engan áhuga svo ég hætti því. Draumurinn er þannig að mér fannst Sjálfsstæðisflokkurinn vera að funda ,ráðherrar og þingmenn.Ohg þeir sátu í rauðplussuðum stórum stólum og mér þótti Bjarni Benediktsson  ráða för.

Nema hvað ég tek eftir því að það var sprengja inni á fundinum falin í einu horninu og enginn vissi af henni.Mjög öflug sprengja. Mér fannst fundurinn vera haldinn á stórri hellu eða bergi sem hafði verið slípuð.Og ég hugsaði ef ég geri ekki viðvart þá springur sprengjan .Meðan ég horfi yfir fundinn þá springur sprengjan, og það varð hræðilega mikil mengun þarna inni  á þessari slípuðu plötu, sem ég var mest hrædd um að brotnaði,en hún brotnaði ekki.Menn stukku ut,en mér fannst Bjarni halda ró sinni , og kallaði menn inn á fundinn aftur þá var búið að gera sæmilega hreint þarna og hann stendur við sinn stól og eer að yfirheyra fólkiðum hver hefði gert þetta.Hann bysti sig og sagði,ég skal ganga í þetta mál og sannleikurinn mun koma í ljós.

Þetta var það sem var merkilegt ,draumurinn var lengri,en nú bíð ég eftir að það komi fram og þá set ég það kanski hér inn.

Það þarf að biðja fyrir komandi kosningum og þeim sem styra landinu okkar. 

Verum sammála um að biðja Guðs vilja og áætlun yfir  landið okkar.

 Blessun og friður Guðs umvefji okkur í dag.

 

                              Halldóra.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.9.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband