DRaumurinn um glösin.

Komið þið sæl !

Af því að ég hef gaman af draumum þá ætla ég að setja þann er mig dreymdi í nótt.

Mig dreymdi sjö glös,fjögur þeirra voru gul en hin þrjú blá. Og mér fannst ég sjálf vera blátt glas.Og  það var einhver mannsskja búin að yta bláu glösunum út í horn og hafði meiri augastað á þeim gulu.Og styllti þeim fremst í hyllu á áberandi stað.Öll glösin voru einhverjar manneskjur,með sína hæfileika.Sá sem hugsaði um þessi glös kallaði í fremsta gula glasið sem kom einhvernvegin hægt og rólega,en með hálfum huga þó.Og manneskjan sem hugsaði um glösin var ekki hrifin af árangri þessa glass, og lét það falla niður á gólf í einhvern kassameð hálmi í  og þá lokaðist kassinn.Nú héldu hin gulæu glösin  sem eftir stóðu að það kæmi að þeim.En nei.Þá snéri þessi manneskja sér að fremsta bláa glasinu sem hún var búin aðyta frá sér,og þetta glas þótti mér vera ég sjálf.Og það var nokkuð áberandi að mitt glas var eina glasið veð vatni í, öll hin voru tóm. Manneskjan reyndi með öllum tiltækum ráðum að reyna að lokka þetta bláa glas fram úr horninu,en ekkert gekk.Og hin glösin fyrir aftan líka svo fallega blá mjökuðu sér innar. Manneskjan reyndi með öllum tiltækum ráðum  að fá þetta glas, og mér fannst einhvernvegin að von þessarar manneskju vera mest bundin við bláa glasið mitt.Hún sendi kött til þess að reyna að fá þetta sérstaka bláa glas fram, og þegar það dugði ekki þá sendi hún  ljón, og ljónið reyndi mikið til að fella glasið niður,en af því að það var fullt af vatni og engar sprungur  í því féll það ekki.Og loks fór manneskjan í stóra brúna hanska og ætlaði að nota  sínar krumlur til að ná þessu glasi.En það gekk ekki.Manneskjanvar mjög svekkt og pirruð.Og sótti uppvöskunar vél  og ætlaði að setja þetta bláa glas þar, en náði engu taki á glasinu sem varð alltaf blárra og fallegra, og tæmdist aldrei. Draumurinn var svolítið lengri en þetta er megin inntakið í honum.

 Til gamans gert.

                         Góðar stundir.

                                                     Halldóra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl Halldóra.

Ég set mig ekki úr vegi ef ég hef tækifæri til, að afhjúpa
eigin fáfræði og heimsku!

Mér finnst ekki ólíklegt að dreymandinn eigi 4 börn
eða tæki undir að eiga "ígildi fjögurra barna".
Jafnframt virðist sem "stóra ástin" hafi orðið þrívegis,
krossað veg dreymandans þrisvar.

Vera kann að dreymandi þurfi að ganga fram af meiri djörfung
en innri átök virðast koma í veg fyrir það > áhyggjur, óþolinmæði
og sú tilfinning að ráða ekki við kringumstæður eða að geta ekki
haft áhrif á þær.

Lausn: Farðu að eigin hugboði og treystu því að Drottinn muni
vel fyrir sjá.

Húsari. (IP-tala skráð) 4.10.2009 kl. 16:32

2 Smámynd: Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Sæll vertu Húsari!

Þú ert nú ekkert sérlega góður í draum ráningum,því ekkert af þessu sem þú nefnir á við mig.

Eina sem passar er þetta síðasta,ég treysti Drottni, og hann mun vel fyrir sjá.

Svo finnst mér skemtilegra að menn tjái sig undir nafni

                  Bestu kveðjur og dreymi þig vel.

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir, 4.10.2009 kl. 16:58

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæl og blessuð konungsdóttir

"Þeir sem treysta Drottni eru sem Síonfjall, er eigi bifast, sem stendur að eilífu.

Fjöll eru kringum Jerúsalem, og Drottinn er kringum lýð sinn héðan í frá og að eilífu." Sálmur 125: 1.-2.

Guð blessi þig og varðveiti frá ljónum, úlfum og vörgum.

Shalom/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 4.10.2009 kl. 23:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir

Höfundur

Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Venjuleg Íslensk kristin kona með áhuga á Bók bókanna, og öllu því sem gleður og fegrar okkur öll.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þegar húsið var rifið.2.september 2008 028

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband