Listasyning á Garðatorgi.Þú verður að sjá hana!

Komið þið sæl kæru vinir!

Ég lagði leið mína á listasyningu í Hönnunarsafninu í Garðabæ,sem er á Garðatorgi 7.Þessi syning lætur lítið yfir sér en er merkileg þegar inn er komið. Listakonan Laufey  Jensdóttir vinnur verkin úr gleri. Á gólfinu er glerhrúga, sem maður gerir sér ekki grein fyrir hvað er fyrr en inn er komið. Þessi hrúga hafði djúp áhrif á mig,því hún er tákn mynd sem við skyljum öll! Mátti til með að benda ykkur að fara þangað,og það kostar ekkert inn.

Það er gamall sálmur sem hefur verið svo ofarlega í huga mínum í dag,og ég ætlað að nefna nokkrar línur úr honum hér.

Jesús grætur heimur hlær

hysmið auma síkátt lifir.

Við  höfum öll dansað kring um gullkálfinn  undanfarin ár, og látið stjórnast af græðgi. Á meðan hefur Jesús staðið hjá og grátið yfir okkur.Fólk gleymdi Guði í öllu góðærinu.

Heimur hafðu á þér gætur 

Heimur sjáu: Jesús grætur.

En nú eru tímarnir að mörgu leiti breyttir,og samt bíður Drottinn Guð eftir að við snúum okkur til hans,hann hefur ekki hætt að bíða eftir okkur .Hann vill vera vinur okkar.

Þegar þú ert vondaufur er von hjá honum.Hann segir: Ég vil vera með þér alla daga,allt til heimsins enda.

Á þá ekki vel við þessi ljóðlína

Heimur hafðu á þér gætur?

 

Lítill sálmur lætur mig ekki í friði og byrtist hér.

Leiddu mína litlu hendi

ljúfi Jesús þér ég sendi.

Bæn frá mínu brjósti sjáðu

blíði Jesús að mér gáðu.

 

         Drottinn blessi þig !

                                           Kærar kveðjur!

 

                                                        Halldóra.


Átök í ríkisstjórininni.

Heil og sæl gott fólk!

Hélt að ég hefði ekki svo sterkar stjórnmála skoðanir,en er að hallast að því að ég hafi bara nokkuð miklar skoðanir.Það er kanski líka svo mikið pólitískt landslag til þess núna.Fyrst af öllu þá finnst mér Jóhanna vera mjög sterk kona, og ég held að hún sé að reyna að vanda sig.En þar á móti kemur að mér finnst hún orðin þreytt, enda engin furða.Hún á útaf fyrir sig hrós fyrir að hafa lagt út í þessar hremmingar.Steingrímur minnir mig alltaf á hinn fræga Ragnar Reykás, sem Spaugstofan ól af sér svo eftirminnilega.Hann er heldur ekki öfundsverður  í því sem hann er að gera núna. Helæst vildi ég að hann kæmi heim á stundinni, og  hugsaði málin betur.En ég ræð engu. Samt finnst mér einhver losaragangur  á stjórnarheimilinu um þessar mundir.Og ekkert sérstakt bræðralag þar  á bæ.Gæti trúað að það kraumi undir all hressilega, og að það berist féttir af  upplausn. Mér finnst allur þingheimur vera að gefast upp. Og þegar svo er í pottinn búið er kanski eins gott að það gerist fyrr en seinna.  Vona bara að ekkert verði gert sem  er þjóðinni (okkur öllum) til ills,það er það eina sem ég bið um.Þetta eru svona vangaveltur að kvöldi dags,því allt getur breyst á einum sólarhring.

 Höfum Drottinn Guð með í för.

                                           Halldóra.


mbl.is Hétu öll stuðningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

DRaumurinn um glösin.

Komið þið sæl !

Af því að ég hef gaman af draumum þá ætla ég að setja þann er mig dreymdi í nótt.

Mig dreymdi sjö glös,fjögur þeirra voru gul en hin þrjú blá. Og mér fannst ég sjálf vera blátt glas.Og  það var einhver mannsskja búin að yta bláu glösunum út í horn og hafði meiri augastað á þeim gulu.Og styllti þeim fremst í hyllu á áberandi stað.Öll glösin voru einhverjar manneskjur,með sína hæfileika.Sá sem hugsaði um þessi glös kallaði í fremsta gula glasið sem kom einhvernvegin hægt og rólega,en með hálfum huga þó.Og manneskjan sem hugsaði um glösin var ekki hrifin af árangri þessa glass, og lét það falla niður á gólf í einhvern kassameð hálmi í  og þá lokaðist kassinn.Nú héldu hin gulæu glösin  sem eftir stóðu að það kæmi að þeim.En nei.Þá snéri þessi manneskja sér að fremsta bláa glasinu sem hún var búin aðyta frá sér,og þetta glas þótti mér vera ég sjálf.Og það var nokkuð áberandi að mitt glas var eina glasið veð vatni í, öll hin voru tóm. Manneskjan reyndi með öllum tiltækum ráðum að reyna að lokka þetta bláa glas fram úr horninu,en ekkert gekk.Og hin glösin fyrir aftan líka svo fallega blá mjökuðu sér innar. Manneskjan reyndi með öllum tiltækum ráðum  að fá þetta glas, og mér fannst einhvernvegin að von þessarar manneskju vera mest bundin við bláa glasið mitt.Hún sendi kött til þess að reyna að fá þetta sérstaka bláa glas fram, og þegar það dugði ekki þá sendi hún  ljón, og ljónið reyndi mikið til að fella glasið niður,en af því að það var fullt af vatni og engar sprungur  í því féll það ekki.Og loks fór manneskjan í stóra brúna hanska og ætlaði að nota  sínar krumlur til að ná þessu glasi.En það gekk ekki.Manneskjanvar mjög svekkt og pirruð.Og sótti uppvöskunar vél  og ætlaði að setja þetta bláa glas þar, en náði engu taki á glasinu sem varð alltaf blárra og fallegra, og tæmdist aldrei. Draumurinn var svolítið lengri en þetta er megin inntakið í honum.

 Til gamans gert.

                         Góðar stundir.

                                                     Halldóra.


Draumurinn sem rættist.

Í ljósi þess að Ögmundur sagði af sér sem ráðherra ryfjaðist upp fyrir mér draumur sem mig dreymdi í vor og satt best að segja hefð ég verið að bíða eftir að hann rættist þið finnið hann hér .Það eru fleiri draumar sem mig hefur dreymt og ég bíð eftir að rætist.Það er vegna þess að mig hefur svo oft dreymt fyrir  daglátum eins og það heitir. En kíkið á drauminn! Þetta er bara til gamans eins og áður.

Guð blessi okkur öll!

 

                                       Kveðja   Halldóra.


« Fyrri síða

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Okt. 2009
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.8.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 79753

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband