12.10.2008 | 23:06
Biðjum fyrir málefnum þjóðarinnar!
Komið þið blessuð og sæl!
Það eru vers í Biblíunni sem hafa undanfarið verið svo ofarlega í huga mínum að það má segja að þau hafi verið límd í huga minn,undanfarna daga.Þau eru skráð í Jobsbók,34 kafla vers 21.Og eru svona:
Ekkert það myrkur er til,eða sú niðdimma að menn geti falið sig þar.
Sem sé, gott fólk,þá er sama hvað fyrir kemur í þessu lífi Drottinn Guð fylgist með öllu.
Stundum finnst mér ég finna sársaukann sem byr í brjósti himna föðurins vegna ymiskonar hluta, sem
yfir okkur ganga.Og mig langar að gráta, og ég finn að Jesús grætur líka. En það er mikill leyndardómur það að sjálfur himna faðirinn er hjá okkur, stendur með okkur og er hjá okkur,í öllum kringumstæðum. Og nærvera hans verndar okkur frá svo mörgu sem mætir okkurá lífsleiðinni.
Versið segir að hann sé með okkur allstaðar og að það sé ekki til það myrkur eða sú niðdimma að hann sé ekki með okkur.Í erfiðustu átökum lífsins er hann nálægur, gefur okkur styrk og leiðir okkur
áfram.Dagurinn í dag á sér ymsar væntingar fyrir okkur öll, ef eitthvað bregst,þá er það öruggt að Drottinn Guð bregst ekki.Hann er hjá þér, og við getum ekki falið okkur fyrir honum,því hann er með okkur!
Læt hér fylgja eitt vers úr Passíusálmunum
Oft lyt ég upp til þín
augum grátandi.
Lyttu því ljúft til mín,
svo leysist vandi.
Biðjum fyrir þeim sem eru að leysa málefni þjóðarinnar.
Við ættum að biðja sérstaklega fyrir forsætisráðherranum
því það mæðir einna mest á honum.Að hann standi sig
og hafi heilsu og kraft á hverjum degi til að vinna sitt verk.
Líka fyrir hinum sem eru í framvarða sveitinni en ber minna á.
Kveð í bili og bið himneskan föður okkar að blessa okkur öll.
land og þjóð í Jesú nafni.
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
9.10.2008 | 11:43
Uppörfun!
Sælt veri fólkið!
Þessa dagana eru kristilegir sálmar efst í huga mínum.
Boðskapur minn í dag er eitt vers úr þekktum sálmi.
Engin neyð og engin gifta
úr hans faðmi má oss svifta.
Vinur er hann vina bestur
veit um allt er hjartað brestur.
Og hér er vers úr Guðs orði:
Jesús sagði: Komið til mín allir þér sem erfiði og
þunga eruð hlaðnir, og ég mun veita yður hvíld.
Kæri vinur sem lest þessar línur! Segðu bara við Jesú:
Ég legg mitt líf í þínar hendur, og bið þig að leiða mig,
hjalpa mér,og gefa mér frið.Ég treysti því að þú munir vel fyrir sjá!
Blessun Guðs sé með okkur öllum í dag.Verum ekki leið og niður
dregin,horfum upp og biðjum Guð um hjálp fyrir okkur sjálf og fyrir
landi og þjóð.Misstum ekki kjarkinn! Guðs augu eru á okkur og við
getum ekkert farið eða falið okkur,augu Guðs eru á okkur!
Kær kveðja Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.10.2008 | 17:02
Reiðir viðskiptavinir Landsbankans.
Komið þið sæl!
Það eru syndar myndir af óttaslegnu fólki,í öllum fréttatímum.
Fólki sem er hrætt um peningana sína.Þegar maður hittir svo fólk á förnum vegi
eru allir hissa á hinum, sem, hópuðust á Korputorgið um helgina, og þeim sem
ætluðu að taka út sparifé sitt í bönkunum.Ég hef bara hitt hneikslað fólk.
Sjálf á ég engar formúur fjár, svo ég þarf ekki að vera hrædd um peningana mína.
Og ég þurfti heldur ekki að standa í biðröð eftir að Korputorg opnaði. En ég skyl svo sem þá sem eiga peningana.Fólk sem hefur verið að safna til efri áranna, fyrir útlanda ferð, fyrir nyjum bíl, eða hvað sem er.Við hér söfnuðum einu sinni sextíu þúsund krónum, og ég fór glöð og þakklát og keypti gardínur.
Það er ekki lengra en svo að þá var krónan einhvers virði. Í dag gengur það ekki. Því í dag fer fólk bara í Rúmfatalagerinn og kaupir gardínur,og fær flottar fyrir lítinn pening.
Ég legg til að nú köllum við saman fólkið í landinu, og höldum Kristnihátíð,þar sem við biðjum öll
fyrir landinu okkar og málum tengd þessari krísu, og biðjum öll fyrir ráðamönnum þjóðarinnar, að þeir geri það sem rétt er og gott.
Best væri að nota bara Laugaveginn, og nágrenni, og biðja fólk að koma í strætó spara bílinn og
gera þétta ódyrt,ég veit að það myndi blessa þjóðina.Gerum eitt góðir Íslendingar,biðjum Drottinn Guð að blessa landið!
Jesús sagði Óttist ekki ég er með ykkur,alla daga!
Kveð í bili,og bæn í brjósti
Halldóra.
![]() |
Reiðir viðskiptavinir Landsbankans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2008 | 23:03
Burt með áhyggjurnar!
Komið þið sæl kæru vinir!
Þannig er málum háttað að' ég starfa við að tala við fólk í síma.
Og í dag voru megnin af samtölunum við fólk sem lyður hræðilega illa
vegna ástandsins í landinu og heimsmálunum.Mér þótti mjög gott að geta
uppörfað þetta fólk með því að koma með jákvæðni og blessunar orð inní
umræðuna.Ég benti nokkrum á það að Drottinn Guð sæi um fugla himinsins,
og hann myndi örugglega sjá fyrir okkur.Og við meigum alsekki missa kjarkinn,
Það mun koma betri tíð,þó það taki verulega í núna!
Biblían segir og það eru orð Jesú: Veriið ekki áhyggjufullir um líf yðar,hvað þér
eigið að eta, eða hvað þér eigið að drekka,né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast.
Er lífið ekki meira en fæðan oglíkaminn meira en klæðin?
Lítið til fugla himinsins.Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður, og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér ekki miklu fremri þeim? Og hver yðar getur með áhyggjum aukið spönn við aldur sinn?
Og hví eruð þér áhyggjufullir um klæði? Hyggið að liljum vallarins, hversu þær vaxa.Hvorki vinna þær né spinna.Ég segi yður að jafnvel Salómon í allri sinni dyrð var ekki svo búin sem ein þeirra.Fyrst Guð skryðir svo gras vallarins sem í dag stendur, en á morgun veerður í ofn kastað skyldi hann þá ekki miklu fremur klæða yður ,þér trúlitlir!
Frábært!Leggjum þessvegna allt í Guðs hendur, og biðjum fyrir þeim sem styra og stjórna þessu landi, og felum málefni okkar Guði sem mun vel fyrir sjá!
Drottinn blessi ykkut öll!
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2008 | 12:43
Smápjakkur í dyragarði
Komið þið sæl!
Já, ekki er nú öll vitleysan eins í henni versu!
Ég held meira að segja að ég hafi verið búin að fræða mína stráka um
hættuleg dyr,á þessum aldri.Jafnvel þó að heimsálfur skildu okkur að.
Hverslags foreldrar eru það sem ekki fræða börnin sín um hætturnar,
búandi á sama landinu? spyr sá sem ekki veit
Foreldrahlutverkið er bysna margslungið,það veit ég vel,nema krakkinn
sé alveg hömlu laus? Við erum hér langt uppá Íslandi,og þurfum ekki að
hafa áhyggjur af því.Vonandi róast kúturinn, og verður að pryðis manni
--------------------- --------------- ---------------- --------
Heyrði um ungann mann í gærkvöldi,sem lyður hræðilega illa vegna þess sem er að
gerast í efnahags málum þjóðarinnar,mér fannst það sorglegt,en veit að margur
er í sömu sporum og hann. Ég er með huggunarorð til allra þeirra sem þjást um
þessar mundir.
Misstu aldrei kjarkinn! Örvænting hefur aldrei unnið sigur á andstreymi og enginn
hefur náð takmarki sínu með því að missa kjarkinn. Treystu Drottni og haltu fast við
hann og þú vinnur sigur á erfiðleikum þínum og nærð takmarkinu!
Drottinn blessi þig og veri þér náðugur!
Hlý kveðja úr Garðabænum
Halldóra.
![]() |
7 ára drengur olli uppnámi í dýragarði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
2.10.2008 | 08:41
Fiðrildið og byflugan
Sælt veri fólkið!
Mig langar í dag til þess að segja ykkur frá því hvernig náttúran fer með by flugur og fiðrildi.
Ungu by flugurnar eru látnar í sex strendan kefa með hunangi.Á því lifir hún,uns hún hefur brotið sér leið að ytra hylkinu sem klefinn er innsiglaður með.Það kostar mikið strit og stríð að komast í gegn en áreynslan veldur því að himnan sem bindur vængina við síðurnar slitnar af svo hún getur flogið
Einu sinni komst mölur inn (þessi tegund flugna er ekki til lengur) í búið og át vaxplönturnar.Byflugurnar komust út átakalaust. En þær voru vængja lausar, og til einskis nytar.
Náttúran verður að hafa sinn framgang svo flugurnar geti flogið,líka hjá fiðrildum,þau verða að losa sig sjálf úr púpunum.Reyna á sig! Annars verða vængirnir að engu, og þá er ekkert líf framundan hjá fiðrildinu.Ef fiðrildið gengur í gegnum sitt ferli á eðlilegan hátt,kemur sú stund að það hefur sig til flugs á undurfögrum og litskrúðugum vængjum sínum.
Eins er það með okkur við göngum í gegnum allskonar reynslur.Og sumar hefðum við ekki tekið í mál að ganga í gegnum ef við hefðum haft val.En okkur er skaffað eitt og annað.Bara veskú!
En á meðan við skoðum þessa hlið málsins kemur önnur hlið upp,hún er sú að það sem við göngum í gegnum gerir okkur oft að þeirri manneskju sem við erum.Við verðum einfaldlega ríkari! Mér finnst í mínum lífi að lífsreynslan,slæm eða góð, eftir því hvernig við lítum á málin, hafi gert mig sterkari!
Ég finn að reynslu sjóðurinn minn er sjóður sem hægt er að taka uppúr og miðla af.Af því að Drottinn Guð hefur gert hann að blessun.Ég er Drottni þakklát fyrir hvernig hann hefur leitt mig skref fyrir skref. Ég hef þurft að ganga í gegnum það að komast út úr púpunni svo ég gæti flogið eins og fiðrildi,og ég er bara glöð með það!
En þú vinur minn ! Ert kanski á þeim stað að sjá varla tilganginn með því að fara þá leið sem fiðrildið
þarf að fara,til þess að geta flogið.En ef við erum skinsöm verður þetta allt okkur til blessunar,af því að við verðum svo sterkir karakterar.Þetta er hlið hins jákvæða mans/konu.
Reynum að vera jákvæð og horfa upp, og gera okkar besta.En gleymum því aldrei að við erum sterkari ef Drottinn Guð er með okkur í för.Hann sagði: Þótt þú farir gegnum dimman dal,óttastu ekki því ég er með þér!
Þar til næst,sendi ég ykkur hlyjar kveðjur, og bið Guð að vera ykkur nær!
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2008 | 19:48
Brandari og ....
Sæl verið þið!
Núna ætla ég að byrja á að segja ykkur skrítlu, og ekki veitir af að létta andrúmsloftið.
Það var ung stúlka sem gekk í klaustur.
Abbadísin kynnti fyrir henni reglur klaustursins.
Þú mátt bara segja þrjú orð á þriggja ára fresti.
Annars er þetta klaustur þagnarinnar.
Jú allt gekk vel, og eftir þrjú ár kom abbadísin og
sagði,nú máttu tala þrjú orð.Unga nunnan sagði:
" Rúmið er hart" Ekket mál við látum laga það.
Svo liðu önnur þrjú ár,og aftur kom abbadísin, og
spurði ungu nunnuna hvort hún vildi nota tækifærið
og tala þessi þrjú orð, " Maturinn er kaldur"sagði hún.
Það gengur ekki, þú verður að fá heitan mat,ég tala um þetta
í eldhúsinu. Að öðrum þremur árum liðnum kom abbadísin aftur
og spurði ungu nunnuna hvort henni lægi eitthvað á hjarta.
" Ég er farin" sagði hún ,þá sagði abbadísin: Eins gott,þú ert hvort sem er
alltaf að kvarta"
Brosið léttir aðeins lundina, og þá er gaman að lesa brandara.
En ég skyl ekki við þessa færslu nema koma með kvatningu úr Guðs orði.
Í sálmi 23 stendur, Drottinn er minn hirðir....................við kunnum þetta vel flest .
En það stendur meira í þessum frábæra sálmi.
Hann hressir sál mína opg leiðir mig um rétta vegu, fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þó ég fari um dimman dal,óttast ég ekkert illt,því þú ert hjá mér.
Kæru vinir! Leggjum allt okkar líf í Drottins hendur, og leyfum honum að
vera með okkur í öllum kringumstæðum lífsins.
Lífið er ekki alltaf auðvelt, en ef við eigum Jesú í hjarta okkar,þá er hann alltaf þar sem við
erum og stendur með okkur, hjálpar og gleymir okkur ekki.
Þar til næst,brosum út að eyrum.
Kveð með hinni fögru íslensku kveðju
Bless
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.9.2008 | 10:54
Geimganga
Komið þið sæl!
Æ, mér finnst það alltaf jafn ógeðfellt þegar svona "merkilegir" atburðir eiga sér stað,að einhver sé að spássera úti í geimnum.En mér ætti ekki að finnast það,heldur ætti mér að finnast það eðlilegt,vegna þess að þekking og tæki þessa heims er slík. Og Biblían,sem skrifuð var löngu fyrir okkar daga tekur á slíkum málum og segir um manninn,þú lést hann verða litlu minni en Guð! Með sæmd og heiðri kryndir þú hann.Þú lést hann ríkja yfir handaverkum þínum,allt lagðir þú að fótum hans.
Takið eftir ! Guð gaf manninum slíka þekkingu, að maðurinn er litlu minni en Guð.
Mér kemur alltaf þessi setning Biblíunnar í hug þegar,maðurinn er að gera eitthvað sem er ,næstum einum of! Og svo er það líka næstum svakalegt til að vita að þessum atburði er sjónvarpað beint í Kína.
Ég er nú ekkert gamaldags í mér og púkó í hugsun,held ég,en það er samt eitthvað við svona gjörning sem,mér er illa við.Kanski er það bara sú hugsun ef eitthvað brygði út af, og þeir kæmust ekki til jarðarinnar aftur, sem gerir það.Veit það ekki En hitt geri ég,ég óska Zhai Zhigang og félögum alls hins besta.
Fyrir okkur sem höldum okkur bara hér niðri á jörðinni, eru hér yndisleg orð úr Biblíunni:
Svo segir Drottinn,sá er skóp þig, og myndaði þig.Óttastu eigi,,því að ég frelsa þig. Ég kalla á þig með nafni ,þú ert minn!
Með kveðju og Guðs blessun Halldóra.
![]() |
Zhai í geimgöngu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.9.2008 | 10:16
Ljóðið sem ég fann.
Góðan dag,gott fólk!
Hef verið að lesa ljóðasafn Davíðs Stefánssonar í morgun,og rekist á margt fallegt.
Hér kemur ein vísa úr Vegamótum,margra erinda ljóði:
Sé ég veg og vörður
vísa upp í móti.
Styrk þarf til að standa,
stikla á eggjagrjóti.
Upp í bláu bergi
blikar óskalindin.
Blessun bíður þeirra,
sem brjótast upp á tindinn.
Mér finnst þessi vísa nokkuð góð og kvetjandi fyrir alla, að gefast ekki upp þó í vörðurnar reki.
Stundum er lífið eins og erfið fjallganga,þar sem við rennum niður tvö skref, þegar við höfum tekið eitt.Og okkur veitir ekki af hjálp og styrk til þess að standast. Og það er svo gott að eiga trúna á Drottinn Guð, sem er með okkur, og er alltaf hjá okkur þó að við tökum ekkert eftir því,þá er hann hjá okkur hljóður,og hjálpar á hverju sem gengur.
Hér er önnur vísa,sem var einmitt tilefni þess að ég fór að lesa ljóðasafnið.
Drottinn himnma og heima,
herra dags og nætur
á þig einan hrópar
allt,sem kvelst og grætur.
Láttu lyði alla
leiðir réttar finna
láttu ljós þitt vera
lampa fóta minna.
Við þekkjum öll mátt rafmagnsins, sem tendrar ljósið. Og ef við förum í koldimmu,þá vitum við best hvað við þörfnumst ljóssins mikið.Þannig er trúin á Guð, sem leiðir okkur og lysir á æfigöngunni.
Kæru vinir! Látum ljós Jesú vera lampa fóta okkar!
Þar til næst,Drottinn blessi ykkur öll!
Kveðja úr Garðabænum
Halldóra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.9.2008 | 22:29
Jóhann Benediktsson tilkynnir afsögn
Heil og sæl!
Þetta er dapurleg staða,sem upp er komin í þessu mæta embætti.Ég hef alltaf borið mikla virðingu fyrir Jóhanni, og fundist hann bera góðann þokka, auk þess að vera starfi sínu vaxinn.En fyrst og fremst er illa farið með mikla þekkingu og vel þjálfað fólk á sínu sviði.Ég horfi með skelfingu til þess er nytt og óvant fólk fer að vinna sömu störf og þessir ágætu menn sem nú hverfa til annarra starfa sinntu.
Ætla svo sem ekkert að telja upp afrek þeirra, en lögregla og tollverðir hafa komið í veg fyrir að eyturlyf og önnur óáran hafi flætt óhyndrað inn í landið.Reynsla og þekking er dyrmæt.En svona er þetta nú! Þegar ég sá í sjónvarpinu að þeir voru að funda í safnaðarheimili Keflavíkurkirkju, hugsaði ég,það er áræðinlega blessun sem fylgja mun Jóhanni inn í næstu skref í hans persónulega lífi,að enda þetta í húsi Guðs.
Ætla ekki að skjóta á einn eða neinn,en ég tel að hér hafi verið teknar rangar ákvarðanir.
Vona heitt og innilega að það fari að komast ró yfir lögregluna og starf þeirra,því embættið má alls ekki missa virðingu almenings.Við hinir almennu borgarar þurfum að geta reitt okkur á þessa þjóna að öllu leiti.
Bið Guð að blessa Jóhann og hans framtíð,sem og lögreglu og tollstjóraembættið á Suðurnesjum.
Þar til næst Drottinn blessi ykkur!
Halldóra.
![]() |
Jóhann tilkynnti afsögn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Bloggvinir
-
aglow
-
stingi
-
markusth
-
gunnarasgeir
-
arabina
-
arncarol
-
meyfridur
-
baenamaer
-
brandarar
-
cakedecoideas
-
christiancoaching
-
einargisla
-
fanneyogfjolnir
-
fridrikschram
-
gudnim
-
alit
-
zeriaph
-
drengur
-
eyfeld
-
jonmagnusson
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
thjodarskutan
-
krist
-
kketils
-
vonin
-
margis
-
mofi
-
olijoe
-
ragnarbjarkarson
-
ragnargests
-
rl
-
rosaadalsteinsdottir
-
sirrycoach
-
snorribetel
-
sur
-
svala-svala
-
svavaralfred
-
hebron
-
tb
-
valdimarjohannesson
-
icekeiko
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar